Vera - 01.06.2000, Side 61

Vera - 01.06.2000, Side 61
Umræða um kynlíf virðist oft einkennast af miklum öfgum. Lítið fer fyrir umræðu um heilbrigt kynlíf og hvernig eigi að byggja upp góð og gefandi samskipti. Mik- ilsvert er að einstaklingurinn geti notið þess að vera kynvera og geti á eðlilegan hátt deilt hugsunum og tilfmningum sín- um með öðrum einstaklingi. Hann geti sjálfur haft þá þekkingu, viðhorf og færni sem þarf til að geta tekið heillavænlegar ákvarðanir í kynlífi sínu. Kynlífið, ef rétt er að því staðið, á að vera eitthvað gott, skemmtilegt, fjölbreytt og byggja okkur upp sem kynverur. í þessari áherslu felst mikilvægi forvarnarstarfsins á þessu sviði. Það er ekki nægjanlegt að koma í veg fyrir kynsjúkdóma og óráðgerðar þunganir heldur þarf að byggja upp einstakling sem getur myndað heilbrigt kynferðislegt sam- band við annan einstakling. Heimildir: Bearss, N., Santelli, J.S. og Papa, P. (1995). A pilot program of contraceptive continuation in six school- based clinics. Journal of Adolescent Health, 17(3), 178-183. Bruce, J. (1987). Users' perspectives on contraceptive tech- nology and delivery systems. Technology in Society, 9 :359-383. Council of Europe (1998). Recent demographic develop- ments in Europe. Strasbourg: Council of Europe Publishing. Gissler, M. (1999). Aborter I Norden (Statistical Report 10/1999). Helsinki: STAKES. Landlæknisembættið (1999). Tíðni fóstureyðinga 1976-1998. Óbirt handrit. Lög um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir. Stjórnartíðindi A nr. 25/1975. Sóley S. Bender (1999). Könnun ó viðhorfum ungs fólks til sérhœfr- ar þjónustu á sviði kynlífs og barneigna. Óbirt handrit. A Ð A B y A B N 1 R ÖKU $KOUNN I MJODD Þarabakka 3 • 109 Reykjavík Kennsla til allra ökuréttinda, almennt ökupróf og bifhjólapróf. Aukin ökuréttindi á leigubíl, hópferðabíl, vörubíl og vörubíl með eftirvagn. Kennsla hefst aftur að loknu sumarleyfi þann 16. ágúst. Síðan byrjar nýtt námskeið á hverjum miðvikudegi. Góð kennsluaðsta, frábærir kennarar Fagmennska í fyrirrúmi, leitið upplýsinga. Sfmi: 567 0300 netfang: okufel@simnet.is Kynlífsráðgjöf í Hinu Húsinu Hitt húsið, Aðalstræti 2, Reykjavík er upplýsinga- og menningarmiðstöð ungs fólks á aldrinum 16 til 25 ára. í vistlegu herbergi í húsinu hafa Fræðslusamtök um kynlíf og barneignir (FKB) aðstöðu og hafa opið á mánudögum kl. 16 til 18. Ráð- gjöfin er veitt af samstarfshópi hjúkrunarfræðinga, Ijósmæðra og iækna. Hægt er að hringja alla daga í símboða 842 3045 til að ná sambandi við ráðgjafa. Gerð eru þungunarpróf og hægt er að fá neyðargetnaðarvörn ef þörf krefur. Tilgangurinn með starfi hópsins í Hinu húsinu er að veita ungu fólki fræðslu og ráðgjöf um kynlíf, getnaðarvarnir og barneignir og að vinna með ungu fólki að verkefnum um kynheilbrigði. Samvinnan miðar að því að bæta fræðslu og ráðgjöf til ungs fólks um getnaðarvarnir og öruggt kynlíf. Einnig hefur verið útbúið kynningar- og fræðsluefni, m.a. á heimasíðu FKB, www.mmedia.is/fkb Síminn í Hinu húsinu: 551 5353 - Sími FKB: 561 6061 VER A • 61

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.