Vera - 01.06.2003, Qupperneq 13

Vera - 01.06.2003, Qupperneq 13
Guðmundur Oddur Magnússon er prófessor við Hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla íslands. Sérsvið Guðmundar Odds er grafísk hönnun, máttur myndmálsins og beiting þess. Hann hefur verið áberandi í þjóðmálaumræðunni und- anfarin ár enda einn glöggskyggnasti sérfræðingur þjóðar- innar þegar kemur að því að greina auglýsingaherferðir og myndmál hverskonar. Það voru hinsvegar ummæli hans um „klámvæðingu almannarýmisins" og „plebbisma" í auglýs- ingaherferð Flugleiða sem fangaði athygli VERU. [KLÁMVÆÐING OG PLEBBISMI] Jú, klámvæðing almannarýmis var titill á fyrirlestri á Jafn- réttisþingi á Akureyri í vor. Þetta er nú reyndar þýðing á »pornofication of puþlic space" sem er hugtak notað í um- ræðunni til að lýsa hvernig fyrirferð í almannarými á kyn- ferðislegum tilvísunum og hreinu klámi sé komin á það stig að um væðingu eða meðvitaðar markvissar aðgerðir sé að ræða. Með almannarými er fyrst og fremst átt við fjölmiðla og fjölföldun efnis sem birtist í formi söluvöru eða hreinlega gefins. Með veraldarvefnum, á síðasta ára- fug tuttugustu aldarinnar, varð bylting í aðgengi að ýmsu efni - ekki bara jákvæðu heldur fylltist allt líka af vafasömu efni eins og klámi. Rétt fyrir aldamótin magnaðist þetta svo upp með ódýrum fjölföldunarmöguleikum, þ.e. auð- velt og ódýrt varð að „brenna" löglegt og ólöglegt efni á aeisladiska. Jafnframt fjölgar útvarps- og sjónvarpsrásum °9 hvers kyns lágkúra verður svo algeng að viðspyrna virðist við fyrstu sýn illframkvæmleg. Doðinn gerir svo það að verkum að „léttari" kynferðislegar tilvfsanir verða al- gengari án þess að svo margir hreyfi við andmælum eða jafnvel finnist þetta eitthvað hallærislegt eða lágkúrulegt. en eftir seinni heimstyrjöldina sem algengt verður að Þorgerður Þorvaldsdóttir prenta í lit og starfið auglýsingateiknari eða starfsgreinin grafísk hönnun verður til. Fyrirtæki höfðu auðvitað fengið ýmsa hæfileikamenn í lið með sér fyrr til þess að gera veggspjöld og þess háttar en útbreiðslan kemur fyrst og fremst með fjórlita prentun á sjötta og sjöunda áratugn- um. Þetta eru upphafsár svokallaðrar auglýsingasálar- fræði. Þá verða þessi hugtök til eins og harða sellan sem vísar í „harðar" upplýsingar. I bílatilviki væri þá um að ræða upplýsingar um hestaflafjölda, þyngd og kraft, brennslu- rými mótors og hvort krómaðar sportfelgur fylgdu með eða ekki. „Mjúka" sellan hefur hinsvegar ekkert með svo- leiðis staðreyndaupptalningar að gera. Þar er verið að höfða til undirmeðvitundar okkar þar sem hvatir okkar og kenndir ráða ríkjum - þær eru auðvitað guðsgjafir og allt það en þær eiga það til að hlaupa með okkur út í alls kyns vitleysur. í undirmeðvitundinni býr margt merkilegt en líka margt ómerkilegt eins og öfundin, græðgin, afbrýðin og ýmsar fýsnir sem geta orðið mjög lágkúrulegar. Þegar svo auglýsingamiðlum fjölgar þá þrífst ýmislegt sem átti ^ málþingi í Gerðubergi um Kynferðislegar tengingar í °uglýsingum og ábyrgð fjölmiðla sýndir þú mynd frá ca. 1985 af berrassaðri konu upp á bílhúddi. Hefur þessi klámvæðing þá alltaf verið til staðar í auglýsingaheim- iuum? Tilhneigingin virðist hafa verið til, en myndbirtinga- formin hanga auðvitað saman við sögu fjölmiðlunar - Þetta liggur meira í magninu en forminu. Það er ekki fyrr ANNARS ER MEGNIÐ AF ALLRI VESTRÆNNIFJÖLMIÐLA- FRAMLEIÐSLU, EKKI BARA AUGLÝSINGAR HELDUR LÍKA SÁPUÓPERUR, TÓNLISTARMYNDBÖND OG MEIRA AÐ SEGJA FRÉTTIR LÁGKÚRULEGAR EF AÐ ER GÁÐ vera / 3. tbl. / 2003 / 13
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.