Vera - 01.06.2000, Blaðsíða 59

Vera - 01.06.2000, Blaðsíða 59
J3 E um kynlíf, getnaðarvarnir og barneignir er hægt að nálgast það á ýmsa vegu. Það sem er einkum athyglisvert er að skoða þarfir ungs fólks (Bruce, 1987). Þegar Fræðslu- samtök um kynlíf og barneignir (FKB) byrjuðu með fræðslu og ráðgjöf fyrir ungt fólk um kynlíf, getnaðarvarnir og barn- eignir í Hinu húsinu árið 199S kom fljótt í ljós nauðsyn þess að geta fengið einhverja mynd af því hvað ungu fólki fyndist um slíka þjónustu. Ræddi ég við ýmsa hópa ungs fólks í Hinu húsinu og gaf það mér hugmyndir um þarfir þeirra. Eins hef ég rætt við nokkra hópa af ungu fólki, bæði á Akureyri og í Reykjavík, um viðhorf þeirra til þjónustu um getnaðarvarnir. Til að öðl- ast heildarmynd var hins vegar nauðsyn- legt að gera könnun meðal ungs fólks um þeirra viðhorf til þjónustu varðandi kynlíf og barneignir. Gerði ég landskönnun vorið 1996 meðal ungs fólks á aldrinum 17—20 ára sem ég nefndi Viðhorf ungs fólks til sér- hœfðrar þjónustu ó sviði kynlífs og barneigna. Alls voru 2500 í úrtakinu og svörun var um 70%. Þátttakendur í rannsókninni gátu fengið sendan til sín bækling um getnaðar- vörn í neyð eða tíu smokka í pakka. Var bæklingurinn sérstaklega gefmn út vegna þessarar rannsóknar og var hann styrktur af Schering og smokkarnir af Klasa hf. Sjálf rannsóknin var styrkt af Rannsóknarsjóði Háskóla Islands. Ég vil þakka þennan stuðning og öllu því unga fólki sem tók þátt í rannsókninni og lagði þannig sitt af mörkum til frekari þekkingar á þessu sviði. Þjónustan í dag Spurt var um þá þjónustu um getnaðar- varnir sem ungt fólk á kost á í dag innan heilbrigðiskerfisins. í ljós kom að 3% töldu hana vera góða, um fjórðungur að hún væri í lagi, en 43% að hún væri ekki nógu góð og 28% tóku ekki afstöðu. Þegar skoð- uð var afstaða þeirra sem höfðu nýtt sér þjónustu um getnaðarvarnir kom í ljós að það sem unga fólkið var ánægt með var '> vingjarnlegt viðmót (59%), fagleg fram- koma (51%), fullnægjandi upplýsingar (47%), stutt að fara (35%) og geta auð- veldlega tjáð sig (34%). Af þeim sem voru óánægð með þjónustuna voru 38% sem þorðu ekki að spyrja spurninga, 26% fannst kvenskoðun erfið, 24% gátu ekki I N A Ð A B V A R N rætt málin nógu vel, 12% fannst að ákvarð- anir hefðu verið teknar fyrir viðkomandi og 10% voru óviss um trúnað. Þegar spurt var um hvað mætti bæta vildu 64% að heilsugæslustöðin hefði sér- staka tíma þar sem væri opið fyrir ungt fólk og 83% vildu að starfræktir væru sér- stakir hópar fyrir ungt fólk þar sem hægt væri að ræða þessi málefni. Eins hafði 59% ungs fólks áhuga á því að geta farið á nám- skeið til að veita öðru ungu fólki fræðslu á þessu sviði. Meirihluti ungs fólks taldi auk þess að lækka þyrfti verðið á getnaðar- vörnum og selja þær á fleiri stöðum. Hvernig þjónustu um getnaðarvarnir vill ungt fólk? Það voru alls 92% þátttakenda í rann- sókninni sem sögðust vilja leita á sérhæfða móttöku fyrir ungt fólk um kynlíf, getnað- arvarnir og barneignir. Er það athyglisvert í ljósi þeirrar ákvörðunar nokkrum árum áður að loka Kynfræðsludeild Heilsuvernd- arstöðvar Reykjavíkur. Hvar er æskilegt að hafa þjónustuna? Alls 50% vildu hafa þjónustu um getn- aðarvarnir í sérhúsnæði. Felur það í sér að hafa móttöku um getnaðarvarnir á sérstakri göngudeild utan veggja hefðbundinna stofnana. Um þriðjungur kaus að hafa slíka móttöku innan veggja heilsugæslunnar og um 20% á öðrum stöðum. Þar af vildu 2% hafa slíka móttöku í skólum. Þjónusta um getnaðarvarnir fyrir ungt fólk. Hvar á hún að vera? í sérhúsnæði 50% Á heilsugæslustöðvum 30% Á öðrum stöðum 20% J R. Ástæður þess að ekki nema um þriðjungur þátttakenda vildi hafa þessa þjónustu innan veggja heilsugæslunnar geta verið marg- þættar. Það kom fram í rannsókninni að um helmingur vill ekki taka þá áhættu að hitta foreldra sína á slíkri móttöku, sem meiri líkur eru á að geti gerst á heilsu- gæslustöðinni en á annarri móttöku þar sem fjölskyldan hefur ekki vanið komur sínar. Þetta viðhorf gagnvart foreldrum hefur einnig komið fram í viðtölum við ungt fólk sem sýnir að til staðar er ótti gagnvart því að hitta foreldri eða foreldra á staðnum, eða einhvern annan sem þau þekkja. Það getur bæði átt við um einstak- ling á biðstofunni og þá sem starfa á heilsugæslunni. Annað atriði sem þarna getur skipt máli er að til staðar getur verið óvissa um hvort heimilislæknirinn greini foreldrum frá komu þeirra. Sýndi rannsóknin að 88% lögðu mikla áherslu á trúnað viðkomandi. Viðtöl við ungt fólk hafa einnig staðfest mikilvægi þessa þáttar. Það vakti athygli að aðeins 2% vildu hafa móttöku um getnað- arvarnir innan veggja skólans. Eru ýmsar fyrirmyndir um slíkt í Bandaríkjunum sem hafa reynst vel (Bearss, Santelli og Ppa, 1995). Þetta lága svarhlutfall er sérkenni- legt í ljósi þess að 81% vildu geta leitað á stað sem er nálægt þeirra heimili. Með því að hafa þjónustuna innan veggja skólans væri þjónustan gerð mun aðgengilegri fyr- ir ungt fólk.Talið er líklegt að svörunin hafi verið á þennan veg vegna þess að ungt fólk hefur nánast engar fyrirmyndir um slíkt í framhaldsskólum landsins þrátt fyrir að lög um framhaldsskóla leggi áherslu á heilsu- gæslu í þessum skólum. Rannsóknin sýndi að fleiri á lands- byggðinni vildu hafa þessa þjónustu ná- lægt heimili sínu en hin sem búsett eru í Reykjavík. Þetta virðist sérkennilegt þar sem heilsugæslustöðvar eru starfræktar úti um allt land. Þetta er hins vegar ekki sér- kennilegt í ljósi þess að það getur reynst erfitt að leita á heilsugæslustöð úti á landi vegna þess að um viðkvæm mál er að ræða og allir þekkja alla. I viðtölum við hópa af ungu fólki úti á landi hefur komið fram að það geti reynst auðveldara að fara suður til Reykjavíkur þegar t.d. þarf að fá greiningu á kynsjúkdómum. 59 VERA •
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.