Vera - 01.06.2003, Page 41

Vera - 01.06.2003, Page 41
um íslensku, jarðfræði og ýmislegt en svo endaði ég í læknisfræði og er nijög ánægð með það. Ég er mjög sátt við hvar ég hef lent." Varst þú ekkert í því að ætla bara að gifta þig og eignast börn? „Ég var alltaf meðvituð um að það væri ákaflega eðli- legt hlutskipti en mig langaði líka að gera eitthvað ann- að. Ég gat ekki ímyndað mér annað en að það væri hægt. Ég kynntist Helga Valdimarssyni manni mínum í læknisfræðinni, eignaðist líka eitt barn í ntiðju náminu og svo var ég ófrísk þegar ég kláraði. En ég var heppin því dóttir okkar var heilbrigð og góð og dugleg. Hún drakk á morgnana áður en ég átti að fara í tíma og svo svaf hún útí vagninum og var oft enn sofandi í hádeginu þegar ég kom heim. En við bjuggum heima hjá foreldr- um mínum og hús þeirra var fullt af fólki og alltaf ein- hver til að líta eftir börnum. Systkini mín og makar þeirra bjuggu síðar líka heirna og í húsinu voru mörg lítil herbergi sem teygðist á eftir því sem fleiri komu inní þau. Þetta var stórt fjölskylduhús og allir sáttir," segir Guðrún. „Það var líka mjög dýrmætt að fá að vera heima á þessum tíma. Mamma mín veiktist ung úr krabbameini og dó 51 árs gömul." Lína langsokkur og Simone de Beauvoir Hvenær kviknaði hjá þér það sem við getum nefnt femíníska vitund? „Vitundin hefur alltaf verið þarna í einhverju formi og hún er mjög þétt samofin sterkri réttlætiskennd," segir Guðrún. „Skemmtilegustu bækurnar sem ég Ias þegar ég var lítil voru um sterkar stúlkur sem björguðu ekki bara sjálfunt sér heldur hinum líka. Mér þótti allt í lagi þó að þær væru hræddar og ættu erfitt og væru fá- tækar, ef þær voru sterkar og hugrakkar og skemmtileg- ar. Ein hét Dóttir lögreglustjórans. Hún tók aðal- hrekkjusvínið í skólanum og brýndi á því nefið, þar sem það var að kúga einhvern lítilmagna. Hún var óhrædd við að beita sér. Þetta höfðaði mjög til mín. Önnur var t.d. um stúlku sem var ein ábyrg fyrir því að sjá fyrir systkinum sínum í vandræðum og veikindum og Lína langsokkur var í uppáhaldi. Ég speglaði mig mjög sterkt í hugrökkum, heiðarlegum og ótrauðum stúlkunr sem hvikuðu ekki frá sannfæringu sinni, jafnvel þó að á móti blési og þær yrðu undir um tíma. Minn femínismi er semsagt sprottinn upp úr mjög sterkri réttlætiskennd. Ég hef alltaf átt erfitt með að una því ef farið er illa með minnimáttar. Mér hefur alveg verið sama þó að það væru tveggja metra háir strákar sem stæðu fyrir slílcu. Ég hef farið í þá. Eða ég fór í þá í garnla daga," segir Guðrún og hlær. Það má segja að kvenfrelsiskenndin hafi tekið stökk þegar Guðrún las læknisfræði í háskólanum. „Það er svo skrýtið að þegar maður er t.d. að læra læknisfræði og þarf að lesa nrjög rnikið þá kemst upp í vana að háma í sig bækur. Það verður hreinlega afþrey- ing að lesa eitthvað annað á kvöldin þó að námsbæk- urnar hafi verið lesnar allan daginn. Og á kvöldin las ég t.d. Sintone de Beauvoir, Second Sex og fleiri bækur. Sú lesning hafði mjög sterk áhrif á mig þó að ég væri ekki sammála öllu hjá henni. I raun ögruðu bækurnar öllu því hefðbundna lífi senr ég hafði kynnst. Svo ekki sé tal- HUGSUN MÍN VAR: „ÉG HEF ÞEGIÐ ALLT MITT LÍF, HEF VERIÐ HEPPIN OG NOTIÐ GÓÐS AF SAMFÉLAGINU. NÚ ER KOMINN TÍMIFYRIR MIG AÐ REYNA AÐ SKILA EIN- HVERJU TIL BAKA ÞÓ AÐ MÉR FINNIST ÉG EKKERT KUNNA. ÉG ER í ÞESSUM HÁSKA MEÐ MÖRGUM GÓÐ- UMKONUM" að um amerísku dans- og söngvamyndunum sem mað- ur horfði mikið á sem barn. Gott ef ekki til óbóta vegna þess að rnaður hélt að lífið ætti að vera svona. Eins og í dans- og söngvamynd," segir Guðrún kímin. Eftir þetta segist Guðrún hafa farið að velja lesefni um kvenfrelsi og kvennabaráttu þó að hún héldi því að mestu leyti fyrir sig sjálfa þar sem hún hafði í raun eng- an til að tala við um þennan áhuga sinn. „Við komutn til Bretlands 1968 þar sem við bjuggum í þrettán ár. Allan þann tima hélt ég áfram lestri slíkra bóka. En ég var náttúrlega í fullri vinnu með þrjú lítil börn og þó við hefðum hjálp við heimilisstörfm var heimilislífið hjá okkur hefðbundið að því leyti að ég var miklu bundnari yfir börnunum meðan þau voru lítil en maðurinn rninn. Ég gerði ekki mikið meira í þessum málum en að gleypa í mig lesefni og gerast áskrifandi að ýmsurn tímaritum, lifa mínu lífi og hugsa. Auðvitað mótuðust hugmyndir mínar í gegnum það sem ég las og með umræðum í vinnu og heirna þó að ég væri ekki partur af neinni hreyfingu." Nú hefur þú ákaflega rólyndislegt yfirbragð. Varstu ekkert reið á þessum árum þegar vitundin var að vakna? „Ég var mismikið reið. Ég gat verið nrjög reið en vit- undin um hugmyndafræði kvenfrelsis og jafnréttis varð eiginlega rauður þráður í mínu lífi, einhvers konar kjöl- festa, þó að ég væri ekki alltaf að tala urn það við alla. Þú getur gengið um allan daginn og vitað muninn á réttu og röngu án þess að þú sért sífellt að banka í fólk og segja frá því. En þegar manni ofbýður þá náttúrlega ger- ir rnaður eitthvað. Annað hvort sjálfs sín vegna eða ein- hverra annarra. Það er mjög mikilvægt að geta beislað og virkjað reiði sína." „Ég hef aldrei viljað vera eins og karlmaður," segir Guðrún þegar við ræðum áfram unt þrána eftir jafn- rétti. „Ég hef hinsvegar alltaf viljað vera jafn góð og karl- maður og helst betri. Það er alveg á hreinu. Mjög snemma gerði ég mér sterka grein fýrir því að það kven- lega er annað. Og að það verði að fá að vera eins og það vill vera og að það eigi að bera virðingu fyrir því. Og að það er hægt að þagga niður í körlurn með því að segja: „Hér er reynsla kvenna. Hér hefur maður ekki hátt." Það þarf ekki Tryggingamiðstöðina til þess að segja okk- ur að við séum öll ólík." Við ætluðum að breyta heiminum Guðrún, Helgi ogbörnin kontu heim til íslands 1981 og þá fór hún að vinna á Keldum við rannsóknir. I Árbæn- um byggðu hjónin hús og þar hafa þau alið upp sín börn og búið síðan þá. ^ vera/3. tbl./2003/41

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.