Vera - 01.06.2000, Side 50

Vera - 01.06.2000, Side 50
Fleiri konur í stjórnendastöður Eimskipafélag íslands hcfur vakið athygli fyrir markvisst starf í jafnréttismálum innan fyrirtækisins og fékk m.a. viðurkenningu frá Jafnréttisráði sl. haust fyrir góðan árangur. Starfsemi fyrirtækisins byggist á hefðbundnum karlastörfum á sjó og við höfnina en í skrifstofustörfum hefur tekist að auka hlut kvenna í stjórnunarstöðum verulega. Hjördís Ásberg forstöðumaður starfsþróunardeildar Eimskipafélagsins segir nánar frá. „Þetta átak byrjaði árið 1993 en þá voru nánast engar konur í stjórnunarstöðum á skrifstofum félagsins. Hlutfall kynjanna var 40% konur og 60% karlar og okkur fannst eðlilegt að svipað hlut- fall væri í stjórnunarstöðunum. Félagið setti sér það markmið að breyta þessu með ráðningum og tilfærslu kvenna í stjórnendastöð- ur sem losnuðu. 1996 var svo samþykkt að stefnumarkandi við- fangsefni hjá fyrirtækinu væri að fjölga konum í stjórnendastöð- um um 10% á ári. Þessi markmið hafa skilað þeim árangri að nú eru níu konur í stjórnendastöðum á skipuriti fyrirtækisins þar sem var aðeins ein kona 1993. Stöðurnar eru 20 og hlutur kvenna er því orðinn 45%. Með þessu starfi erum við líka að breyta fyrirtæk- inu, það verður önnur menning þegar jafnræði ríkir á milli kynj- anna,“ segir Hjördís. Hún telur þetta verulegan áfanga í rétta átt og að eftirleikurinn verði auðveldari eftir þetta. „Það er glerþak hjá okkur eins og í svo mörgum fyrirtækjum. Enn hefur engin kona komist í toppstöð- urnar sem eru sex stöður framkvæmdastjóra hinna ýmsu sviða og forstjórastaðan. Við eigum þann slag eftir.“ Stelpurokk Á geisladisknum Stelpurokk eru tuttugu úrvals lög flutt af íslenskum konum, m.a. lög með öllum kvennarokkhljóm- sveitum sem starfað hafa hér á landi. Ef þú útvegar nýjan áskrifanda að VERU færðu geisladiskinn að gjöf! Hafðu samband í síma 552 2188 í byrjun ágúst og við sendum þér diskinn um hæl. Hjördís var fyrsta konan sem komst í stjórnendastöðu á skipuriti félagsins. Hún vann hjá fyrirtækinu 1986 til 1988 sem forstöðu- maður fjárreiðudeildar og byrjaði svo aftur 1991 sem forstöðu- maður gæðamála en tók við starfsþróunardeildinni 1992. í þeirri deild vinna hátt í 30 manns og undir hana heyra fræðslumál, launavinnsla, mannaráðningar, húsnæðismál, mötuneyti, skrif- stofurekstur, innkaup o.fl. Vegna eðlis fyrirtækisins segir Hjördís að konur fáist mun síð- j ur í ýmsar deildir, t.d. skiparekstur og flutningastarfsemi á hafnar- svæðinu. Þó að stjórnunarstöður á þessu sviði séu auglýstar sæki engin kona um. „Um nokkurra ára skeið höfum við tekið það fram í atvinnu- auglýsingum að konur séu sérstakega hvattar til að sækja um og ég býst við að það hafi haft hvetjandi áhrif. Við höfum náð mestum árangri á sviði fjármála, í hagdeildum og á kynningarsviði. Al- gengast er að konur séu með viðskiptafræðimenntun, eins og stærstur hópur stjórnenda, en þær hafa líka unnið sig upp innan fyrirtækisins. Nokkrir karlar í hópi stjórnenda eru verkfræðingar en engin kona með slíka menntun er nú í stjórnunarstarfi." Þegar Hjördís er spurð um jafnréttisáætlun segir hún að hún felist í markmiðum og áherslum sem sett hafa verið fram á þessu sviði til að leggja áherslu á jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna samkvæmt skilgreiningu laga frá Alþingi um jafnrétti á vinnustað. „Nú er t.d. lögð áhersla á að auka sveigjanlegan vinnutíma sem skiptir miklu máli fyrir fólk með börn, ekki síst konur. Liður í því átaki er að félagið hefur útvegað öllum tölvur til eignar heima hjá sér og er þar um að ræða 740 starfsmenn. Með þessu móti getur fólk unnið meira heima ef á þarf að halda, t.d. ef það þarf að fara heim vegna barna eða á eftir að ljúka verkefnum yfir helgi. I fyrirtækinu er líka lögð mikil áhersla á starfsþróun og hér er rek- in öflug fræðsludeild þar sem boðið er upp á fjölbreytt námskeið bæði sem tengjast starfmu og einnig mannlegum samskiptum.Við höfum t.d. boðið stjórnendum og mökum þeirra námskeið um samskipti og fjölskyldulíf í nútímasamfélagi og hafa þau verið mjög vinsæl. Fólk metur það mjög mikils að fá tækifæri til að þróa sig í starfi og læra meira,” segir Hjördís Asberg. EÞ 50 • VERA

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.