Akranes - 01.04.1958, Blaðsíða 40
★
★
★
GAUKSKLUKKAN: TaliS
frá oinstri: Stefán (Helgi
Skúlason), Kbbi (Ævar
Kvaran) og VernharSur
bankastjóri (Valur Gísla-
son). —
veru ekki nógu vel unnin frá sálfræði
legu sjónarmiði. Helgi Skúlason leikur
manninn vel, án þess að hægt sé að trúa
þvi, að hann geti verið að fara í hundana.
Listamaðurinn, ÁiTnann tónskáld, verður
a. m. k. ekki í túlkun Benedikts Árni-
sonar sá maður, sem líklegur sé til þess að
hafa úrslitaáhrif á líf nokkurs manns.
Ég efast um, að nokkur maður muni
þekkja þessa manngerð í hópi listamanna
höfuðborgarinnar. Koma hans á lieimhi
bankaritarans þegar veizla er haldin
bankastjóranum til heiðurs er svo langt
frá því, sem sennilegt mætti teljast í dag
legu lifi, að allt atriðið missir marks fyrir
vikið jafnvel þótt því sé sleppt, að vafa-
samt er hvort íslenzkur undirmaður i
banka myndi bjóða bankastjóra heim til
sín.
Gréta, kona Stefáns, (Herdís Þorvald; ■
dóttir) er í raun og veru ekki sú mann-
gerð, sem dregur eiginmann niður á von-
leysis- og uppgjafarstig. Hún er að vísu
metorðagjörn fyrir hönd mannsins, efnis-
hyggjan er í hásæti hjá henni og gáfun-
um ekki fyrir að fara, ein svona eru svo
108
ótal margar konur í höfuðborg Islands, að
]iað er ekki na'gileg skýring á vanlíðau
manns hennar, nema ef draga mætti þá
ályktun, að karlmönnum liði yfirleitt illa
i sambúð við svona andlitlar konur, en á
svo háu sligi mun sterka kynið ekki vera
almennt. Auk þess er sá mikli galli á
Grétu, að hún kemur allt i einu fram
sem virkilega hugsandi manneskja með
fina innsýn í þá aðstöðu, sem taka verður
afstöðu til þegar koma á manninum heim
af kránni. Framkoma hennar þá samrærn-
ist svo illa tómahljóðinu sem kveðið hef-
ur við fyrr i leiknum, að telja verður að
höfundi hafi mistekizt persónusköpunin.
Ólikt betur hefur höfundi tekizt mc ð
mágkonu Grétu, Ástu, (Bryndís Péturs-
dóttir). Man ég ekki í svipinn að nefna
eins eðlilega heimska konu í islenzkum
bókmenntum og hana, en oftast gengur
höfundum illa að láta persónur sinar veta
nógu staðfastar i heimskunni. Bryndis
Pétursdóttir túlkar þessa konu eins og efni
standa til. Ekki hefur Ebbi (Ævar Kvar-
an), bróðir Grétu, tekizt síður en konan
hans. Hann ar íslenzki efnishyggjumað-
A K B A N E S