Vera - 01.06.2000, Blaðsíða 45
alveg síðan þau voru hellisbúar eða bjuggu
á Mars og Venus. Búið er að greina algeng
hegðunarmunstur kynjanna og setja fram
þau svör sem leysa togstreituna þar á milli.
Við erum með ólík eðli, hvorugt eðlið er
betra eða verra en hitt, það sem þarf að
gera er að sætta sig við muninn og leika
rétt hlutverk. Þarna koma fram íhaldssamar
og þröngar kynjamyndir sem byggja í raun
á að viðhalda ríkjandi mismun kynjanna.
Slíkar útskýringar á lífmu geta virst þægi-
legar og tala oft inn í reynslu fólks, en
byggja á mjög einfölduðum rökum. Rökin
byggja gjarnan á tvíhyggju sem miðar að
því að skilgreina tilveruna út frá mismun
tveggja, menning — náttúra, karlar — konur,
karlar eru frá Mars — konur eru frá Venus,
karlar eru veiðimenn — konur safnarar,
karlar stjórnast af testosteron — konur af
estrogeni og svo framvegis. Ekki er litið til
sameiginleikans heldur einblínt á muninn.
Karlar eru frá Mars,
Konur eru frá Venus
I formála bókarinnar Karlar eru frá Mars,
Konur eru frá Venus kemur fram að rétta
svarið er talið í höfn, eins og stendur í inn-
ganginum: „Lestur þessarar bókar vekur
jafnvel undrun á því hvernig nokkrum
tekst að vera í góðu sambandi án hennar."
Höfundur eignar hvoru kyninu sína eigin-
leika og hliðarskref frá því þýðir að maður
tileinki sér eiginleika sem eru manni ekki
eðlislægir. Gray segir: „Ég vil fullvissa þig
um ' það er í besta lagi þótt þú finnir þig
í hlut erki hins kynsins. Ég legg til að þeg-
ar þú hefur ekki skilning á einlivcdn í bók-
inni gefir þú því annað hvort ekki gau.u
eða leitir dýpra innra með þér. Margir kari
ar hafa afneitað sumum karleiginleikum
sínum í þeim tilgangi að verða ástríkari og
hlýrri. A sama hátt hafa margar konur af-
neitað einhverjum af kveneiginleikum sín-
um til þess að sjá fyrir sér á starfsvettvangi
sem krefst karleiginleika." Þó að það sé allt
í lagi að finna sig í eiginleikum hins kyns-
ins þá er það samt á þeim forsendum að
maður afneiti með því kven- eða karleigin-
leikum sínum. Það hlýtur að leiða af sér að
þau sem ekki haga sér samkvæmt skilgrein-
ingunni um eðli kynjanna séu að afneita
eðli sínu.
Gauti Sigþórsson segir frá því í grein
sinni í bókinni Flögð og fögur skinn
hvernig þetta eðli sem sett er fram í bók-
inni um Mars og Venus eigi sér sögulegar
rætur í bandarísku gullöldinni. Um er að
ræða kynjaímyndir af velmegandi, heil-
steyptum kjarnafjölskyldum eftirstríðsár-
anna þegar efnahagurinn stóð í blóma og
ýmis lífsþægindi urðu mjög aðgengileg.
Fólk hélst gift hvert öðru, næg atvinna var
og veröldinni var snyrtilega skipt í Sovét-
ríkin og „hinn frjálsa heim“. Bókin um
Mars og Venus lýsir söknuði eftir þessu
ástandi, þar sem var einfaldari pólitískur
vettvangur, áður en sjálfsmyndir splundr-
uðust í ótal spurningar um vald, atvinnu,
sjálfstæði, menntun, jafnrétti, kynhneigð
og svo framvegis. Þessi einfaldleiki, sem í
raun hefur aldrei verið til, er uppmálaður
sem hið eðlilega norm mannsins þar sem
reynt er að gleyma hinum pólitíska líkama.
Bók eins og þessi hefur nefnilega að mark-
miði að þagga aftur niður þær raddir sem
samþykkja ekki einfaldaða tvískiptingu og
gera sér grein fyrir raunverulegum
margbreytileika mannlífsins.
I bókinni kemur í raun fram
lýsing á karlveldi þar sem
hefðbundin tvíhyggja ríkir,
karlinn er virkur en konan
óvirk, karlinn er skynsam-
ur en konan á valdi tilfinn-
inga. Marsverjarnir (karl-
kynið) meta völd, hæfni,
dugnað og árangur mik-
ils. Þeir eru alltaf að
reyna að sanna sig og
treysta völd sín. Þeir
meta sjálfa sig út frá
hæfni til að
ná árangri.
Þetta endur-
peglast í öllu
þeirra atferli, til
dæmh vinsældum á alls
kyns einkennisfatnaði,
þeir lesa ekki sálf.veði
tímarit heldur stunda
veiðar og kappakstur,
og þeir hafa áhuga á
hlutum frekar en
fólki. (Hér verður að
geta þess að Gray,
höfundur bókarinn-
ar, er sálfræðingur
og hlýtur því sam-
kvæmt þessum
lýsingum að vera
í mótsögn við
sjálfan
sig.) Marsverjar verða að ná markmiðum
sínum upp á eigin spýtur því sjálfstæði er
tákn dugnaðar, valds og færni. Vegna þessa
sjálfstæðis verða konur að vara sig á að
leiðrétta þá, því að ráðleggja karlmanni
óumbeðin er að telja víst að hann ráði ekki
við að leysa hlutverk sitt og það ergir hann.
Gildismat Venusardísanna (kvenkynsins)
byggir aftur á móti á ástinni, samskiptum,
fegurð og samböndum. Þær styðja og
hjálpa hver annarri, þurfa mikið að tala og
eiga djúp trúnaðarsamtöl. Venusardísirnar
eru allar sálfræðingar. Aðalmunur kynjanna
er sá að karlinn vill leysa málin en konan
vill tala um þau. Vegna þessa verður oft
misskilningur og óánægja.
Það er árangursrík framsetning á karl-
mennskunni, til að viðhalda valdinu á sín-
um stað, að segja að ekki sé í eðli karla að
taka tilsögn. Hvað getur kona sem ekki má
leiðrétta eða segja karlmanni til, verið ann-
að en óvirk og afstöðulaus? I bókinni er
gefið upp 101 atriði sem karlinn getur
gert til að skora stig hjá konunni. Þau
endurspegla áfram virkni karlsins en
óvirkni konunnar. Hér koma nokkur
þeirra:
• Sinntu henni óbeðinn í 20
mínúlur og veittu henni
óskipta athygli þína (ekki
lesa blaðið eða vera með
hugann við eitthvað
annað á meðan).
• Faðmaðu hana að
þér fjórum sinnum
á dag.
’ Aktu hœgt og ör-
_ ega, taktu tillit til
þess sem hún vill.
• Þú getur boðist til að brýna
hnífana í eldhúsinu.
• Þegar þú ert að hlusta ú hana
skaltu fullvissa hana um að j)ú
hafir áhuga með því að gefa frá
þér hljóð á borð við „ummm ó,
jamm og nú“.
• Hlœðu að bröndurum hennar og
kímni.
A eftir þessu 101 atriði sem
hann á að gera til að „halda
henni góðri“ segir að konan
þurfi að vera sérstaklega nær-
gætin og þakklát fyrir það sem
liann gerir fyrir hana. Konan
(hin óvirka) þarf ekki 101
viðmiðunaratriði til að
4 5
VER A •