Akranes - 01.04.1958, Síða 4

Akranes - 01.04.1958, Síða 4
þjóðunum að skipta sér af málum, sem koma í aðalatriðum undir eigin lögsögu ríkis (domestic jurisdiction), eða skyldar meðlimi til að leggja slík mál fyrir til lausnar samkvæmt þessum sáttmála; þessi grundvallarregla skal samt ekki hindn framkvæmd þvingunaraðgerða samkvæmt VII. kafla“. (Sá kafli fjallar um aðgerðir vegna ófriðarhættu, friðrofa og árása). Takmark þessara ákvæða er i sjálfu sér réttmætt og gott, en orðalagið er svo loðið, að það hefur leitt af sér mismun- andi túlkun og mikla misklíð. Spurningin er hver eigi að ákveða hvaða mál séu í aðalatriSum innanríkismál. Hingaðtil hafa öll riki, sem töldu sér hag að þv:, skotið sér bakvið þessi ákvæði og sjálf ákveðið hvað væri innanríkismál og hvað ekki. Við getum tekið þrjú nærtæk da:mi til að skýra þetta. Hinir voveiflegu atburðir við Súez- skurðinn haustið 1956 hófust með því, að Nasser forseti Egyptalands þjóðný'li skurðinn. Starfræksla hans hafði fram að þeim tíma verið hundin alþjóðlegri reglu- gerð, sem Egyptar áttu aðild að. Þeir höfðu ítrekað skuldhindingar sínar í þessu sambandi í sáttmálanum, sem þeir gerðu við Breta þegar hinir síðamefndu fluttu herstyrk sinn frá Súez-svæðinu. öll riki, sem höfðu hagsmuna að gæta vegna sigl- inga um Súez-skurðinn, tóku þjóðnýtingu Egypta mjög óstinnt upp. Bretar og Frakk- ar vildu halda Sameinuðu þjóðunum utan við málið, þó það væri greinilega alþjóð- legt vandamál. Átján ríki, sem áttu 95% af skipakostinum sem fór um skurðinn, komu sér saman um að semja við Egypta um alþjóðlega starfrækslu hans. En Nasser tók því fjarri og henti á, að það stríddi gegn fullveldi og sjálfsvirðingu Egypta að semja um eign, sem greinilega væri egypzkt landsvæði. Það er athyglis- vert, að aðgerðir Egypta hefðu verið skv- laust hrot á alþjóðalögum áðuren sjöundi liðurinn í annarri grein stofnskrár Sam- einuðu þjóðanna kom til. Annað sláandi dæmi er Alsír-málið. Það var tekið fyrir af AllsherjarJ)inginu vegnaþess að hér var greinilega um ógn- un við heimsfriðinn að ræða. Frakkar bentu hinsvegar á, að lagalega væri Alsír hluti af Frakklandi og því væri Alsí.- vandamálið algert innanríkismál. Franska sendinefndin gekk af fundi og fór heim, þegar Alsír-málið var tekið til umræðu á Allsherjarþinginu haustið 1955. Það var kaldhæðni sögunnar, að Frakk ar fengu Breta í lið með sér haustið 1956 til að steypa Nasser af stóli vegna afskipta hans af Alsír-málinu, einsog Frakkar oið- uðu ])að. Með þessum svonefndu „lög- regluaðgerðum", sem fóru að visu útu.n þúfur, sönnuðu Frakkar öllum ])jóðum, að Alsír-málið er elíki einbert innanríkismá1. sem þeir geti leyst á eigin spýtur. Þriðja og átakanlegasta dæmið er harm- leikurinn i Ungverjalandi. Árið 1955 varð Ungverjaland meðlimur Sameinuðu þjóð- anna. Bússar voru meðal þeirra rikja. sem eindregið mæltu með upptöku Ung verja í bandalagið. Af þessu leiddi, að Ungverjar fengu algert jafnrétti við aðr- ar þjóðir og óskoraðan sjálfsákvörðunar- rétt (gr. 1:2 og 2:1). Rússar. hafa hvað eftir annað ítrekað, að stjórnskipun og réttarfar hvers ríkis sé algert innanríkis- mál. Svo gerir ungverska þjóðin uppreisn gegn kommúnisku stjórnarfari í landinu, sem hafði verið þröngvað uppá hana af hernámsliði Rússa á striðsárunum, og krefst þess að fá sjálf að ákveða framtið sína í frjálsum kosningum. Var svo langt komið, að sett hafði verið á laggirnar hyltingarstjórn, sem hét að verða við kröf- um þjóðarinnar. En þá komu hersveitir Rússa á vettvang, steyptu hyltingarstjórn- inni og settu upp leppstjórn, sem „bað 72 AKRANES

x

Akranes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.