Vera - 01.06.2000, Síða 66
B LL
JQ—8-
N D
Merkar korur á ráðsteírin
nm trn og vísindi á nýrri öld
n
Á alþjóðlegri ráðstefnu um trú og vísindi
sem haldin verður dagana 5.-8. júlí í
Reykjavík og á Þingvöllum undir yfirskrift-
’ inni Faith in the Future eru tvær erlendar
Nancey Murphy konur meðal frummælenda og af þremur
frummælendum frá Islandi eru tvær konur,
þær Sigrún Aðalbjarnardóttir prófessor og Ástríður Stefánsdóttir
læknir. Ráðstefnan er haldin að tilstuðlan Þjóðkirkjunnar og Framtíð-
arstofnunar í samvinnu við Heimskirkjuráðið (World Council of
Churches) og Samtök um eflingu vísinda í Bandaríkjunum (Americ-
an Association for the Advancement of Science). Á ráðstefnunni verð-
ur leitast við að taka afstöðu til mikilvægra spurninga í samtímanum
er bæði varða trú á framtíðina — og trú í framtíðinni.
Bandaríski trúarheimspekingurinn Nancey Murphy, er önnur er-
lendu kvennanna. Hún er fædd 1951 og er prófessor í kristinni heim-
speki við Fuller Theological Seminary í Pasadena í Kaliforníu. Nancey
er með doktorsgráðu í vísindaheimspeki frá University of California í
Berkeley og einnig í guðfræði og trúarheimspeki frá Graduate
Theological Union í Berkeley. Nancey hefur skrifað ellefu bækur, sum-
ar í samvinnu við aðra, um trú, vísindi og heimspeki og þróun þeirra
í framtíðinni. Fyrsta bók hennar,Theology in theAge of Scientific Rea-
soning (1990) hlaut viðurkenningu bandarísku trúarakademíunnar
(the American Academy of Religion) og Templeton Prize verðlaunin
sem veitt eru fyrir bækur um guðfræði og vísindi.
Hin erlenda konan sem er frummælandi á ráðstefnunni er Dr. Sunita
Gandhi. Hún hlaut grunnmenntun í skóla foreldra sinna, City
Montessori á Indlandi, sem er stærsti einkaskóli í heimi með yfir
23,000 nemendur á síðasta skólaári. Skólinn nýtur alþjóðlegrar virð-
ingar fyrir kennsluaðferðir þar sem sérstök áhersla er lögð á siðferði-
leg gildi og alheimshugsun. Nánari upplýsingar um skólann má fá á
slóðinni www.cmseducation.org. Sunita starfar mikið með foreldrum
sínum og hefur stofnað 40 City Montessori skóla á Indlandi og einn
í Prag. Hún er stofnandi samtakanna DEVI (Dignity, Education, Vision
International) á Indlandi sem vinna að því að efla menntun í fátæk-
um samfélögum.
Sunita er doktor frá Trinity College í Cambridge og sl. tíu ár hefur
hún starfað í Alþjóðbankanum í Washington við menntunar- og þró-
unarmál í ýmsum löndum. Hún er nú í tímabundnu leyfi frá þeim
störfum til að sinna samtökum sem hún stofnaði fyrir þremur árum,
The Council for Global Education. Tilgangur þeirra er að vinna að
þróun náms þar sem áhersla er lögð á fjögur grunnatriði menntunar:
gildi sem höfða til alls mannkyns, (universal values), hnattrænan
skilning, (global understanding), góðan árangur (excellence) og
þjónustu (service). Nánari upplýsingar um samtökin fást á slóðinni
www.globaleducation.org.
Fyrirlestrarnir fara fram í Háskólabíói fyrir hádegi ráðstefnudagana
og eru öllum opnir.
Naermgfyriralla
^œringan
mcJlrcíj,
AppeUlm
lOpoiiiomjwsírá.’-E
Heit nýjungfrá Nupo
Kœrkomin viðbót í Nupo fjölskylduna
Næring fyrir alla
&S!!K7Mí*
h
i!Wl)
Aspargessuppc
vupo
I PfÝ B ^fitigarduff
J V/Lt intð trefjum
*—Kakóbntgó
'»íi • 1J4UX 16 hluuunsUtr
isa^jfcÉgsaaa^
i®«,Uþ.b.
JjLAISK^
Hvidovre-Kurcn
Ihidovre-Kuren
Kuliíatii^
rrnlunnu
-XJ*
10 portionspostr a 32 g
'..........................^