Vera - 01.06.2000, Síða 55

Vera - 01.06.2000, Síða 55
A U Ð U Ei .k—r. a f t i k v e n n a Með fjörcgg í höndunum Nýlega urðu nokkrar umræður í blöðum um viðbrögð heilbrigðis- kerfisins við hugmyndum um að stofna nýtt fæðingarheimili. Sjö Ijósmæður hafa tekið sig saman til þess að stofna fæðingarheimili sem þær kalla Fjöreggið - Ljósmæðrastofa. Þrjár þeirra, þær Áslaug Hauks- dóttir, Margrét Bjarnadóttir og Jenný Inga Eiðsdóttir sóttu nám- skeiðið FrumkvöðlaAUÐUR nú í vor. Vera ræddi við Áslaugu og Margréti um þessar fyrirætlanir. Hvers vegna viljið J)ið stofna fœðingarheimili? „Konur á Reykjavíkursvæðinu hafa ekk- ert val um hvar þær ala börnin sín. Það vantar alveg," segja þær og bæta við að það eina sem boðið sé upp á sé hátækni- sjúkrahús eða fæðing í heimahúsi. Þær vilja líka ítreka að meðganga og fæðing sé ekki sjúkdómur. Hins vegar sé búið að sjúkdómsgera þetta ferli allt of mikið. „80% af öllum konum eiga að geta fætt eðlilega án nokkurra inngripa. Svo langar okkur til þess að vinna sjálfstætt sem ljós- mæður. Geta unnið með konunni eins og konan vill láta vinna með sér.“ Konurnar sem leituðu eftir þjónustu Fjöreggsins myndu fá samfellda þjónustu og val um það hvort þær ættu barnið heima eða á fæðingarheimilinu. Þær myndu þekkja ljósmóðurina sína og fá langt viðtal við hana strax í upphafl með- göngunnar þegar oft er mikil þörf fyrir stuðning og ráðgjöf. Sama ljósmóðir yrði með þeim í meðgönguvernd, í fæðingunni og í sængurlegunni. Þessi þjónusta yrði þó ekki fyrir konur í áhættuhópi. Áslaug, Margrét og Jenný Inga eru í hópi sjö Ijósmæðra sem ætla að stofna fæðingarheimili þar sem einnig verður boðið upp á þjónustu við heimafæðingar. Ætlum ekki að gefast upp Hjá Landspítalanum hefur verið boðið upp á þjónustu sem heitir Meðganga, fæðing, sængurlega (skammstafað MFS). Hún gengur líka út á nokkuð samfellda þjón- ustu. Þær Margrét og Aslaug segja að sú þjónusta anni ekki eftirspurninni. Það sé líka allt annað að vera inni á hátækni- sjúkrahúsi en á fæðingarheimili. Nú eru tvö ár síðan hugmyndin að Fjöregginu - Ljósmæðrastofu fæddist og hafa ljósmæðurnar sjö unnið mikla undir- búningsvinnu. Þær Margrét og Áslaug segj- ast gera ráð fyrir að átta til tíu konur myndu fá vinnu við fæðingarheimilið og segja að það hljóti að vera miklu ódýrara í rekstri heldur en hátæknisjúkrahús. Því gæti stofnun slíks fæðingarheimilis þýtt sparnað fyrir ríkið, segja þær og bæta við: „Heilbrigðisráðherra hefur marglýst hrifn- ingu sinni en samt hefur okkur enn ekki tekist að fá þjónustusamning við heil- brigðisyfirvöld." Ljósmæðurnar sjö eru þó ekki á því að gefast upp. Liður í því að und- irbúa stofnun fæðingarheimilisins er ein- mitt að mennta sig í því sem viðkemur rekstri og stofnun fyrirtækja. Þess vegna fóru þrjár þeirra á námskeiðið Frum- kvöðlaAUÐUR. Þær eru mjög ánægðar með námskeiðið og segja að meðal þess sem það hafi gefið þeim sé aukið sjálfs- traust og, bæta þær við: „Nú höfum við stuðning þeirra 25 kvenna sem tóku þátt í námskeiðinu." Við útskrift fyrsta hópsins á námskeiðinu FrumkvöðlaAUÐUR VER A • 55

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.