Vera - 01.12.1984, Blaðsíða 24

Vera - 01.12.1984, Blaðsíða 24
1ÍMR1T§ - lOgfræbevga 4. HEFTI 33. ÁRGANGUR 1983 Greinin sem hér fer á eftir birtist í nýútkomnu hefti af Tímariti lög- fræðinga, sem að þessu sinni fjallar um mannréttindi. Greinin er skrifuð af ritstjóra tímaritsins Þór Vilhjálmssyni forseta Hæsta- réttar, en í henni gagnrýnir hann undirskriftasöfnun frá því í mai þar sem mótmælt var úrskurði Sakadóms í nauðgunarbroti. Veitti hann VERU góðfúslega leyfi til að endurprenta greinina. UNDIRSKRIFTIR GEGN MANNRÉTTINDUM I mal s.l., 1984, játaði maður nokkur nauðgunarbrot. Sakadómur synjaði kröfu rannsóknarlögreglunnar um gæsluvarðhald. Eftir að sakadómsúrskurðurinn varð kunnur, hófst söfnun undirskrifta undir svohljóðandi texta: „Við undirrituð mótmælum harðlega þeim úrskurði Sakadóms Reykjavfkur, að synja gæsluvarðhaldsúrskurði yfir manni þeim, sem handtekinn var fyrir nauðgun og tilraun til nauðgunar aðfaranótt 13. mai s.l. Byggir úrskurðurinn greinilega á þeirri undarlegu hefð að dæma menn yfirleitt til lágmarksrefsingar, eins árs fangelsis, fyrir nauðganir. Nauðgarar eru hættulegir öryggi kvenna og við krefjumst þess að þeir sæti gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur. Ekkert ætti að vera þvl til fyrirstöðu að dómur falli tafarlaust þar sem málsatvik eru að fullu kunn og játning liggur fyrir.“ Á örfáum dögum skrifuðu 11.200 menn undir þessi orð að sögn eins af þeim, sem beittu sér fyrir söfnuninni. Voru listarnir afhentir dómsmálaráðherra. Rétt áður hafði Hæstiréttur fellt dóm þess efnis, að maðurinn skyldi sæta gæslu- varðhaldi til 13. júní. Þá var honum sleppt. Ekki mun efnisdómur genginn I máli hans, þegar þetta er skrifað í ágúst. Dómur Hæstaréttar um gæsluvarðhald var byggður á rannsóknarnauðsynj- um, þ.e. 1. tl. 67. gr. laganna um meðferð opinberra mála, en ekki því, að söku- nautur væri hættulegur umhverfi sínu (6. tl.) eða að ætla mætti, að brotið leiddi til að minnsta kosti 2 ára fangelsisdóms (4. tl.). Ekki er fram komið, að undir- skriftarmenn eða aðrir hafi haft uppi mótmæli, þegar maðurinn var látinn laus úr gæsluvarðhaldi I júní. Sökunautar, líka þeir, sem játað hafa nauðgun, eiga rétt á málsmeðferð eftir lögum landsins. Þá meðferð eiga dómstólar að ákveða, ekki almenningur með undirskriftum. Rökin fyrir þessu eru einföld, — réttaröryggi landsmanna krefst þess að lögum sé beitt og að um þá beitingu sé fjallað af sjálfstæðum, óhlutdrægum dómstólum. Lögbundin refsivarsla er ein af undirstöðum réttar- ríkis og menningarþjóðfélags. Gremja eða hneykslun vegna meðferðar nauðg- unarmála og refsiviðurlaga við þeim má ekki brjótast þannig fram, að það bitni á einstaklingum, sem eiga mál í rannsókn eða dómstólameðferð. Ef gripið er til undirskriftasafnana eða sllkra aðgerða, er hætta á, að vitund al- mennings um þýðingu og nauðsyn réttaröryggis brenglist, og til þess getur jafnvel komið fyrr eða síðar, að þeir verði of margir, sem vilja einhvers konar dómgæslu götunnar og gæta þess ekki, að mannréttindi eru meðal annars til að vernda menn gegn ofurvaldi meirihlutans. Til að koma fram lagabreyting- um á refsiréttarsviðinu, eins og á öðrum sviðum, eru sérstakar aðferðir aðrar en skyndiaðgerðir eins og þær, sem til var gripið I þessu máli. Umræða um dómsmál I dagblöðum er dauf hér á landi. Það er því þakkar- vert, að þrlr lagaprófessorar rituðu grein I dagblað og bentu á, að með undir- skriftasöfnuninni, er hér hefir verið gerð að umræðuefni, væri farið inn á hættu- lega braut. Mikil þörf er á, að umræðan verði meiri og að hún verði málefna- leg. Mun þá vonandi svo fara, að langt verði að bíða næstu undirskrifta- söfnunar, sem líkist þeirri, er hér hefur verið vikið að. í umræðunni á næst- unni væri gott að fram kæmi hjá þeim, sem skil kunna á þessum fræðum, hvað ráða megi af undirskriftatextanum um hugmyndir forgöngumannanna um þyng- ingu refsinga og aukna beitingu gæsluvarðhalds, en þessar hugmyndir kunna að bera vott um almenningsviðhorf, sem þyrftu að vera sem gleggst skýrð. Þór Vilhjálmsson 24
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.