Vera - 01.06.2000, Side 56
A L!£>U R.
i
k r a f t i k v o n n a
Fylltist sjálfs-
trausti og
sigurvissu
scgir Bergþóra Reynisdóttir eigandi Liljunnar ehf
Hugmyndin um Liljuna ehf. var ein þeirra
sem fékk þriðju verðlaun í keppni um
bestu viðskiptaáætlunina á Nýsköpun
2000. Það er Bergþóra Reynisdóttir sem
stendur að Liljunni en fyrirtækið býður upp á heimageðhjúkrun. En í hverju felst heimageðhjúkrun?
„Ég vinn með fólki í þeirra eigin umhverfi
úti í samfélaginu, nota viðtalsmeðferð, fæ
fólk til að setja upp áætlun um eigin með-
ferð og skrifa dagbækur þar sem þau segja
frá líðan sinni. Þannig taka þau ábyrgð á
eigin lífi. Það eru geðdeildirnar og heilsu-
gæslustöðvarnir sem vísa á mig. Markmið-
ið er að koma í veg fyrir innlagnir á geð-
deildir og að minnka lyfjanotkun," segir
Bergþóra. Liljan sérhæfir sig í heimageð-
hjúkrun fyrir konur með alvarleg og/eða
langvinn geðræn einkenni og eru 85%
viðskiptavina hennar konur.
Fyrstu frumkvöðlaskrefin á Akureyri
Auk hjúkrunarfræðináms tók Bergþóra
tveggja ára sérnám í geðhjúkrun 1976
-1977. Síðan hefur hún unnið við geð-
hjúkrun, bæði á sjúkrahús-
um og heilsugæslustöðv-
um. Það var svo á Akureyri
árið 1993 að hún fékk leyfi
hjá Tryggingastofnun til að
starfa sjálfstætt við heima-
geðhjúkrun. Þar voru því,
eins og hún segir, „fyrstu
frumkvöðlaskrefin mín
stigin. Haustið 1995 fór ég
að kynna starf mitt á heilsu-
gæslustöðvunum í Arnes-
sýslu. Þar varð fljótt svo
mikið að gera að ég var
komin í 200% vinnu með
starfi á heilsugæsluselinu á
Laugarvatni. Þá var kominn
tími til að skoða hvert ég
ætlaði að stefna til framtíð-
ar.“ Það var svo í ágúst
1998 að Liljan ehf. var
stofnuð.
„Já, það var Anna Linda
dóttir mín sem átti hug-
myndina. Henni blöskraði
að ég fékk lægri laun eftir
20 ára starf hjá því opinbera
en hún nýútskrifuð úr laga-
deild.“ Bergþóra segir að
það að stofna eigið fyrir-
Bamavcrumar þrá Weleda
eru einótakar, enda tilotið gullverðlaun
fjyrir gæði mörg ár í röð.
Jurtirnar eru ræktaðar í iífjrœnum jarðvegi.
Nudd-, baðolíur og krem, án aukaetjna, ótrúlega
grœðandi og mýkjandi. Boóóakremið ólœr í gegn.
Fáðu prufju!
Weieda barnavörurnar
tjáót í Þumaíínu,
Heilóuhúóinu
og tjleótum
apótekum.
tæki hafi aukið sjálfstraust sitt. „Ég fór að
hugsa öðruvísi, að nú þyrfti ég að spjara
mig, vera sjálfstæð og treysta á sjálfa mig.
Stefnir hátt
Það var að frumkvæði endurskoðunarskrif-
stofunnar Deloitte&Touche, sem sér um
bókhaldið fyrir mig, að var ég boðin á
námskeiðið FrumkvöðlaAUÐUR. Mér
fannst námskeiðið alveg frábært. Þarna
ríkti einstakt andrúmsloft, kennararnir
hrósuðu okkur mikið og voru sjálfir bjart-
sýnir. Mér leið alltaf ofboðslega vel þegar
ég fór úr skólanum á kvöldin. Það má segja
að ég hafi fyllst sjálfstrausti og sigurvissu.
Eitt af verkefnunum var að útbúa viðskipta-
áætlun. Ég útbjó áætlun fyrir fyrirtækið
mitt og sendi hana í samkeppnina Nýsköp-
un 2000. Þar vann ég til þriðju verðlauna."
Að lokum, hvert er markmiðið? Hverju viltu hafa
náð með fyrirtœkið eftir 10 ár?
„Ég sé fyrir mér að ég verði komin með
verkefni um allt land, búin að opna útibú á
Norðurlöndum, í Bretlandi, jafnvel í Aust-
ur-Evrópu og ráða fagfólk til starfa. Þá get
ég ferðast á milli landa og stjórnað útibú-
unum,“ segir Bergþóra, hlær dátt og bætir
við: „Málið er að hafa nógu stóra drauma.
Hugsa stórt og stefna að því.“ Hún bætir
því við að ef ég hefði tekið við hana viðtal
í vetur þá hefði ég verið að tala við allt aðra
konu. „Nú ertu að tala við konu sem er full
af bjartsýni og trúir á sjálfa sig.“