Akranes - 01.04.1958, Page 24

Akranes - 01.04.1958, Page 24
við skáldimum, er þessari stefnu fylgdu, enda voru, að undanteknum einstaka upp- reisnargjörnum anda eins og Heine, skáld- in, sem þeirri stefnu fylgdu, rómantísku skáldin svo kölluðu, auðsveipustu þegnar, og sízt eggjandi neirrna stórræða á breyt- inga- eða byltingaátt. Hættan, sem þjóðunum var búin af rómantízku stefnunni, er hún var búin að gagntaka þær og komin út í öfgar, var þá annars vegar þessi, að þær misstu sjón- ar á endurbóta- og frelsishugsjónum þeim, er upphaflega höfðu verið í för með henni, og hún þá gefið byr undir báða vængi, að þær gleymdu hinu bágborna nútiðarástandi yfir glæsilegum fortíðar- hyilingum og töfrandi skáldadraumum um imyndaða gullöld einhvern tíma i fyrndinni. En hins vegar var sú haíttan ekki minni, er stafaði af því, að með þessu lagi gátu þjóðirnar enga þekkixigu fengið á sér og kröftum sínum og vissu því ekki hvað þær máttu bjóða sér ef til þurfti að taka, haítti til að telja sér flesta vegi færa, afkomendum kappanna, sem höfðu marga í höggi, og líta smáum augum á aðrar þjóðir. Þegar þess er gætt, að ef til vill er ekkert jafn áríðandi hvoj t heldur einstaklingum eða heilum þjóðum og það, að þekkja nokkurn veginn rétt sinn og krafta sína í hlutfalli við þá sem saman við er að sælda, þá er ljóst, að hér var um hættu að ræða, sem beint gat orðið að lífsháska, ef smáþjóð átti í hlut. Að því varð Dönum um og eftir miðja öldina. Rómantiska stefnan hafði borizt til þeirra rétt eftir 1800. Hún varð þar sem annars staðar til að beina huganum að fortíð þjóðarinnar. Áður höfðu skáldin mjög valið sér yrkisefni úr goðafræði og ■sögu Grikkja og Rómverja. Nú var yrkis- efnanna leitað í goðafræði og sögn Norður- landa, og ný bókmenntaöld rann upp með þeim Oehlenschláger og Grundtvig. Þjóð- ernistilfinningin. vaknaði og glæddist meir og meir og frelsishreyfingar voru henni samfara er fram liðu stundir, þó ekki gerð- ust skáldin beint talsmenn þeirra. Straum- ur sá þyngdist meir og meir, og eftir fe- brúarbyltinguna i París 1848 varð hann konujigsvaldinu of sterkur, svo konungui varð að afsala sér einveldi sínu i hendur þjóðarinnar án þess að til uppsteitar kæmi eða blóðsúthellinga, sem viða ann- ars staðar um þær mundir. En rétt á eftir urðu Danir að beita vopnum til að bæla uppsteit Þjóðverja í hertogadæmun- um svonefndu; gengu þeir þar vasklega fram, enda báru hærra hlut. Þetta með- læti Jjoldi þjóðin ekki. Þjóðernistilfinn- ingin og þjóðarmetnaðurinn óx fram úr öllu hófi. Danska þjóðin sökkti sér niðui' í sjálfa sig, miklaðist af fortið sinni og hinum nýju sigurvinningum, en leit smá- um augum á aðrar þjóðir og hirti ekki um að fá rétta þekkingu á Jjeim né bera neitt af þeim, þóttisl sjálfri sér nóg. Skiljanlegt er, að Danir voru ekki á þvi að fallast á Jjjóðréttarkröfur vor Islend- inga á þeiim árum. Hitt var Jjcim haútu- legra, hve smáum augum þeir litu á Þjóðverja, þar á meðal stórveldið prúss- neska, sem þá var að fa'rast í aukana. Það má svo að orði kveða, að þeir skoð- uðu sjálfa sig í kíki, sem stækkaði mörg- um sinnum, en Þjóðverja i honum öfug- um. Georg Brandes segir einhver.s staðar frá því, að skömmu fyrir ófriðinn seinni út af hertogadæmunum (1864) heyrði hann einn málsmetandi landa sinn halda því fram í alvöru, að óliætt væri að ætla hverjum einum dönskum manni að ráða niðurlögum 1 o Þjóðverja, ef til ófriðar kæmi. Öfriðurinn kom og fór sem vita mátti, við slíkt ofurefli sem var að etja, að Danir fóru hinar mestu ófarir og urðu 92 A K R A N E S

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.