Vera - 01.12.1984, Side 12

Vera - 01.12.1984, Side 12
Liósmj Jane Enp/ish. vera með strák fyrst þú varst svona ást- fangin af henni? „Það má guð almáttugur vita. Ætli ég hafi ekki viljað vera með í munstrinu, vera í þessum vanalega leik. Svo fylgir nú sá böggull því skammrifi að vera kona að mann langar til að eignast börn. Það er vandamálið sérstaklega þegar maður er eins mikið fyrir börn og ég er.” — Og svo slitnaði upp úr sambúð ykk- ar? „Já, hún varð ástfangin af strák og þau fóru að verasaman. Ég tók það óskaplega nærri mér og fór alveg yfirum við þetta. En þetta var orðinn algjör hildarleikur svo að ég sá ekki annað ráð en að flytja, þó mér þætti það mjög sárt ekki síst vegna barns- ins. Og nú er hún búin að gifta sig.” — Hvað finnst manninum hennar um ykkar samband? „Sjálfsagt finnst honum þetta erfitt og hann vill ekki trúa því að við höfum búið saman í eitt og hálft ár án þess að snerta hvor aðra. Hann skilur ekki hvernig það er hægt, kannski vegna þess að karlmaður myndi aldrei sætta sig við að búa þannig með konu sem hann hefði haft ástar- samband við. Til að auðvelda honum þetta vildi hún að ég færi til hans og segði hon- um að ég elskaöi hana ekki lengur en ég gat ekki gert það. Mér þykir ennþá óskap- lega vænt um hana.” — Hefur þú verið með konum síðan þú varst með henni? „Já, í örvæntingu minni yfir skilnaðinum fór ég t.d. að vera með annarri stúlku en ég sé eftir því. í rauninni var ég bara að leita að staðgengli svo ég var í þessu sambandi á röngum forsendum, ég held að ég hafi farið svolítið illa með hana. Sú stúlka flutti síðan til útlanda því hún treysti sér ekki til aö vera lesbía á íslandi.” — Hefur þú þá aldrei orðið ástfangin aftur? „Ég hef veriö með nokkrum konum en aðeins einu sinni orðið ástfangin aftur. Núna er ég ástfangin. Annars hef ég ekki trú á ástinni. Auðvitað er mjög gaman að vera ástfangin, það er ekki það, en þetta er egóískt drive. Svo er líka illt að eiga ást við þann sem enga kann á móti.” — Þú minntist á það áðan að þú værir mikið fyrir börn. Getur þú sætt þig við það að eignast aldrei barn? „Ég vinn með börnum og það gefur mér geysilega mikið. í þessu starfi gæti ég sætt mig við að eignast ekki barn. Ég ætla hins vegar að eignast barn. Það verða einhver ráð með það.” — Hefur þú velt því fyrir þér af hverju þú ert lesbísk? „Já já, og ég skil það ekki. Ég skil ekki af hverju ég er ekki eins og systkini mín. Sumir segja að þetta sé eitthvað sem mað- ur venur sig á en ég hef ekki trú á því. Þetta er ekki spennandi hlutskipti að velja. Þó ég hafi viljaö, langað og ætlað að vera með karlmanni þá hefur það bara ekki gengið. Sambönd mín við karla eru hvorki fugl né fiskur.” — Þú minntist á stúlku sem ekki hefði treyst sér til að vera lesbía á íslandi. Er það svona erfitt? „Já, lesbíusamfélagið er svo lítið. Þær eru allar svo hræddar að það er engu lagi líkt. Ef lesbía er á lausu þá fara hinar að ótt- ast um sín sambönd. Svo mæta þær auð- vitað fordómum rétt eins og hommarnir, þóþaðsékannskiekki ísamamæli. Konur eru verndaðri. Annars hefur það ekki háð mér neitt í lífinu að vera lesbía. Þegar syrtir að þá verður þetta auðvitað einn af erfið- leikunum en það er eins og afltaf þegar maður málar skrattann á vegg, þá vex allt.” . . . mér fannst þau hlytu að hafa í höndunum lykilinn að vel heppnuðu hjónabandi. Og ég vildi frœðast. Samt skildist mér fljótlega að þennan lykil gceti ég ekki notað.

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.