Vera - 01.06.2000, Blaðsíða 28
A£L
U I A U
Gegn ofbeldi
og örbirgð
Heimsganga kvenna 2000
Árið 1995 sameinuðust öll samtök kvenna í Kanada í mikilli fundaherferð og tíu daga göngu gegn fátækt og ofbeldi.
Þessar kraftmiklu aðgerðir fengu mikinn hljómgrunn í Kanada og urðu kveikjan að hugmyndinni um víðtækar
aðgerðir kvenna um allan heim árið 2000. Heimsganga kvenna 2000 var kynnt á ráðstefnunni í Peking og þann
8. mars sl. hófst opinber undirbúningur um allan heim. Aðgerðunum lýkur með lokagöngu í New York 17. október.
4200 hópar og fjöldi einstaklinga í 150 þjóðlöndum hafa tilkynnt
þátttöku og fjöldi þeirra vex með degi hverjum. Aðgerðir eru af
ólíkum toga innan hvers lands og hver á sínum forsendum —
frumkvæðið að aðgerðunum er alls staðar í höndum kvenna. Þær
stefna allar að sama marki: að binda endi á fátækt og ofbeldi.
Sameiginleg aðgerð allra þjóðanna er að gangast fyrir undir-
skriftasöfnun í eigin landi gegn ofbeldi og örbirgð. Kröfugerð til
úrbóta verður lögð fyrir leiðtoga þjóða heims í sautján markviss-
um liðum og mun fulltrúi frá hverri þjóð afhenda Kofi Annan, að-
alritara Sameinuðu þjóðanna, undirskriftirnar í lokagöngunni í
NewYork 17. október. Vonir standa til að fjöldi undirskrifta verði
á annan tug milljóna. Ahersla er lögð á að heimsgangan sé friðar-
ganga og að viðhorf og skoðanir ólíkra kvennahreyfmga og félaga
séu virt.
Þátttakendur vona að aðgerðir þessar knýi Sameinuðu þjóðirn-
ar og aðildarlönd þeirra til markvissra aðgerða til að binda endi á
örbirgð og tryggja réttláta skiptingu auðæfa heims og jafnrétti
ríkra og fátækra, karla og kvenna. Einnig er krafist aðgerða til að
binda endi á það ofbeldi, bæði ljóst og leynt, sem viðgengst í garð
kvenna. Kröfurnar eru byggðar á sáttmála Sameinuðu þjóðanna og
framkvæmdaáætlun Kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Pek-
ing. Aðilar sameinast í kröfunni um uppgjöf skulda fátækustu
landanna við stærstu iðnveldi heims. Nánari upplýsingar (á ensku)
um heimsgönguna má fá á heimasíðunni www.ffq.qc.ca
Hvað gerist á íslandi?
Islenskar konur úr ýmsum samtökum hafa ákveðið að sýna konum
allra landa samstöðu og nota þetta tækifæri til að taka þátt í bar-
áttunni fyrir réttlátara samfélagi þar sem ofbeldi og misrétti hvers
konar er vísað á bug. Undirskriftasöfnun GEGN ÖRBIRGÐ OG OF-
BELDI er farin af stað og munu aðstandendur sjá til þess að und-
irskriftalistarnir komist á leiðarenda.
Hinn 24. október næstkomandi eru 25 ár liðin frá kvenna-
frídeginum 1975. Islenskar konur vilja minnast þeirra tímamóta
og blása til göngu og stórfundar í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þetta verð-
ur fagnaðarfundur þar sem íslenskar konur koma saman til að
finna mátt sinn og megin og styðja hver aðra, jafnframt því að líta
til kvenna annarra landa.
Nánari upplýsingar um undirskriftasöfnunina gefa
Guðrún Hannesdóttir, s. 553 6037, gudrunha@mmedia.is
og Eygló Bjarnardóttir, s. 567 5748, eglo@rsp.is
Kvenbiskup
Gertraud Knoll, sem er 41 árs biskup í mótmælendakirkju í
Austurríki, hefur nú tekið það ráð að fara í felur með börn sín
þrjú. Gertraud hefur gagnrýnt kynþáttahatur hægri öfgamanns-
ins Jörg Haider og flokks hans. Af þeim sökum hafa hún og
börn hennar orðið fyrir hótunum í síma og bréfleiðis frá
stuðningsfólki Haiders. I einu nafnlausu bréfinu stóð: „Það er
verst að Adolf skuli ekki lengur vera á meðal okkar. Þú og krakk-
arnir þínir ættuð að fara í gasklefann."
I viðtali við austurrískt dagblað sagði Gertraud að hún
hefði ekki ætlað að segja frá hvað stæði í þeim skelíilegu
f Austurrfki ofsótt
bréfum sem henni hafa borist eða ofbeldinu og kvenhatrinu
sem dynur yfir hana þegar hún svarar í símann en nú væri
henni ofboðið og kysi að fara í felur með börn sín, sem eru
9, 6 og 2 ára, því þau væru það mikilvægasta í lífi sínu og
þörfnuðust verndar. Þessi atburður hefur vakið upp við-
brögð annarra kirkjuleiðtoga sem vilja styðja Gertraud. Mik-
ill þrýstingur er á kaþólsku kirkjuna í Austurríki að sitja ekki
aðgerðalaus hjá á meðan ofsóknirnar dynja á Gertraud Knoll.
Fulltrúi ungra, róttækra kaþólikka sagði t.d.: „Ef við gerum
ekkert núna, verður þetta verra í framtíðinni."
28 • VERA