Akranes - 01.04.1958, Qupperneq 30

Akranes - 01.04.1958, Qupperneq 30
unni, og stendur það kvæði þó langt að baki xnörgum öðrum af kvæðum Hannesar i Verðandi, t. d. ferðakvæðunum sumum. En það var eitthvað þjóðlegt við efnið, sem mönnum gazt vel að, og það því frem- ur, sem mönnum fannst anda einhverjum óþjóðlegum útlendum gusti úr ritinu að öðru leyti. Og alþýðumenn eru næmari á slíkt en margir kunna að ætla. Það er satt þetta, að sá andlegi straumur, sem hreif Verð- andimenn og knúði þá til að hefjast handa, hann var fremur af útlendri en þjóðlegri rót, eins og áður hefur verið sýnt. Og sjálfum var þeim það fulllióst, enda munu um þær mundir hafa litið fremur smá- um augum á margt það, sem þjóðlegt var kallað. Allir kannast við vísuna eftir Hannes Hafstein: Vertu ekki’ að aka þér, ættlands frjálsi blómi; bara’ ef lúsin íslenzk er, er þér bitið sómi. En þetta er auðvitað skop um kenning- ar þeirra manna, sem telja að allt sé feng- ið ef eitthvað er þjóðlegt. Og Gestur Páls- son gerði minna úr fomöld vorri og forn- bókmenntum en nokkur maður annar fyr og síðar. f fyrirlestri sem hann hélt í Reykjavik 1889 um menntunarástandið á fslandi segir hann, að í rauninni eigum vér engar bókmenntir er því nafni geti heitið, hvorki að fomu né nýju, og áhrif fornsagnanna á þjóðina telur hann vafa- samt hvort ekki hafi verið fremur ill en góð, því að þó að þakka megi þeim að nokkru þjóðernishreyfinguna og glæðingu sjálfstæðistilfinningarinnar í 19. öldinni, þá hafi þær á hinn bóginn dregið nokkurs konar nautsbelg af ástæðulausu þjóðern- isdrambi yfir okkar lítilsigldu og fámennu þjóð, togað hana burt frá áhrifum annara þjóða og reifað hugsunarháttinn úreltum hugmyndum frá fornöld, enda sýni verkin merkin: Allt innihald einstaklinganna séu gamlar hugsanir og úreltar hugmyndir, eintómar afturgöngur svo að maður geti orðið myrkfælinn af að hugsa um andlega lífið á íslandi. En því glöggar sem þeir félagar sáu eða þóttust sjá, að margt af þvi, sem þjóðlegt var kallað, var lítils virði og úrelt, því meiri hvöt var fyrir þá til að reyna að veita inn nýjum straumum, því að þar var hugurinn, eins og svo oft áður fyrir íslenzkum menntamönnum i Kaupmanna- höfn, að fá þeim framförum stað á ætt- jörð sinni, sem þeir kynntust erlendis. Sú hugsun kemur ljóst fram í þessum visum Hannesar Hafsteins frá þeim árum: Ég vildi’ ég fengi flutt þig skógur heim í fjallahlíð og dalarann, svo klæða mfettir mold á stöðvum þeim, er mest ég ann. 0, gaati’ eg mér í heitan hringstraum breytt, eins heitan eins og blóð mitt er, þú ættarland, og straummagn streymdi heitt við strendur þér. Og gæti’ eg andað eins og þýður blær um alla sveit með vorsins róm, þá skyldi þíðast allur is og snær, en aukast blóm. Þótt svo væri tilætlazt í fyrstu, að Verðandi yrði timarit, fór svo, að hún kom ekki út aftur; mestu hefur sjálfsagt valdið, að viðtökurnar, sem ritið fékk, voru ekki svo góðar, að nein von væri um að útgáfa þess gæti svarað kostnaði, en útgefendurnir fátækir stúdentar, ekki af- lögufærir, enda fengu þeir fjárstyrk frá Tryggva Gunnarssyni til að gefa út þetta eina hefti, sem út kom. Nokkru kann það AKRANES
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Akranes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.