Birtingur - 01.06.1959, Síða 64

Birtingur - 01.06.1959, Síða 64
Hann hörfaði nokkur skref. — Það er best við förum hvort sína leið, sagði hann. — Ég fullvissa þig, Agnieska: það er best við förum hvort sína leið. I öllum mannlegum samskiptum eru takmörk sem ekki má fara yfir. Það er best að fara núna og bjarga þá að minnsta kosti endurminningunum. Lotning. Sæmd. Þrátt fyrir allt eru þetta ekki eins lítilsverðir hlutir og þeir líta út fyrir að vera. Hún brosti aftur. — Er þetta allt sem þú hefur lært af lífinu? Skilja ? Fangelsið þitt sem þú ert alltaf að tala um? — Já, sagði hann: það er betra að fara sína leið en horfa á hvernig allt treðst niður í svaðið. Ég vil ekki deyja. Ég verð að hafa eitthvað að lifa fyrir. Einhvers að minnast. Eitthvað sem ekki hefur verið helber óþverr- inn. — Ég elska þig, sagði hún. Og verð hjá þér. Ég ætla að sofa hjá þér í dag. Mér er svo hjartanlega sama hvar og hvernig. Hópur af kátu fólki nálgaðist; það tók alla gangstéttina og vaggaði í fjörlegum sveiflum. Pietrek og Agnieska viku til hliðar. Pietrek sagði: — Komdu upp til mín. — Til þín? En þú býrð með fjórum öðrum. — Kanske eru þeir ekki komnir heim, sagði hann örvilnaður. — Það er laugardagur, það er ekki orðið svo framorðið; kanske hafa þeir farið eitthvað út. Við læsum dyrunum og hleypum þeim ekki inn þó svo þeir hendi mér út á morgun.... Hann sagði hátt svo að bergmálaði í götunni: — Komdu, bara augnablik! Svolitla stund! Þau lögðu af stað heim. Enn gengu þau hlið við hlið. Þau gengu þegjandi og hlustuðu hvert á annars fótatak. Þau fóru framhjá bör- um, næturklúbbum, kvikmyndahúsum. Agnieska leit á uppljómaða glugg- ana og hugsaði: „Veggi. Fjóra veggi. Kanske þrjá? Skyldi vera hægt að byggja herbergi með þrem veggjum? Skyldi vera hægt að búa í svoleiðis herbergi? Ætli svoleiðis herbergi sé nokkursstaðar til ?“ Hún reyndi að hugsa um hvaðeina en þráðurinn í öllum hennar hugsunum var í rauninni alltaf sá sami: Sofa! Loksins að sofa! Hún kannaðist ekki við göturnar sem Pietrek fór um með hana. Og hún rankaði ekki við sér fyrr en hann leiddi hana gegnum undirgang. Og þau voru í niðamyrkum garði. Hún leit undrandi kringum sig; hvergi var ijós i glugga. — Hversvegna er svona dimmt hérna? spurði hún. — Sérðu það ekki? hló hann. — Þetta eru rústir. Nú fyrst sá hún að gluggarnir voru ekki annað en tóm göt. Það sást ekki strax því rústirnar skáru sig naumast úr dimmum himninum. — Býrðu hérna? 60 Birtingur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

Birtingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.