Akranes - 01.04.1958, Síða 23

Akranes - 01.04.1958, Síða 23
straumurinn sór okki, og ekki or nema hálfsögð sagan af sjálfum Jóni Sigurðs- syni og öðrum þjóðlegum forvígis- mönnum vorum á 18. og 19. öldinni þeg- ar andlegra lireyfinga og strauma i Dan- mörku og öðrum menmingarlöndum álfu vorrar fyrir og um þessa daga er að engu getið. Það hefur oft verið sagt, að stjórnar- byltingin mikla á Frakklandi liafi vakið þjóðirnar af dái, og má það að sumu leyti til sanns vegar færa, en eigimlega var það samt yfirgangur Napóleons mikla sem fyrst ýtti við þjóðunum að gagni. Hin gjörsamlega fyrirlitning hans á öllu þjóð- erni varð einmitt til þess, að vekja þjóð- ernistilfinninguna meðal þeirra þjóða, sem mest fengu að kemma á gjörræði hans, og að síðustu fór svo að þjóðin þýzka, sem var sundruð í ótal smáríki, er oft höfðu legið í sifelldum illdeilum innbyrðis, reis upp sem einn maður til að hrinda af sér oki hans. Þar, á Þýzkalandi, var allt frá því um aldamót ný þjóðleg stefna tekin að ryðja sér til rúms bæði í heim- speki og skáldskap, stefma, sem sérstaklega sneri sér að fortíð landsins og sameigin- legum þjóðlegum minningum, og var því einkar vel fallin til að vekja og glæða þjóðernistilfinninguna og magna mót- spymumenn gegn kúgun Napóleons. Það var ekki sízt að þakka þeirri þjóðlegu stefnu og guðmóði þeim, er hún vakti, að Napóleon varð ofurliði borinn að síðustu og þjóðhöfðingjar þeir, er hann hafði rek- ið frá ríkjum, gátu aftur sezt að erfða- löndum sínimi. En miðlumgi góðu gengi átti hún þó að fagna hjá þeim á eftir; meðam hinn sameiginlegi óvinur, Napóle- on, vofði yfir, gáfu þeir henni undir fót- inn lieldur en hitt, en er hann var frá og engrar hættu lengur að vænta úr þeirri átt, fóru þeir að kreppa að henni á ýmsa lund, því að þeir höfðu beyg af frelsis- hreyfingum þeim, er hún hafði í för með sér. Og svo liðu mörg næstu ár, að „banda- lagið helga“, er þjóðhöfðingjar álfunnar stofnuðu með sér, bældi með harðri hendi allar frelsis- og þjóðernishreyfingar hvar sem á þeim bólaði og reynt var að koma þeim fram í verki. Allt, sem prentað var, var háð strangri ritskoðun, enginn félags- skapur mátti eiga sér stað nema með leyfi og eftirliti stjórnarvaldanna, allt var i'ig- bundið og engin hreyfing möguleg. Menn reyndu því að gleyma hinni dapurlegu nútíð, héldu að sér höndum og létu sig dreyma um betri daga, ekki svo mjög í framtíðinni — það var tæpast leyfilegt — sem í fortíð þjóðarinnar. Menn sökktu sér niður í miðaldasögu þjóðar sinnar, og skáldunum varð hún og þjóðsagnirnar ótæmandi yrkisefni. Þau sáu „álfaslot hverjum í hamri“, og miðaldirnar í hin- um glæsilegustu hyllingum, svo að forui- öld Grikkja og Rómverja, sem 18 öldin dáðist mest að, þótti nú lítils verð í sam- anburði við hina glæsilegu riddaraökl. Yfir höfuð litu skáldin smáum augum á nútíðina og veruleikann, þótti varla ó- maksins vert að lýsa því, en lifðu drauma- lífi langt aftur í öldum. Og þjóðin ein- blíndi á hina ágætu forfeður, sem skáld- in og sagnaritaramir kepptust við að mála með sem fegurstum litum, og hún lagðist í hálfgjört draumalíf, eins og skáldin. Það er ljóst, að þegar þjóðlega stefnan var komin á þessar slóðir, fór hún ekki að verða hættuleg fyrir þjóðhöfðingjana, heldur þvert á móti. Þegar allur hugur þjóðarinnar beindist að löngu liðnum tima en frá nútíðinni og veruleikanum, þá var síður hætt við að hún fyndi livar skór- inn kreppti nú. Bandinginn, sem sefur og er að dreyma hugljúfa drauma, finn- ur ekki til fjötranna á meðan. Það var því fjarri því að valdhafarnir ömuðust A K II A N E S 9i

x

Akranes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.