Akranes - 01.04.1958, Blaðsíða 55
góða hönd, er þéttur fyrir og fylgist
vel með hlutunum, en hefur ekki skoð-
anaskipti daglega.
Kvæntur er Axel ágætri konu, Þor-
björgu Ágústu Einarsdóttur frá Grund
á Miðnesi, f. 1896. Börn þeirra:
a. Einar, f. 1922, kv. Einarínu Sumar-
liðadóttur frá Meiðastöðum í Garði.
Þeirra börn: Tómasína, Þorbjörg
Ágústa, Óskar og Sumarliði.
b. Jón, f. 1922 (tviburi við Einar),
kv. Bergþóru Þorbergsdóttur útgerð-
armanns á Jaðri i Garði. Þeirra
börn: Vignir og Þorsteinn.
c. Soffia, f. 1923, gift Ingvari Oddssyni
i Keflavik. Þeirra börn: Axel Þor-
berg, Oddur, Ingvar, Friðrik og
Ágúst.
d. Gróa, f. 1924, gift Vilhjálmi Ás-
mundssyni bónda á Kverná í Grund-
arfirði. Þeirra börn: Þorbjörg
Ágústa, Sigriður og Asmundur.
Áður en Þorbjörg giftist átti hún
dóttur að nafni Friðrikku Pálsdóttur,
sem Axel hefur alið upp. Þau lijón
hafa einnig alið upp barn Friðrikku.
Þorgerði Þórhallsdóttur. Þá hafa þau
einnig alið upp dreng, er Jón sonur
þeirra eignaðist áður en hann kvænt-
ist, sá drengur heitir Axel. Virðist mér
Axel þykja vænt um öll þessi uppeldis-
börn sem sín eigin.
Áður en Jón Guðmundsson kvæntist
átti hann einn son, er það Geir Jónsson,
sem lengi hefur búið á Bjargi, og hefur
áður verið minnzt í þessum þáttum.
Áður en Gróa giftist Jóni, átti hún tvö
börn með Hans Dithlev Linnet bókhald-
ara í Hafnarfirði, ein þau voru þessi:
í.Júlíus Kristján Linnet, f. í Reykjavík
1. febrúar 1881. Hann lærði lögfræði,
liefur verið m. a. sýslumaður í Mýra-
og Borgarfjarðarsýslu frá ársbyrjun
1917 til 1. apríl 1918. Lengst var hann
bæjarfógeti í Vestmaninaeyjum frá 4.
ágúst 1924 til 11. okt. 1940, er hann
fékk lausn frá embætti og fluttist þá
lil Reykjavíkur.
Linnet er greindur maður og góð-
viljaður, stilltur og prúður, en býr yfir
mikilli kýmnigáfu, þótt ekki hafi liann
látið bera mikið á því á yfirborðimu.
En hann hefur skrifað mikið af kýmni
og skopgreinum undir dulnefninu
Ingimundur. Ymislegt fleira hefur
hamn og skrifað um almenn og alvar-
legri efni, einnig dulrænar greinar.
Kona Linnets er Jóhanna Eyjólfa
Ólafía Seymour, f. i8go, Júliusdóttir
liémda á Miðjanesi í Barðastrandar-
sýslu, Ólafssonar og konu hans Jór-
unnar Eyjólfsdóttur. (Júlíus faðir
hennar var bróðir Magnúsar Ólafsson-
ar ljósmyndara hér og síðar i Reykja-
vík). Böm Linnets og Jóhönmu eru
þessi:
a. Henrik Adolf laiknir, kv. Svönu
Vemharðsdóttur. Þeirra tuirn: Vern-
harður Linnet, Jóhanna Linmet og
Svanhildur Jóna Iánnet.
b. Elisabet Lilja, gift Svafari, klæð-
skerameistara Ólafssyni, skipstjóra,
Magnússonar. Þeirra börn: Guðrún
Svava, Kristján Jóhann og tllif.
c. Stefán Karl loftskeytamaður, kv.
Elinu Sigurðardóttur. Þeirra barn:
Kristján Karl Liinnet.
d. Hans Ragnar, skrifstofumaður í
Rvík, ókv.
e. Bjami Eggert Eyjólfur, póstmaður,
kvæntur Lngibjörgu Björmsdóttur
(Odds Björmssonar á Akureyri).
f. Anna Kristin, gift Sigurði Jónssyni
bakarameistara, Simonarsonar.
Þeirra börn: Edda (kjördóttir), Jón,
Kristján og Hamnes.
Fyrri maður Jóhönnu Linnet var
Pétur Jóhann Pétursson frá Sjávar-
A K R A N E S
123