Íslenzk tunga - 01.01.1959, Side 76
74
JON AÐALSTEINN JONSSON
útgefandi — og hinn eini — hér á landi fyrir og eftir 1600, svo sem
kunnugt er. Er stafsetning bóka hans svipuð og á elztu bókunum.
Hafði Guðbrandur biskup því áhrif einnig að þessu leyti með bók-
menntastarfi sínu. Auk þess hefur letur það, sem biskup útvegaði til
prentverks síns í upphafi, verið notað eins lengi og það entist. Hélzt
þessi stafsetning í öllum aðalatriðum á Hólum til loka 18. aldar.
Svissneskur fræðimaður, dr. Oskar Bandle, hefur rannsakað málið
á biblíu Guðbrands biskups og sarnið um það doktorsritgerð.2 Gerir
dr. Bandle þar nákvæma grein fyrir stafsetningu þessarar elztu
biblíuútgáfu hér á landi. Ekki gerist þörf að fjölyrða um hana hér,
þar sem hún er í veigamestu atriðum hin sama og á Nýja testamenti
Odds Gottskálkssonar. Til fróðleiks má aðeins geta þess, að greina-
merki eru allmiklu fleiri en í NT. Eru nú komin til skjalanna auk
punkts og skástriks spurningarmerki, tvípunktur, svigi og bönd.
II
A 18. öld hefst nokkur vakning í stafsetningarmálum, og varð það
fyrir dönsk áhrif. Hinn fjölfróði Jón Ólafsson frá Grunnavík skrif-
aði fyrstur íslenzkra manna á seinni öldum um íslenzka stafsetningu,
nema ef vera skyldi Sigurður Stefánsson, skólameistari í Skálholti,
d. 1595. Hins vegar er rit Sigurðar glatað og engan veginn öruggt um
efni þess, og ekki þekkti Jón frá Grunnavík það.
Jón Ólafsson var um skeið ritari þeirra Árna Magnússonar og Páls
Vídalíns, þegar þeir voru að semja jarðabókina. Þeir Árni kenndu
skrifurum sínum ákveðna stafsetningu, enda var hinn mesti rugling-
ur á henni meðal landsmanna. Varð þetta ritarastarf því Jóni góður
skóli einnig í þessu tilliti. Auk þess var Jón vel heima í rithætti hand-
rita og hafði enn fremur kynnt sér erlend rit um stafsetningu. Má
því segja, að hann hafi verið manna bezt fær um að semja gagnlega
bók um íslenzka stafsetningu um sína daga. Hins vegar lauk hann
aldrei við þessa ritsmíð sína, og hún var lítt þekkt.
2 Die Sprache der Guðbrandsbiblía (Bibliotheca Arnamagnæana, XVII;
Ilafniæ 1956).