Vera - 01.06.2000, Page 8
K A B L A R
A
H í B B L
Q L Q
krafa hins vegar ekki aðeins ná til líkama þeirra heldur einnig
ímyndar og stöðu þeirra í samfélaginu. Líkt og konum fannst körl-
um þeir ekki vera metnir út frá hæfileikum og gagnsemi í samfé-
laginu heldur eingöngu því hvernig þeir komu fyrir. „Munurinn
er hins vegar sá að karlar rísa ekki
upp líkt og konur gerðu undir lok
sjöunda áratugarins. Þeir eru ný-
byrjaðir að finna að eitthvað er að
en finnst þeir ekki geta talað um
það án þess að leggja karlmennsk-
una að veði.“
Kannski má segja að rót vand-
ans liggi einmitt í hræðslu karla
við að missa karlmennskuna.
Levine tekur undir með Faludi og
segir að bara það að gefa vandan-
um nafn sé erfitt fyrir karla. „Það
var ekki erfitt fyrir konur, við
eyddum miklum tíma í að gefa
öllu nafn. Mesta hættan liggur
kannski í því að konur neyði sinni
aðferð upp á karla og það sem er
eftir af byltingunni. Bylting karla á
eftir að eiga sér stað en ekki með
jafn dramatískum hætti og okkar
bylting."
„Kannski er hlutverk kvenna í
byltingu karla fyrst og fremst það
að standa ekki í vegi hennar. Við-
brögð margra kvenna þegar þær
fréttu um hvað Stiffed fjallaði var
að ranghvolfa í sér augunum og
spyrja í hneykslunartón: „Hverj-
um er ekki sama um vandræði
karla?“ en þessi viðbrögð komu
mér mjög á óvart,“ segir Faludi og
bætir við að það hljóti að vera
hagur allra ef körlum er gert kleift
að breyta lífi sínu til hins betra.
Erfiði hlutinn sé hins vegar að fá
karla til að ræða vandamálið opin-
berlega og gera það að málefni
sem fjallað er um á alvarlegum
nótum.
I Stiffed kemur greinilega fram
hversu viðkvæmir karlmenn eru
fyrir hlutverki sínu sem fyrirvinnu
og hversu sjálfsmynd þeirra skil-
yrðist af þeirri stöðu. „Það er svo
einkennilegt hvað karlmennskan
er viðkvæmt fyrirbæri, það má
líkja henni við illa saumuð jakka-
föt sem hægt er að rífa í burtu
hvenær sem er,“ segir Faludi. „Karlar jafnt sem konur í Bandaríkj-
unum hafa í milljónatali misst vinnuna undanfarinn einn og hálf-
an áratug og það er mjög erfitt fyrir hvort kynið sem er. Það efast
hins vegar enginn um kvenleika konu sem sagt er upp vinnunni.
Karlar sem misstu vinnuna sögðu
nær undantekningalaust við mig
að þeim fyndist þeir ekki vera
nógu miklir karlmenn. Það virtist
því allt snúast um hvort þeir væru
nógu miklir karlmenn og það var
mjög einkennilegt að upplifa."
Levine telur karlmenn samt
vera að breytast. „Líttu í kringum
þig og sjáðu alla karlana sem eru
einir að kaupa inn með börnin
sín. Eg hef orðið vitni að ákvörð-
unum fjölda karla um að velja
annan lífsstíl en feður þeirra
gerðu og þeir hafa samt enga
hugmynd um að þeir eru hluti
ákveðinnar hreyfmgar. Sem fem-
ínistar held ég samt að við getum
hjálpað þeim heilmikið svo breyt-
ingarnar megi takast. Okkur er
ekki vel við forréttindin sem þeir
hafa á upphafsreitnum sínum en á
sama tíma er mikilvægt að muna
að körlum og konum er eðlilegt
að vinna saman. Því held ég að
mesta áskorunin sem femínistar
standa frammi fyrir í dag sé að
tala um karla á femínískum en
um leið uppbyggilegum nótum.“
Faludi tekur undir þessi loka-
orð Levine og segir liugmyndina
um að allir karlar séu kúgarar enn
vera ofarlega í huga margra
kvenna. „Það kaldhæðnislegasta
við þetta allt saman er að kven-
réttindalireyfmgin hefur verið að
vinna samkvæmt forskrift karla;
það er að skilgreina óvininn og
sigra hann. Ef karlar vilja frelsi
geta þeir ekki notað andstæðu-
kerfi feðraveldisins um góða og
vonda karlinn, þeir eru feðraveld-
ið.Til að breyta samfélaginu þurfa
þeir að búa til ílóknara samfélags-
líkan, eitthvað sem byggir ekki á
persónulegum óvini, og það mun
þegar upp er staðið líka gagnast
kvennahreyfmgunni. “
Stiffcd: The Betrayal of the American Man
eftir Susan Faludi kom út í október árið 1999. Hér
má segja að Faludi taki upp þráðinn þar sem frá
var horfið í metsölubókinni Backlash frá árinu
1991. Faludi rannsakar ofan í kjölinn, og alltof
langt undir hann á köflum, hvers vegna banda-
rískir karlar eru reiðir, óánægðir og illa sviknir.
Skýringuna sé að finna í því að skilgreining
karla á karlmennsku hafi verið eyðilögð af hin-
um ýmsu utanaðkomandi aðilum. Hjörð mislitra
sauða sökudólga er dregin fram í dagsljósið,
allt frá samdrætti í rekstri stórfyrirtækja til sam-
dráttar herafla í kjölfar loka kalda stríðsins.
Faludi vinnur heimavinnuna sína vel og tekur
fjöldann allan af áhugaverðum viðtölum sem
hún byggir niðurstöður sínar á. Viðmælendur
hennar eru allt frá unglingsstrákum í hinu al-
ræmda Spur Posse gengi Kalíforníu til lágvaxna
vöðvatröllsins Sylvester Stallone, eða Sly eins og
hann er kallaður í bransanum. Höfundurinn vill
meina að bandarískir karlar nútímans séu van-
þroska strák-menni (male-boys) sem sé ófært
að ná fullum þroska þar sem þeir hafi aldrei
fengið nægju sína af ást og umhyggju. Þeir eru
því í krónísku stríði við lífið og illa vonsviknir.
Stiffed er ekki jafn beinskeytt og Backlash og
hennar helsti galli er kannski skortur á góðri rit-
stjórn. Faludi tekst hins vegar að þræða saman
sögu samfélagsins og einstaklinganna, þó að
óskandi hefði verið að hún gerði það í örlítið
styttra máli. Engu að síður er óhætt að mæla
með Stiffed ef þið viljið vera menningarlegar í
sumarfríinu, og ef sumarfríið er mjöööög
langt...
8 • VERA