Vera - 01.06.2000, Blaðsíða 54
A L!Ð L!R
i
k r a f t i k v e n n a
hvernig og hvort þörf sé fyrir fyrirtækið,
geta tekið hlutlaust mat, tekið sjálfa sig að-
eins út fyrir og horft á hugmyndina án þess
að binda það tilfmningum. Við reynum að
auka hæfni þeirra og þekkingu. Auðvitað
kemur hitt með, það fylgir. Ef þú hefur
virkilegt vit á einhverju og veist um hvað
þú ert að tala þá ertu öruggari með þig.
Konur gera meiri kröfur til sín um þekk-
inguna en karlar, vilja t.d. skilja hvað það er
að greiða launatengd gjöld á meðan körl-
um finnst nóg að skilja hugmyndina að
fyrirtækinu.”
Þetta er ekki fyrsta svona námskeiðið sem haldið
er um stofnun fyrirtœkja og fyrirtœkjarekstur,
hvað skilur þetta frá?
„AUÐAR verkefnið er að auka hæfni
fjölda kvenna á öllum aldri og þá sérstak-
lega tel ég að vinnan með stúlkunum muni
skila okkur virkilegum árangri tii iangs
tíma iitið. Við ætlum að fylgjast með þró-
un og afdrifum þeirra sem taka þátt í
FrumkvöðlaAUÐI og ekki síður Framtíð-
arAUÐI. Markmiðið er að fjölga fyrirtækj-
um í eigu kvenna, að auka hagvöxt og að
meira fjármagni verði veitt til fyrirtækja
kvenna.”
Netvæðing íslands
Þórhalla Sigmarsdóttir byrjaði í viðskiptum fyrir tilviljun.
Hún hafði saumað sér poka til þess að þvo í viðkvæman
þvott. Þegar hún þurfti að safna sér fyrir ferð til Ítalíu með
Kvennakór Reykjavíkur fór hún að selja hinum konunum í
kórnum þessar Þvottaskjóður, eins og hún kallar þær. Það
gekk svo vel að til varð hugmyndin um að selja þessa poka í
búðir. Nú er Þórhalla löngu hætt að anna eftirspurninni og
hefur fengið móður sína sér til aðstoðar við framleiðsluna.
Þórhalla er nýbyrjuð í 80% vinnu á auglýs-
ingastofu en hún hefur fleiri járn í eldin-
um. Fyrir nokkrum árum hóf hún samstarf
við Hrafnhildi Njálsdóttur. Þær kynntust í
gegnum rekstur hvor síns fyrirtækis.
Hrafnhildur er eigandi Jurtagulls sem
framleiðir krem og sápu úr náttúrulegum
íslenskum efnum. Hrafnhildi var boðið að
taka þátt í námskeiðinu FrumkvöðlaAUÐ-
UR. Hún bauð Þórhöllu með sér og nú eru
þær komnar af stað með nýja hugmynd.
Þær ætla að netvæða Island. Hér er þó ekki
átt við þá netvæðingu sem mest er rætt um
nú til dags. Nei, þær stöllur ætla að inn-
kaupanetvæða Island.
En hvaðan kom hugmyndin að netvœðingunni?
„Hrafnhildur hafði kynnst þessari vöru í
Bandaríkjunum. I fyrrahaust pantaði ég
svona net og kynnti þau svo á Handverks-
og smáiðnaðarsýningunni í Eyjafirði. Þar
seldi ég mjög vel af þessu neti,“ segir Þór-
halla og sýnir hversu handhægur pokinn
er. „Þegar ég kem heim með netið, tæmi
ég það og sting því ofan í vasann á tösk-
unni minni. Þetta er spurning um breyttan
hugsunarhátt og fyrsta skrefið í átt að um-
hverfisvænni siðum. Meðalfjöfskyldan
eyðir 5.000 krónum á ári í burðarpoka.
Plastpokarnir eru eins og hvert annað rusl
Hrafnhildur Njálsdóttir og Þórhalla
Sigmarsdóttir með innkaupanetið
sem þær vilja að íslendingar noti
í staðinn fyrir plastpokana.
og sjálf vil ég heldur verja peningunum í
annað,“ segir Þórhalla.
Bæði Þórhalla og Hrafnhildur hafa
reynslu af rekstri enda hafa þær rekið fyrir-
tæki sín í um fimm ár. Lærðu þær eitthvað
nýtt á FrumkvöðlaAUÐI?
Þórhalla svarar því játandi og segir að
meðal þess sem þær hafi lært á námskeið-
inu hafi verið að sjá hlutina frá nýjum hlið-
um. „Við lærðum að horfa út fyrir
rammann," segir hún og bætir við að þær
hafi verið hvattar til að hugsa stórt án þess
þó að sleppa varkárninni. „Leiðbeinend-
urnir brýndu okkur í að horfa á hlutina í
stærra samhengi og vera aðeins frakkari þó
auðvitað væri líka brýnt fyrir okkur að vera
varkárar og vaða ekki út í neina vitleysu.
Þetta námskeið var hvatning til að hugsa
stærra. Við getum gert miklu meira en við
höfum verið að gera.“
A það kannski við um konur almennt?
„Eg er alveg sannfærð um það. Allt of
margar konur sætta sig við of lítið. Ég var
komin með samning um að selja Þvotta-
skjóðuna við Nótatún, Hagkaup og Ný-
kaup og fannst það bara fínt. En maður á
ekki að láta staðar numið. Hver vara hefur
sinn líftíma og það kemur að ákveðinni
stöðnun. Aður en að því kemur verður
maður bara að vera búinn að skapa eitt-
hvað nýtt.“
Það hafa þær Þórhalla og Hrafnhildur
gert og við óskum þeim góðs gengis við að
netvæða Island.
54 • VERA