Vera - 01.06.2000, Síða 64

Vera - 01.06.2000, Síða 64
AUGLYSING Liyfjuírisöjlayjr sjyjjjlsjJ'ar o-£ n\]úng ..£>Io/jjji/rjolíarxj5i, -pro:poIJ3.ö» d.romjj;jyyrrjujj=jjjy3. Úrdrættir úr erindum sem fiutt voru á ráðstefnu vísittdamattna og áhugafólks um líknattdi áhrif afurða bi/flugttabúsitts í Vattcouver 1998. Frá fornu fari hafa afurðir býflugnabúsins verið notaðar til að koma í veg fyrir, lækna eða endurhæfa líkama okkar, hug eða sál meðan sjúkdómar herja eða eftir að bata hefur verið náð. Öll læknislyf sem notuð eru hafa ákveðna lyfjafræðilega eiginleika sem háðir eru efnasamsetningu þeirra. Með öðrum orðum þá er það efnasamsetningin sem gefur eiginleikana og eiginleikarnir sýna okkur best hvernig lyfið virkar eða hvernig má færa sér það í nyt. Afurðir býflugunnar eru samansettar af ótrúlega mörgum og fjölbreyttum efnum og af þeim orsökum er uppbygging þeirra og eiginleikar mjög margvíslegir. Blómafrjókornin eru karlkynfrumur blómanna og eins og allar aðrar kynfrumur í náttúrunni innihalda blómafrjókorn öll efni sem ómissandi eru til að vernda og glæða nýtt líf. Blómafrjókorn innihalda allar nauðsynlegar amínósýrur, mjög mörg mismunandi vítamín, ensím og kolvetni auk fleiri efna. Flestir lyfjafræðilegir eiginleikar blómafrjókorna tengjast starfsemi lifrarinnar og niðurbroti og meltingu próteins í líkamanum. Propolis er önnur afurð býflugnabúsins.sem inniheldur meira en 300 mismunandi efni. Meira en 70% þessara efna eiga rætur að rekja til aðskiljanlegra brumtegunda einkum þó til brums ýmissa víðitrjáa. Vísindamenn víðs vegar að úr heiminum hafa fundið meira en 60 lyfjafræðilega eiginleika tengda þessari afurð býflugnabúsins. I stuttu máli er propolis mjög góð vörn fyrir allan þekjuvef og innþekju mannslíkamans og er góður hvati fyrir ónæmiskerfið. Drottningarhunang eða drottiningarmjólk eins og það er stundum kallað er álitin besta fæða sem móðir jörð hefur upp á að bjóða. Eins og blómafrjókornin inniheldur það öll nauðsynleg næringarefni sem ómissandi eru til að viðhalda lífi. Hin margvíslegu áhrif sem það hefur á heilsufar manna skýrist fyrst og fremst af því hversu auðugt það er af næringarefnum og öðrum virkum efnum. Að mati flestra eru mikilvægustu áhrif þess endurnýjun og enduruppbygging frumna líkamans sem lengir líf og eykur kraft neytandans. Áhugavert er að öll efni sem býflugan safnar eða framleiðir sjálf hafa mjög ákveðna og sterka eiginleika til að bera. Meðal þeirra eiginleika sem má nefna og ofantaldar afurðir býflugnabúsins hafa til að bera eru: Sótthreinsandi eiginleikar, vörn gegn veiru- sýkingum, vörn gegn sníkjudýrum, sveppaeyðandi áhrif, nærandi og styrkjandi áhrif á alla starfsemi frumnanna. Undirstöðuatriði í notkun afurða býflugna- búsins við krabbameini, MS sjúkdómsins og AIDS. Allar gerðir læknandi meðferða, sérstaklega þær sem byggðar eru á náttúrulegum aðferðum, byggja á eftirtöldum undirstöðuatriðum: Framkvæma verður fullkomna sjúkdómsgreiningu á öllum stigum meðferðar, bæði byggða á líkamlegu ástandi, orku sjúklingsins og þeim upplýsingum sem er að hafa. Virða verður einstaklinginn fullkomlega, það þýðir að sérhver sjúklingur fær meðferð í samræmi við hans ástand sem er einstakt. Meðferðin má ekki skaða meira en hún bætir og alls ekki trufla starfsemi annarra Ifffæra líkamans. Meðferðin verður að vera virk en jafnframt eins varfærnisleg og hægt er. Endurnýjun skaðaðra frumna, vefja eða líffæra er ein leið en önnur og betri er að styrkja heilbrigðu frumurnar með margvíslegum velþekktum aðferðum. Þær fara svo að hafa jákvæð áhrif á veiku frumurnar eða jafnvel koma í stað þeirra með hjálp sálræns endurmyndunarferlis. Meðferð með afurðum býflugnabúsins sem framkvæmd er af góðum meðferðaraðila getur gert kraftaverk og læknað þúsundir manna. Af hverju? Vegna þess að afurðir býflugnabúsins innihalda kjarna allra náttúrulyfja sem unnin eru úr jurtum og þær hafa alla eiginleika sem nauðsynlegir eru til að vernda, örva og endurnýja heilsu okkar. Heila- og mænusigg (Multiple Sclerosis) er mjög flókinn sjúkdómur í tauga- og ónæmiskerfinu. Hugsanlega eru orsakir hans; veirusýking í taugakerfinu af völdum veiru eins herpes veirunnar, erfðafræðilegur galli sem gerir menn viðkvæmari en ella fyrir sjúkdómnum, einhverjir þættir í ósjálfráða ónæmiskerfinu bila, sjálfseitrun með eitri sem þarmarnir framleiða og gefa frá sér og þunglyndi. Einkenni sjúkdómsins eru mjög mismunandi eftir einstaklingum og fara eftir þvf hversu sterkt fólk er fyrir, andlegri hæfni þess til að komast hjá þunglyndi, eftir lengd og styrkleikastigi sjúkdómsins auk fleiri atriða. Meðferð með afurðum býflugnabúsins hefur í tilfelli MS sjúklings eftirfarandi markmið: að styrkja ónæmisviðbrögð líkamans, að byggja upp frumuhimnurnar, minnka eituráhrif frá þörmunum (einkanlega stóru görnunum), auka gæði blóðsins, magn þess og bæta blóðrásina, bæta starfsemi adrenalínkirtlanna, nýrna, lifrar, hjarta og hóstakirtils og þar með hjálpa tauga- kerfinu og í raun öllum líkamanum. Blómafrjókorn bæta starfsemi lifrarinnar, styrkja hjartað og innihalda allar þær amínósýrur sem eru nauðsynlegar taugakerfinu. Propolis er velþekkt um allan heim fyrir hvetjandi áhrif sín á ónæmiskerfið. Það örvar starfsemi hóstakirtilsins, heldur niðri veirum, dregur úr bólgum, stuðlar að endurmyndun og vinnur gegn eitrunaráhrifum. Það styrkir frumuhimnur líkamans og vinnur vel gegn sindurefnum. Sannað hefur verið að drottningarhunang bætir frumuendurmyndun líkamans og vinnur þarafleiðandi gegn sjálfsofnæmistengdum sjúkdómum og eykur líkur á langllfi. Það er hin fullkomna fæða móður náttúru og er undirstaða hinnar stórkostlegu þróunar býflugnanna síðastliðin 600.000 ár. Skammtar og önnur hagnýt atriði. Meðferð gegn krabbameini með afurðum býflugnabúsins. Fyrst af öllu er best að útiloka eða I það minnsta draga úr áhrifum þekktra krabbameinsvalda sem eru; erfðafræðileg tilhneiging til krabbameins, rangt mataræði (of mikil neysla kjöts, feitrar mjólkur, svínafitu, unninnar matvöru, rotvarnar- efna og of lítil neysla vítamína, andoxunarefna, trefja og ferskrar óunninnar matvöru), veikt ónæmiskerfi, sállíkamleg vandamál eins og of miklar áhyggjur, þráhyggja, þunglyndi, depurð, kvíði, skortur á viljastyrk og orku til að takast á við vandamál daglega lífsins. Einnig má nefna alls konar unnin efnasambönd, geislavirk efni, margskonar vírusar, bakteríur, sníkjudýr í þörmunum og of hæg starfsemi margra líffæra. Auðvitað er besta meðferðin sú sem tekur mið af einstaklingnum og er mismunandi frá einu sjúkdómstilfelli til annars en það er hægt að nefna nokkrar grundvallarreglur: Afurðir býflugnabúsins ætti alltaf að neyta ferskra, sérstaklega drottningarhunangs og blómafrjókorna. Propolis vinnur mjög vel gegn og á æxlum og ætti að taka inn á hvern þann hátt sem mögulegt er, hrátt, í alkóhóllausn, í stikkpilluformi eða bera propoliskrem á líkamann. Lækningajurtir og aðrar óhefðbundnar lækningaaðferðir ætti að nota með tilliti til hinna einstöku aðstæðna sérhvers sjúklings. Góð sálræn meðferð getur líka gert kraftaverk og hvetja ætti til umræðu um ást á náttúrunni, aukna bjartsýni, birtu og ástæður þess að vilja lifa lengur og heilsusamlegar. Mataræði er ekki síður mikilvægt. Best er grænmetisfæði með fersku 100% lífrænt ræktuðu grænmeti sem er fullt af Kfsorku og hreinsar líkamann á allan mögulegan máta. Meðferð með afurðum býflugnabúsins gegn AIDS. Mikilvægasti þátturinn í meðferð við AIDS er að styrkja og efla ónæmiskerfi Ifkamans. Afurðir býflugnabúsins, sem innihalda þúsundir náttúru- legra efna geta styrkt frumuuppbyggingu og jafnframt starfsemí alls líkamans. Tilraun sem gerð var f Constanta í Rúmenfu sannaði að notkun propolis og drottningarhunangs getur verulega hjálpað við meðferð alnæmis. Mikilvægt er að berjast ekki beinlfnis gegn veirunni heldur fyrst og fremst styrkja líkamann og sálina á allan þann hátt sem mögulegt er. Þýtt af Ragnari Þjóðólfssyni http://www.saunalahti.fi/~apither/files/Pharmabs.zip

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.