Akranes - 01.04.1958, Page 27

Akranes - 01.04.1958, Page 27
á því, að landar sínir fengju að vita, um hvað verið væri að hugsa í heiminum, að hugur þeirra beindist meir en verið hafði að samtíðinni og viðfangsefnum hennar, að menn hættu að trúa í blindni á hinar og þessar fullyrðingar og kenningar, en rannsökuðu allt sjálfir og héldu því einu, sem gott reyndist, en köstuðu hinu fyrir borð. Greiðasta leiðin til að kenna mönn- um þetta héldu þeir að væri sú, að nota skáldskapinn til þess; hann átti að sýna lífið og mennina eins og það er, en ekki bregða yfir það ósönnum fegurðarhjúp. Fyrsta krafan til góðrar skáldsögu átti ekki að vera sú, sem börn og óþroskað fólk gjörir ráð fyrir, að hún fari vel, heldur sú, að hún sýndi sanna mynd af sálarlifi þeirra manna, er hún segir frá og leiddi í ljós hvernig örlög þeirra væru rökrétt af- leiðing af skapferli þeirra og þeim ytri kjörum, sem þeir ættu að búa við. Þeir trúðu þvi fastlega að í mannlífinu væri allt föstum og órannsakanlegum lögum háð, alveg eins og í riki náttúrunnar. Það má óhætt eigna þeim skoðun þá, sem Gestur Pálsson leggur lækninum i munn í sögunni „Grímur kaupmaður deyr“, sem raunar var samin nokkrum árum síðar, að lífið sjálft heimti reikningsskil fyrir orð og gjörðir fyr eða siðar. Þess vegna á að vera hægt að leiða örlög söguhetjanna rökrétt út af skapferli þeirra og ytri ástæð- um. Það er ljóst, að ef svona er litið á, getur engin þekking verið nauðsynlegri en þekkingin á mannlifinu og lögum þess og engin vanþekking háskalegri en á því. Nú er það einmitt skáldanna hlutverk að sýna þessi lög þótt óbeinlínis sé, einkum leikrita- og söguskáldanna; af því er ljóst, að skáldskapurinn er ekkert barnaleikfang, heldur eitt hið mest-varðandi menningar- meðal; hami á engu síður að lýsa því ljóta og illa i mannlífinu en því fagra og góða, því að ekki er hægt að varast hið illa né ráða bót á því, nema því sé lýst svo, að það þekkist. En umfram allt á hann að vera sannur, þvi að annars leiðir hann á villi- götur í stað þess að leiðbeina. Að vísu er þessi stefnuskrá hvergi sett fram í Verðandi, því að þeir félagar sendu ritið frá sér formálalaust, en að þetta hafi vakað fyrir þeim, sést ljóslega af ritinu og starfi þeirra næstu árin. Reyndar er það svo, að þótt þessi stefnuskrá væri að mörgu leyti réttmæt, þá er það í rauninni allt of þröngur stakkur sem skáldskapnum er hér skorinn. Það sést bezt á því, að mörg ága'tustu skáldverkin sem til eru, og hlotið hafa lof og aðdáun sjálfra realist- anna eða veruleikaskáldanna — þeirra stefna er það, sem hér hefur verið lýst — gæta alls eigi listareglu þeirrar, sem hér hefur verið sett fram. Báðar stefnurnar eiga i rauninni fyllsta rétt á sér, baaði sú, er vill lýsa lifinu eins og það er, og hin, sem vill sýna hvernig það eigi að vera, og báðar eru í rauninni hugsjónastefnur (idealista) realistastefnan lika, þótt ekki vildu þeir við það kannast, því að þegar realistarnir lýsa því ljóta og illa i lífinu þá liggur jafnan á bak við mótsetning þess, hugsjón hins góða og fagra; um leið og þeir segja upp hátt: svona er það, þótt ljótt sé, segja þeir i hljóði eða óbeinlínis: svona á það ekki að vera, heldur þvert á móti. öll list, sem það nafn á skilið, ber hugsjónafánann hátt; það liggur i eðli hennar (sbr. Sig. Ibsen í Tilskueren 1909 bls. 52). Og það gjörðu einmitt rit Verð- andimanna, þau sem hér er rætt um. En þó Verðandimenn tækju að sumu leyti fulldjúpt í árinni, þá er það ekki annað en vanalegt er, þegar nýjar stefnur eru að ryðja sér til rúms. Þær eiga jafn- an undir högg að sækja, þar sem er sú stefnan, er áður drottnar og allajafna er sjálf komin út í öfgar, og því eðlilegt að eigi sé í öllu gætt hófs og að sumt nýtilegt A K R A N E S 95

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.