Vera - 01.06.2000, Blaðsíða 51
N Æ B I N Q
Anna Eiísabet
Olafsdottir
Æ//// MtÚPU///
Hvítlaukur er sú tegund grænmetis sem hvað
lengst hefur verið ræktuð í heiminum. Segja
má að hvítlauksræktun sé jafn gömul græn-
metisræktun. Hvítlaukur var ekki eingöngu
ræktaður sem krydd heldur einnig sem
lækningajurt enda hefur hvítlaukur í gegn-
um tíðina verið talinn heilsubætandi og sagt
að hann hafi hreinsandi áhrif á líkamanum og
verndi fólk gegn ýmsum kvillum. Laukar inni-
halda brennisteinsefnasambönd en það eru
þau sem valda því að tárin renna úr augun-
um þegar hann er skorinn niður. Sé laukur-
inn eða skurðarhnífurinn bleyttur dregur úr
áhrifum þessara óþægilegu brennisteinsefna-
sambanda.
Hvítlaukur bætir heilsu
Hvítlaukur samanstendur af nokkrum smá-
laukum, svokölluðum rifum sem haldið er
saman með hvítu hýði. Hvítlaukurinn hefur
sterkt einkennandi bragð sem gerir hann sérlega
vinsælan sem krydd í matargerð. Hann er þó allra
lauka vinsælastur sem hollustuvara. í ráðlegging-
um sem taldar eru vera frá því 1500 fyrir Krist er
hvítlaukur ráðlagður við 20 mismunandi heilsufar-
svandamálum, m.a. höfuðverk og hálsbólgu. Sagan
segir að Hippokrates hafi ráðlagt hvítlauksneyslu gegn
hægðatregðu og einnig til að losa vatn úr líkamanum. Lou-
is Pasteur fullyrti árið 1858 að hvítlaukur hefði bakteríu-
drepandi áhrif. I seinni heimstyrjöldinni reyndu svo breskir
læknar að nota hvítlauk við meðhöndlun á skotsárum til að
hindra blóðeitrun og drep.
I hvítlauk, eins og öðrum lauk, er mikið af brennisteinssam-
böndum og er þar þekktast efnið allicin. Óskorinn er hvítlaukur-
inn lyktarlítill en þegar hann er skorinn, pressaður eða tugginn
breytist lyktarlausa efnið allicin í lyktarsterka, virka efnið allicin.
Þetta gerist fyrir tilstilli efnahvatans allinase. Allicin er efnið sem
veldur lykt og bragði ferska hvítlauksins. Allicin er hinsvegar afar
ostöðugt efni og breytist hratt í önnur brennisteinssambönd. I dag
er ekki full ljóst hver þessara efna eru mikilvægust þegar kemur að
heilsubætandi áhrifum hvítlauksins en sum efnasamböndin sem
myndast úr allicini eru einnig talin virk efni sem fer þó eftir því
hvaða áhrifum verið er að falast eftir hverju sinni.
Cóður gegn hjarta- og æðasjúkdómum
Margir borða hvítlauk bara vegna þess að þeim finnst hann góður
a bragðið. Aðrir borða hann eingöngu vegna trúar sinnar á heilsu-
bætandi áhrif hans. Hvítlaukur lækkar kólesteról í blóði og getur
einnig haft hagstæð áhrif á hlutfall „góðs" kólester-
óls (HDL) og „slæms“ (LDL), þannig að meira
verði af því „góða“ en minna af því „slæma". Þá
hefur hvítlaukurinn þau áhrif að samloðun blóð-
flagna minnkar, sem aftur veldur minni storknunar-
tilhneigingu blóðsins og þannig minni líkum á mynd-
un blóðtappa. Þessi áhrif hvítlauks eru sérlega heppi-
leg fyrir þá sem eru í áhættuhóp fyrir hjarta- og æða-
sjúkdóma og ættu þeir einstaklingar gjarnan að nota
hvítlauk reglulega í sinni matargerð. Fólk sem hefur of
háan blóðþrýsting ætti einnig að geta notið góðs af
neyslu hvítlauks því hann getur stuðlað að lækkun blóð-
þrýstingsins.
Góður gegn bakteríum og sveppum
Hvítlaukur er talinn geta hamið vöxt gersveppsins
Candida albicans sem veldur sveppasýkingu í melting-
arfærum manna og gjarnan í leggöngum kvenna. Fólk
með sveppi á tám hefur prófað að setja hvítlauksrif
rnilli táa en ekki þori ég að fullyrða um árangurinn!
Vegna bakteríuhemjandi áhrifa er hvítlaukur einnig
talinn góður gegn kvefi og flensum og segja margir
að hann styrki ónæmiskerfið. Kvefsæknir einstakling-
ar prófa gjarnan að setja hvítlauksbát í nefið á sér
þegar þeir kvefast og nefið stíflast. Ef hvítlaukur á
að hafa bakteríudrepandi áhrif verður að nota
hann ferskan.
Borðum hvítlauk rcglulcga
Allicin hefur andoxunaráhrif og getur því hindrað
myndun skaðlegra efna sem síðar geta verið upphaf að
myndun krabbameina. Kínversk rannsókn leiddi í ljós sam-
band milli hvítlauksneyslu og magakrabba þannig að þeir sem
neyttu hvítlauks reglulega fengu síður magakrabbamein en þeir
sem ekki gerðu það.
Hvítlaukur er sterkur og því getur verið að sumir einstaklingar
þoli liann illa, sérstaklega ef þeir eru viðkvæmir í maga. Einstaka
fólk hefur ofnæmi fyrir hvítlauk og verður því að láta vera að
borða hann.
Ekki er gott að ráðleggja hvað borða skal mikið af hvítlauk en
nokkur rif í matargerðinni daglega ætti að vera sársaukalaust, en
þó er með þetta eins og margt annað að hver verður að finna sína
leið og sín mörk og hvað honum/henni hentar best.
Mörgum líkar illa lyktin sem hvítlaukurinn veldur en ýmis hús-
ráð eru til. Eitt þeirra er að borða steinselju í sömu máltíð því klór-
ófyll í steinseljunni eyði lyktinni. Sumir hafa þó ráðlagt sterkt
kaffi, hunang, jógúrt eða mjólkurglas. Prófi nú hver fyrir sig.
VER A •
51