Birtingur - 01.06.1959, Page 72
hefðí það ekki verið vegna þessa drykkjurúts þarna frammi í eld-
húsinu þá hefði maður getað lifað eins og manneskja. í dag, á sunnu-
degi hefði ég getað fengið mér stelpu eða drukkið mig fullan. Og svo
kemur þessi rigning óforvarandis og eyðileggur allt fyrir manni. Ég
verð að hírast heima og líta eftir móður ykkar. Ég kemst ekki í veiði-
túrinn, og á morgun stend ég í yfirfullum sporvagni....
Skyndilega stökk hann að dívaninum þar sem móðir hennar lá.
— Upp með þig, kerling, hrópaði hann. — Farðu á lappir, drepstu,
gerðu hvað þér sýnist, en í guðanna bænum láttu eitthvað breytast.
Agnieska stóð aftur á götunni. Ungur náungi spurði: „Má ég bjóða
yður regnhlífina?“ Dimm skýin héngu lágt; rétt yfir húsþökunum.
X
— Hvaðan þekkið þér Elzbietu? spurði maðurinn.
— Við vorum saman í skóla, svaraði Agnieska. — Já, við erum meir
að segja samstúdentar. Hún hætti svo við námið eftir tvö ár. Síðan
hef ég ekki séð hana.
— Og svo hafið þið hitst aftur í dag? spurði hann. Hann rétti sígar-
ettupakka að Agniesku; hún var orðin kennd og náði ekki taki á
sígarettunni. Maðurinn brosti. Hann tók sígarettu og stakk upp í hana.
Hendur hans voru sterklegar, sólbrenndar og handabökin þakin svörtu
hári.
— Já, í dag, sagði Agnieska. — Ég stóð í undirgangi og beið af mér
skúr. Hún rakst þangað líka af tilviljun. Hrífandi, er það ekki? Ein-
hvern tíma gekk dægurlag: ,,Óveðrið“. Munið þér eftir því?
Hann hneigði höfuðið. Hann var með svart, gljáalaust hár og nýklippt-
ur. Það féll lokkur niður á ennið.
— Nei, sagði hann eftir stundarþögn — getið þér ekki sungið það
fyrir mig? Kanske rifjast það upp fyrir mér.
— Hérna? Á knæpunni?
Hann kom nær henni. Hún fann andardrátt hans á hálsi sér, heitan,
þrunginn víni og tóbaki.
— Við getum farið eitthvað annað, sagði hann.
— Það er að segja: frá einni knæpu til annarar?
— Ég sagði það ekki.
— Það var synd. Annars er rigning.
— Við reynum að særa himininn.
— Synd ég skyldi ekki kynnast yður fyrr.
— Þvíþá ?
— Þá hefði ég beðið yður að gera það í morgun.
— Og núna?
68 Birtingur