Vera - 01.06.2000, Side 23

Vera - 01.06.2000, Side 23
fé aftur inn í heilbrigðis- og mennta- kerfið og minnka atvinnuleysið veru- lega. Þetta eru allt grundvallaratriði. Fá- tækt barna var t.d. stórt vandamál og við höfum lagt áherslu á að aðstoða fólk, t.d. einstæðar mæður, við að komast út úr vítahring framfærsluað- stoðar sem átti m.a. rót að rekja til þeirrar reglu að þegar fólk fór af at- vinnuleysisskrá missti það húsnæðis- styrkinn. Konur komast heldur ekki út að vinna nema hafa trygga dagvist fyr- ir börnin. Það var gífurlega mikilvægt að koma þessum málum í lag og það þarf að gera árangur af þessu tagi sýni- legan því hann byggist á breyttu við- horfi þeirra sem stjórna landinu. Við þurfum að sýna að það er hægt að gera breytingar og bæta hag fólks þannig að öllum sé gert kleift að njóta velsældar. Það þjóðfélag sem við viljum byggja upp á að vera fyrir alla en ekki útiloka suma, eins og reyndin var áður. I þjóð- félagi þar sem hver hugsar einungis um sig verða til vandamál sem fyrr eða síð- ar verða dýr fyrir alla aðila, með auk- inni tíðni glæpa, ofbeldi og almennu virðingarleysi. Fólk bregst við óréttlæti á sinn hátt. Það eru enn þá næg verkefni fyrir Verkamannaflokkinn og við munum áfram leggja megin áherslu á heil- brigðis- og menntakerfið. Það er t.d. ekki hægt að sætta sig við skólakerfi sem útskrifar 16 ára gömul ungmenni án þess að þau kunni að lesa, skrifa og reikna. Þannig var ástandið orðið eftir 18 ára stjórnartíð ílialdsflokksins. Hvaða tækifæri hafa slík ungmenni til að takast á við lífið? Um leið heyrðu þau stöðugt talað um öll tækifærin sem byðust þeim sem hefðu peninga. Þannig breikkaði bilið óhuggulega á milli þeirra sem hafa tækifæri og hinna sem hafa engin tækifæri. Eiturlyfja- vandinn er hluti af þessu vandamáli en við teljum að ekki sé hægt að fást við hann öðruvísi en í samhengi við menntun, heilbrigði og atvinnumál," segir Glenda og bætir við að hún muni að sjálfsögðu bjóða sig fram til þing- mennsku í næstu kosningum og við vonum að henni takist að tryggja sér áframhaldandi þingsetu. Alþjóðavæðing vandi og verkefni í félags- og umhverfismálum ræða Glendn Jackson í málstofn Samfyllsingarinnar Eftir að kalda stríðinu lauk hefur vaxandi alþjóðavæðing haft mikil áhrif á stjórnmál, efnalega afkomu fólks, umhverfismál og félagsmál. Horfin er sú tíð þegar þjóðríkin voru skýrt afmarkaðar einingar, heimurinn hefur dregist saman og viðburðir hans, og afleiðingar þeirra, snerta örlög allra manna. Sem samfélag þjóðanna horfumst við í augu við alvarleg umhverfisspjöll, alþjóðlega hermdarverkastarfsemi, fólksflutninga og efnahagssveiflur. Þessari þróun verður ekki snúið við - tækninni fleygir fram og fjármagn flyst milli landa á heimsmarkaði - en eigi að síður verður að takast á við vandamál og nýta möguleika sem fylgja þessum breytingum. Við verðum að færa okkur alþjóðavæðinguna í nyt til að draga markvisst úr fátækt. Einn milljarður og þrjúhundruð milljónir manna — tveir þriðju hlutar konur — búa við sárustu fátækt. Níu hundruð milljónir eru ólæsar og óskrifandi. 30 þúsund börn deyja dag hvern úr sjúkdómum sem hægt er að koma í veg fyrir, eða úr næringar- skorti. Hvers vegna? Þessu fólki stendur hvorki til boða menntun né atvinna, ein- föld tækni er því framandi, harðstjórn heftir frelsi þess, styrjaldir og hamfarir valda skelfingu í lífi þess. Ekki nægir að við tökumst á við þetta af samúð með lítil- magnanum og af skyldurækni. Allar þjóðir verða að leggja lið í baráttunni vegna þess að þetta vandamál varðar okkur öll, og lausnin fæst því aðeins að við gerum okk- ur grein fyrir því að við erum lrvert öðru háð. Breska ríkisstjórnin hefur fylgt eftir lof- orðum sínum urn baráttu gegn fátækt með því að stofna nýja stjórnardeild um alþjóða þróunarstarf. Clare Short ráðherra sagði eitt sinn: „Kjarni hinnar nýju stefnumótunar er að beina þróunarstarfinu að því að upp- ræta örbirgð." Höfuð markmiðið er að þau sem búa við algjöra neyð séu helmingi færri árið 2015. Að lágmarksmenntun og heilsugæsla standi öllum til boða og að unnin séu raunhæf þróunarverkefni að nýju í öllum ríkjum - árið 2015. Sérfræð- ingar eru á einu máli um að þetta séu raun- hæf markmið og að hægt sé að ná þeim án þess að útgjöld fari úr böndum. Stjórnvöld ríkja sem hyggjast leysa þetta verkefni verða að sporna við spillingu. Aðstoð sem fellur í hendur ríkisstjórna sem skella skollaeyrum við umbótakröfum nýtist ekki þeim sem búa við fátækt. Alþjóðavæðingin hefur stóraukið upplýsingastreymi og þegnar sem búa yfir þekkingu munu krefjast þess að ráðamenn stjórni í þágu al- mennings og helgi sig baráttunni við vofu fátæktarinnar. Arið 1999 skuldbatt breska ríkisstjórnin sig til að auka útgjöld til aðstoðar við er- lendar þjóðir um 28 af hundraði að raun- virði næstu þrjú ár. Við vonum að önnur efnuð ríki feti í fótspor okkar. Þá reynum við að beita áhrifum okkar við mótun stefnu um úthlutun marghliða aðstoðar Evrópusambandsins. Og með Frumkvæði í þágu skuldugra og snauðra ríkja, beitum við okkur fyrir því að ríki sem leggja sig fram um að draga úr fátækt, í samræmi við ályktun fundarins í Máritíus, fái ýmist gefnar upp skuldir eða að greiðsluskilmál- ar lána þeirra verði bættir. Ef við beinum sjónum að milliríkjavið- skiptum þá er breska ríkisstjórnin áfrarn um að í gildi séu reglur sem tryggi frjáls og sanngjörn alþjóðaviðskipti. Sagan hefur sýnt fram á að verndarstefna er þrándur í götu framfara, og gengur þvert á hagsmuni þróunarríkja. Eigi að síður verður að gæta þess að frjáls viðskipti séu sanngjörn og að snauðustu ríkin njóti einnig góðs af þeim. Þetta er einnig til hagsbóta fyrir þróuð ríki sem þurfa á samvinnu þróunarríkjanna að halda svo hægt sé að leiða til farsælla VER A • 23

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.