Vera


Vera - 01.06.2000, Qupperneq 52

Vera - 01.06.2000, Qupperneq 52
a í) -n Nýtum Nýlega bauð fjöldi fyrirtækja og stofnana dætrum starfsfólks í heimsókn í einn dag. Þetta var liður í verkefninu Auður í krafti kvenna sem er ætlað að örva konur til nýsköpunar og frumkvæðis í atvinnulífinu. Að verkefninu standa Nýsköpunar- sjóður atvinnulífsins, íslandsbanki auk Morgunblaðsins og DeloitteSTouche. Háskólinn í Reykjavík sér um framkvæmd verkefnisins og framkvæmdastjóri þess er Halla Tómasdóttir. Við spurðum hana hvaðan hugmyndin að því væri komin. „Frumkvæðið kemur frá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins. Þar tóku menn eftir því að aðeins 13% umsókna kom frá konum. Ef fjárhæðirnar voru skoðaðar var munurinn ennþá meiri því konurnar báðu upp til hópa um miklu lægri upphæðir. Nýsköp- unarsjóður vildi því búa til verkefni sem hvetti konur til þess að stofna fyrirtæki og ef þær hugsuðu um að stofna fyrirtæki til að hugsa stærra.“ Þekking skapar sjálfstraust Guðrúnu Pétursdóttur var falið að koma með tillögu að þessu en hún er eina konan í stjórn Nýsköpunarsjóðs. Ég efast um að Nýsköpunarsjóður hafi hugsað jafn stórt og raunin varð um Auði en Guðrún ákvað strax, þegar hún fékk þennan bolta upp í hendurnar, að missa hann ekki. Hún kom til Guðfinnu S. Bjarnadóttur rektors Há- skólans í Reykjavík og sagði: „Ég þarf ein- hvern þekkingaraðila með mér í þetta því ég trúi því að stærsta ástæðan fyrir því að konur hafi ekki sjálfstraust sé sú að þær vanti þekkingu. Sjálfstraustið kemur í gegnum þekkinguna." Guðfmna var þá ný- búin að ráða mig í vinnu og við þrjár fór- um til Bandaríkjanna. Þangað fórum við vegna þess að á u.þ.b. tíu ára tímabili hafði JJ B i k r a f t i k v e n n kraft kvenna Frumkvö&laAUÐUR ítarleg frumkvöblanámskeib fyrir konur sem þ^ hafa hafib eba hyggjast hefja atvinnurekstur- FjármálaAUÐUR Stutt almenn námskelb fyrir konur sem vilja auka hagnýta fjármálaþekkingu sína. j LeibtogaAUÐUR Námstefna fyrir konur í leibtogastöbum. hlutfall fyrirtækja í eigu kvenna þar hækk- að úr tólf prósentum í tæp fjörutíu pró- sent. Þetta vissum við og ákváðum bara að byrja á að kynna okkur það. Hjá okkur þremur fæddist svo stóra hugmyndin að því sem seinna varð AUÐUR í krafti kvenna." Nú vinna fjórar konur að verkefninu. Á vegum þess hefur þegar verið haldið eitt námskeið undir yfirskriftinni Frumkvöðla- AUÐUR, fimm slík námskeið til viðbótar standa fyrir dyrum. Einnig veröa haldin námskeið undir yfirskriftinni Fjármála- AUÐUR, LeiðtogaAUÐUR og Framtíðar- AUÐUR. Hið síðastnefnda er ætlað stúlk- um á aldrinum 13—16 ára en það, ásamt Dætrunum með í vinnunni, er ætlað að hvetja ungar stúlkur til athafna og frum- kvæðis og rækta með þeim sjálfstraust. í hverju felst verkefnið AUÐUR í krafti kvenna og hvað hafið þið verið að gera fram að þessu? „Fyrsta FrumkvöðlaAUÐAR námskeiðinu lauk nú í maí. Þetta er fjögurra mánaða námskeið sem ætlað er konum sem hyggj- ast hefja atvinnurekstur. Við munum halda tvö svona námskeið á ári. Ut úr þessu nám- skeiði komu átta hugmyndir að fyrirtækj- um. Það er engin leið að segja hvort þær lifa allar.Við viljum helst að þær sæki nám- skeiðið í hóp. Það gefur svo mikið að takast á um hugmyndirnar. Á námskeiðinu leggj- um við mikla áherslu á sjálfsskoðun og viljum að þær spyrji sig spurninga eins og: Hvernig manneskja er ég? Á ég að vera að framkvæma eða hentar hugmyndavinna mér betur? Hvað þýðir það? Hvers konar fólk þarf ég með mér? Frumkvöðlar hika oft við að taka inn manneskju til að sjá um reksturinn, en það er oft einmitt það sem þarf. Ef þinn styrkur er hönnun og hug- myndavinna þá er um að gera að nýta þann styrk en fá einhvern sterkari í reksturinn." I bæklingi um AUÐ í krafti kvenna kem- ur fram að aðeins 1 8% íslenskra fyrirtæka eru í eigu kvenna, samanborið við 25—38% fyrirtækja í löndum sem við ber- um okkur saman við. Er einhver skýring á því hvað við erum á eftir í þessu? Nú er gjarnan talað um að íslenskar konur séu svo ákveðnar og að við höfum sterka stöðu. „Ég held að það sé frekar erlenda ímyndin. Það var ímynd mín þegar ég bjó í Bandaríkjunum þar sem ég bjó í rúmlega átta ár. Ég sagði alltaf að íslenskar konur væru öðrum fremri og sagði öllum frá því hversu sterkar íslenskar konur væru. Það er niðurstaða mín núna, eftir að ég er komin aftur heim og hef skoðað þessi mál, að við séum mjög sterkar á heimilinu en vanti heilmikið uppá í atvinnulífmu og í at- vinnurekstri. Kcmur ábyrgðarkenndin í veg fyrir atvinnusköpun kvenna? Þegar kemur út á vinnumarkaðinn þá stöndum við langt á eftir konum í mörgum öðrum löndum og sérstaklega þeim lönd- um sem við viljum gjarnan bera okkur saman við.“ Er einhver skýring ú þessu? „Ég veit það ekki, við eigum erfitt með að skilja það yfir höfuð af hverju konur taka minni þátt í atvinnusköpun. Eflaust eru það sömu skýringar hér eins og annars staðar. Það eru bæði innri og ytri hindranir. Það 3f Viðtöl: Ingibjörg Stefánsdóttir 52 • VERA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.