Vera - 01.06.2000, Blaðsíða 33
B B I E X.
f é I ag
u n g r a
F F M I N I S I 4
Gamlar Rauðsokkur
Tvær félagskonur í Bríeti eru með í bígerð að gera heim-
ildamynd um Rauðsokkahreyfmguna og vilja hér með aug-
lýsa eftir efni sem gæti hjálpað við gerð myndarinnar. For-
vitin rauð, blaðaúrklippur, myndir, kvikmyndatökur, viðtöl,
útvarpsþættir, frásagnir, styrkir, fundabækur, minningar,
með öðrum orðum: Allt er vel þegið.
Vinsamlegast haftð samband við Hildi Fjólu í síma 698
0895 eða Ólafiu í síma 699 7918.Takk fyrir!
Píkutorfan
Verið er að þýða sænsku bókina Fittstim á íslensku. Bókin
hefur vakið gífurlega athygli á hinum Norðurlöndunum
og tími til kominn að skoða innihald hennar í íslensku
samhengi. Bókin er samansafn greina eftir unga, sænska
feminista sem vilja láta í sér heyra. Þar er allt að finna sem
ungir feministar telja sér viðkomandi. Já, allt. Kynfræðsla
í skólum, kröfur kvennleikans, kynferðisleg áreitni, kyn-
þroskaskeiðið, kvenaíþróttir, mömmur, lesbíur, húmor,
vinkonur, druslur og mikið meira. Bríeturnar Hugrún R.
Hjaltadóttir og Kristbjörg Kristjánsdóttir munu hamast
sveittar yfir þessu í sumar svo bókin geti konið út fyrir
jólin.
Þess má geta að Forlagið mun gefa bókina út. Bríet mun
skrifa inngang að bókinni og þar munu koma fram hug-
myndir okkar um ýmis málefni sem okkur finnst skipta
máli í íslensku samhengi við bókina. Ennfremur verður
bætt við greinum úr íslenskum veruleika og gaman verður
að sjá útkomuna.
Frá okkar bæjardyrum séð hefur stjórn Hlaðvarpans á undan-
förnum árum séð til þess að sú hugsjón sem í upphafi var lagt af
stað með fái ekkert pláss lengur og erum við í Bríeti til vitnis um
það. í tæpt ár höfum við reynt að halda vikulega fundi í Hlaðvarp-
anum og hefur það tekist í u.þ.b. helmingi tilfella, svo lengi sem
við tökum ekki plássið frá leikæfmgum, fermingarveislum,
blómasalafundum og öðrum mikilvægari málefnum. Við höfum
boðist til að rýma jólakúlugeymsluna í risinu og einangra loftið til
fundaaðstöðu fyrir félög sem okkar, það er að segja ungar konur
sem langar til að hittast svo hægt sé að framkvæma hlutina, jafn-
framt erum við búnar að bjóða borgun fyrir fundaaðstöðu. Já, við
erum sárar og bitrar.Við teljum okkur hafa fullan rétt til þess, sem
eina feminíska félagið á Islandi, að fá svo lítið sem fundaaðstöðu í
Hlaðvarpanum. Við höfum einnig reynt að sækja um að kaupa
hlutabréf í Hlaðvarpanum en það hefur ekki gengið, þrátt fyrir ít-
rekaðar tilraunir. Illa hefur gengið að fá skýr svör frá Hlaðvarpan-
um varðandi þessi málefni. I versta falli má líkja því við skrifræði
stórfyrirtækis, þar sem einn kallar á annan til svara, en í besta falli
til rekstrarörðugleika og peningaskorts.
Við köllum á skýra forgangsröðun sem sameinar lntgsjón og
peningapraksís, í stað þess að markaðslögmálin fái að tröllríða
upphaflegri feminískri hugmyndastefnu Hlaðvarpans. Eru eigend-
ur hlutabréfa Hlaðvarpans sammála þessari þróun? Voru þessi
hlutabréf keypt á sínum tíma, og Hlaðvarpanum bjargað frá nið-
urrifi, til þess eins að seinna meir rnyndi þar þróast hefðbundinn
arðbær atvinnurekstur? Bríet skorar á nýja stjórn Hlaðvarpans að
gera eittlivað í málunum! Nútíminn er engin afsökun!
KitchenAid
mest selda heimílisvélin í 60 ár!
• 5 gerðir hrærivéla í hvítu, svörtu, bláu,
rauðu, gulu eða grænu.
Fjöldi aukaliluta
íslensk handbók með uppskriftum fylgir
Lágvær og þrælsterk - endist kynslóðir
Sérstök brúðkaupsgjöf: Öll brúðhjón
fá glæsilega svuntu með ísaumuðum
nöfnum sínum og brúðkaupsdegi.
Þú gefur ekki gagnlegri gjöf!
KitchenAid einkaumboð á íslandi
Einar Farestveit &Co.hf.
BORGARTÚN 28 - S: 562 2900 & 562 2901
á óskalista
brúðhjónanna!
VER A •
33