Vera - 01.06.2000, Blaðsíða 32
R R I F 1
f é I a g
u□g r a
£E ÍVI I N I S I A
Er tilgangur með Hlaðvarpanum,
og þá hver?
Árió 1985 keypti fjöldi kvenna hlutabréf í tveimur hús-
um sem við þekkjum undir nafninu Hlaðvarpinn. Eins
og fram kemur í viðtali við Helgu Thorberg i síðasta
tölublaði Veru var Hlaðvarpinn stofnaður með það
að markmiði að sameina i einu porti fjölbreyttan
kvennarekstur og kvennastarfsemi í þeim tilgangi
að skapa konum vettvang til að framkvæma hug-
myndir sínar. Þessi hugmynd hefur verið fram-
kvæmd út um allan heim og hafa Danmörk,
Noregur og Svíþjóð verið þar framarlega.
Kvennahús i þessum löndum hafa verið mjög
öflug og eru auðþekkjanleg enn þann dag í
dag. Þar starfa alls konar konur að alls kyns
málefnum og skammast sín ekkert fyrir það.
Ekki er þó hægt að segja það sama um kvennahúsið Hlaðvarpann,
að frátöldum Stígamótum, kvennablaðinu Veru og Fríðu frænku.
Ef gengið er fram hjá íslenska Hlaðvarpanum er ekkert sem minn-
ir á að þar sé um öfluga kvennastarfsemi / rekstur að ræða, þó svo
að gengið væri inn í hann. Fyrir þau ykkar sem ekki hafa komið
inn í húsið viljum við taka ykkur með á Grand-tour um Hlað-
varpann. I kjallaranum má bráðum finna kokk sem mun starfrækja
hefðbundinn veitingastað með koníaksstofu og öllu tilheyrandi,
þessi ágæti kokkur mun einnig þjónusta Kaffileikhúsið sem er
staðsett á 1. hæð hússins. Sal Kaffileikhússins er svo hægt að leigja
út á einkaforsendum, s.s fyrir fermingarveislur og aðalfund blóma-
sala. A 2. hæð eru skrifstofurVeru en þar fyrir utan er rúmlega 100
fermetra pláss og er því svæði skipt á milli karlkyns nuddara og
skrifstofu rektors Listahákólans, í einu horninu má þó finna litla
skrifstofu framkvæmdarstýru Hlaðvarpans. I risinu, sem er ágæt-
isrými, er geymsla fyrir lager Fríðu frænku og jólakúlur einhverr-
ar konu, sem enginn veit hvaðan komu og enginn nennir að henda
út!
3 2 • V E R A