Akranes - 01.04.1958, Side 10

Akranes - 01.04.1958, Side 10
Sir Thomas More. Ég var fyrir nokkru að blaða í dýr- lingaskrá kaþólsku kirkjunnar, en á henni munu vera nær 5000 manns, og datt mér þá í hug, hvort ég mundi geta fund- ið þar nokkurn stjórnmálamann úr leik- mannastétt. Séu þjóðhöfðingjar taldir með stjórnmálamönnum, þá eru þar auðvitað margir, en taki maður orðið stjórnmála- maður í merkingu vorra daga, veit ég ekki nema af einum, sem tekinn hefur verið í dýrlingatölu, en það er Eng- lendingurinn hinn heilagi Sir Thomas More, sem var einn fra'gasti rithöfundur viðreisnartímabilsins og nafntogaður stjórnmálamaður á sinni tið, og ég ætla að segja hér æfisögu hans, því hann er svo merkilegur, að hver maður um gjör- vallan heim þekkir hann, og þarf að vita mikið um hann, en áður ætla ég að segja skrítna sögu, sem fyrir mig kom í sambandi við hann. Það er á allra vörum, að útvarpið sé, eða eigi að minnsta kosti að vera, menningartæki, en það er nú hver hest- I)r. Guðbrandur Jónsson: Sir Thomas Hore ur eins og hann er hafður, og sjálf úl- varpstækin eru auðvitað ekki menningar- tæki, nema það sé mannandi og mennt- andi, sem i þau er sett. Nú ætla ég auð- vitað ekki að fara að ná mér niðri á út- varpinu þessa stundina, en þess er ekki að dyljast, að það sem íslenzka útvarpið býður er oftar óboðlegt en hitt, og þvi hefur farið hrakandi, eftir að það fór að verða bundið í báða skó, rétt eins og dagblöðin okkar eru í bili. tJt í það fer ég ekki lengra. En þegar Píus páfi XI. tók Sir Thomas More í helgra manna tölu 1935, þá var ég enn á hatti við út- varpið, og datt mér þá í hug, að æfi Sir Thomas væri efni í útvarpserindi og bauð útvarpinu það. Svarið, sem ég fékk, held ég sé kyndugasta svar, sem ég hefi fcng- ið á æfi minni, svo ég hafi ckki um það önnur orð. Maðurinn, sem fyrir svörum varð, anzaði því, að það va'ri ekki til Jieins að lala um þennan mann við hlust- cndur, þvi þeir vissu ekkert um hann. Ég lét mér svarið vel lika, en fannst ])að með sjálfum mér vera einkennileg menn- ingarstofnun, sem ekki vildi fræða menn um annað en það sem menn vissu undir. Skal ég svo ekki fara lengra út i það. Þýðing hins blessaða Sir Thomas More er með þrennum hætti, hún er stjórn- málaleg, kirkjuleg og menningarleg, þó þetta sé allt öðrum þræði hið sama. Ég verð því áður en ég fer út í æfi hans, 78 AKRANES

x

Akranes

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.