Vera - 01.06.2000, Blaðsíða 35

Vera - 01.06.2000, Blaðsíða 35
byrjaði nýlega að vinna aftur sem arkitekt eftir að hafa verið framkvæmda- stjóri Arkitektafélagsins í rúm þrjú ár. Þegar hún hætti því var hún beðin að vera for- maður félagsins og skoraðist ekki undan því fremur en öðru sem hún hefur verið beðin að gera. Formennsku í Arkitektafé- laginu fylgir stjórnarseta í Bandalagi ís- lenskra listamanna og hún er einnig full- trúi félagsins í stjórn Norræna byggingar- dagsins. Miklar annir hafa verið hjá félag- inu undanfarið í tengslum við Menningar- borgina, t.d. útgáfa bókar um íslenska byggingarlist. Olöf segist ánægð með að vera farin að starfa hjá Gylfa Guðjónssyni arkitekt þar sem hún sér m.a. um nýtt deiliskipulag fyrir hluta miðbæjarins. Olöf á tvær dætur, Veru 1S og Láru 8 ára, og býr með þeim í Artúnsholti. En hún er fædd og uppalin á Núpi í Dýrafirði og telur að sá uppruni muni alltaf fylgja sér. „Eg ólst upp í stórum systkinahópi, við systurnar erum átta og einn bróðir. For- eldrar mínir heita Aslaug Sólbjört Jensdótt- ir og Valdimar Kristinsson sem voru bænd- ur á Núpi á móti föðurbróður mínum og konu hans sem áttu heima á neðri hæð- inni. Þarna ólst ég upp í sveitasælunni, inn- an um dýrin og náttúruna og fjölda fólks því á staðnum var barnaskóli, héraðsskóli og kirkja. Foreldrar mínir voru mikið fé- lagsmálafólk, mamma var formaður kven- félagsins og pabbi oddviti og formaður skólanefndar og hélt bæði hreppsnefndar- fundi og skólanefndarfundi í stofunni heima, auk þess sem hreppsskrifstofan var á heimilinu. Föðurbróðir minn var org- anisti og fóru söngæfmgarnar fram á neðri hæðinni en kirkjukaffið var á báðum hæð- unum og þá var mikil hátíð. Það var því gestkvæmt á heimilinu, t.d. var algengt að fólk af Ingjaldssandi fengi að gista á leið sinni að heiman eða heim en þá var langt ferðalag út á Ingjaldssand. Sím- stöð staðarins var heima hjá okkur en póst- húsið á neðri hæðinni. Eitt af fyrstu skyldustörfum mínum var að sækja nem- endur í Núpsskóla í síma, en þá var enginn sími í skólanum. Miðstöðin var inni í stofu heima en símabox á ganginum. Ef nem- endur þurftu að hringja komu þau til okk- ar þegar símstöðin var opin ákveðinn tíma a dag, sátu á bekkjum á ganginum meðan þau biðu eftir að komast í sveitasímann." I Héraðsskólann á Núpi komu ekki bara nemendur úr nærliggjandi sveitarfélögum, þangað kom mikið af unglingum úr Reykjavík. Félagsmálastofnun Reykjvíkur hafði líka samning við skólann og voru dæmi þess að unglingar fengju að velja á milli þess að fara á Núp eða á unglinga- heimili fyrir sunnan. Segist Olöf hafa heyrt marga tala um að dvölin á Núpi hafi gert þá að mönnum. „Eg held að þessir krakkar hafi ekki endilega verið vandræðabörn. Mörg þeirra voru skapandi og skemmtilegir unglingar sem pössuðu ekki inn í skólakerfið eins og það var þá. A Núpi fengu þau að njóta sín því það var pláss fyrir alla í félagslífmu sem var með blómlegri tónlistar- og leiklistar- starfsemi.“ Sjálf gekk Olöf í barnaskólann á Núpi sem var í næsta húsi. Það var eins og í Hús- inu á sléttunni; einn kennari og allir ár- gangar í sömu stofu. Eftir barnaskólann lá leiðin í héraðsskólann. „Mér fannst mjög gaman í héraðsskólanum og kynntist fullt af krökkum, bæði úr sveitunum í kring og úr Reykjavík. Krakkarnir þaðan komu með alveg nýja menningu og nýja tísku inn í þetta litla samfélag. Þau voru mörg frá vel- stæðum heimilum og fengu póstsendingar með nýjustu tískufötunum úr Karnabæ sem okkur þótti gaman að fylgjast með.“ Að loknu landsprófi hélt Olöf í Mennta- skólann í Reykjavík. „Mér fannst vont að flytja úr samfélaginu mínu í þessa heims- borg sem mér fannst Reykjavík vera. Hrað- inn var svo mikill, allt háð tímasetningum og ekkert mátti út af bera. Mér fannst þetta yfirþyrmandi og leiddist óskaplega. Ég var tvo vetur í MR en var síðan svo heppin að Menntaskólinn á Isafirði var ný tekinn til starfa. Þangað fór ég og kunni afskaplega vel við mig og lauk þaðan stúdentsprófi 1976. Jón Baldvin Hannibalsson og Bryn- dís Schram stjórnuðu skólanum. Þau voru einstaklega gott fólk, sömuleiðis kennar- arnir sem þau fengu til starfa. Þetta samfé- lag hentaði mér miklu betur og ég átti miklu meiri samleið með krökkunum heldur en nemendum MR sem höfðu allt annan bakgrunn. I MI tók ég mikinn þátt í félagslífi og eignaðist marga góða vini sem ég á enn í dag. Jón og Bryndís hafa haldið mikilli tryggð við okkur. Þau eru aldrei svo upptekin að þau gefi sér ekki tíma til að hitta gamla nemendur MI við ýmis tæki- færi.“ Á ísafirði lagði Ólöf grunn að framtíð- arstarfmu með því að læra tækniteiknun við Iðnskóla Isafjarðar og fékk það metið sem valgrein til stúdentsprófs. Eftir ár í vinnu á teiknistofum í Reykjavík hélt hún í arkitektanám til Arósa sem tók sex vetur. Lokaverkefnið var teikning að tónlistarhúsi fyrir Isafjörð sem sameinaði tónlistarskóla og tónleikasal. Þegar hún flutti aftur til landsins ákvað hún að dvelja vetrartíma heima á Núpi. „Þetta var ómetanlegur vetur,“ segir hún, „Við vorum bara þrjú heima, ég og for- eldrar mínir, og ég komst aftur í tengsl við landið og náttúruna. Ég orti ljóð og skrif- aði leikrit á milli þess sem ég fór í göngu- ferðir og hjálpaði pabba við bústörfm." Enn eru ljóðin og leikritin í skúffunni en 3 5 VERA •
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.