Vera - 01.06.2003, Blaðsíða 73
/ FRÁ JAFNRÉTTISSTOFU
1. Hluti af íslenska hópnum, f.v. Naysaa Gyedu-Adomako,
Rannveig Traustadóttir, Tanja Tzoneva, Andrea Sompit
Siengboom, Toshiki Toma, Tatjana Latinovic,
Valgerður H. Bjarnadóttir og Anh-Dao Tran.
2. Hildur Jónsdóttir, Amahl Tamimi, Andrea, Barbara
Gunnlaugsson, Elsa Arnardóttir, Anh-Dao, Hólmfríður
Gísladóttur og Tatjana.
3. Amal, Andrea og Elsa.
Vaxandi fordómar, fálæti og fjandskapur
í málstofum voru flutt erindi um allt milli hirnins og
jarðar, þar á meðal var ein undir yfirskriftinni Tengsl og
samskipti á fjölmenningarvinnustað: innflytjendakonur á
íslandi. Þar flutti Tanja Tzoneva erindi og Rannveig
Traustadóttir greindi meira almennt frá stöðu kvenna
meðal innflytjenda á íslandi. Tanja sagði frá rannsókn
sem hún er að vinna á dvalarheimili í Reykjavík þar sem
rneðal starfsfólks eru margar erlendar konur, flestar frá
Filippseyjum. í kjölfar erindisins og viðbragða Rann-
veigar spunnust miklar og athyglisverðar umræður um
stöðu asískra kvenna á Norðurlöndum og stöðu inn-
flytjenda á íslandi. Það virtist samdóma skoðun þeirra
útlendinga sem búsett eru á íslandi og sem nær öll tóku
virkan þátt í umræðum þessarar málstofu, að fordómar,
fálæti og jafnvel fjandskapur Islendinga í garð innflytj-
enda hefði farið mjög vaxandi á síðustu árum. Ástæða
er til að hafa verulegar áhyggjur af því ef svo er. Einnig
benti Toshiki Toma á að hann fyndi mun meiri jákvæð-
an áhuga á málefnum innflytjenda meðal kvenna á Is-
landi en karla. Toshiki fjallaði nánar urn þetta í grein í
Morgunblaðinu 3. júní sl.
í lok ráðstefnunnar var pallborð með fulltrúum nor-
rænu ríkjanna fimm, þar sem sátu ráðherrarnir Mona
Sahlin frá Svíþjóð og Tarja Filatov frá Finnlandi, fulltrúi
Noregs og undirrituð fulltrúi íslands, auk fulltrúa
sænsku stéttarfélaganna. Danmörk sendi ekki fulltrúa í
Kerfisbundin kúgun
Margaretha Winberg, varaforsætisráðherra Svíþjóðar
nieð sérstaka ábyrgð á jafnréttismálum, var einnig kom-
in í nýtt samhengi en flutti þó að venju frábæra ræðu,
tæpitungulaust. „í Svíþjóð sem og heiminum öllum er
til staðar kerfisbundin kúgun. Kúgun sem byggir á og
hefur það markmið að viðhalda ójafnvægi hvað varðar
vald og réttindi kynjanna. Það einkennist af skorti á
virðingu fyrir gildum, réttindum og ábyrgð hvers og
eins. Þetta er kerfisbundin mismunun sem segir okkur
að konur skuli vera undir og karlar yfir. Að karlar séu
viðmiðið. Að vera kona í heinri þar sem karlinn er við-
miðið er ekki auðvelt. Að vera kveninnflytjandi í Sví-
þjóð í dag er enn meiri áskorun....“ (sjá ræðuna alla á
slóðinni http://www.regeringen.se/galactica/ )
Drude Dahlerup, prófessor við Stokkhólmsháskóla,
sem er íslendingum löngu kunn fyrir starf sitt að jafn-
réttismálum, m.a. að málefnum kvenna í stjórnmálum,
°8 Fakhra Salimi, framkvæmdastýra MIRA-Sentret í
Oslo, (jölluðu um kvóta, konur og múrana sem halda
innflytjendum utan stjórnmálanna. Drude velti upp
spurningunni um það hvort kvótar væru hugsanleg leið
W að tryggja kveninnflytjendum aðgang að norrænum
stjórnmálum.
í SVÍÞJÓÐ SEM OG HEIMINUM ÖLLUM ER TIL STAÐAR
KERFISBUNDIN KÚGUN. KÚGUN SEM BYGGIR Á OG
HEFUR ÞAÐ MARKMIÐ AÐ VIÐHALDA ÓJAFNVÆGI
HVAÐ VARÐAR VALD OG RÉTTINDI KYNJANNA. ÞAÐ
EINKENNIST AF SKORTI Á VIRÐINGU FYRIR GILDUM,
RÉTTINDUM OG ÁBYRGÐ HVERS OG EINS
pallborðið. Umræður voru snarpar, konur í salnum
óhræddar við að gagnrýna stöðuna og velta upp hug-
myndum að betra samfélagi jafnréttis og fjölmenningar.
Óhætt er að segja að óvenju fjörugar umræður hafi
spunnist í málstofum og í tengslum við almenna fyrir-
lestra.
Það er von okkar sem ráðstefnuna sátum - og mynd-
uðum þar góð og öflug tengsl, lærðum reiðinnar ósköp
og nutum vel - að af þeim fræjum sem þarna var sáð
megi vaxa sterkir og íjölbreyttir runnar og fögur tré fjöl-
menningar og jafnréttis í íslensku þjóðfélagi. X
vera / 3. tbl. / 2003 / 73