Akranes - 01.04.1958, Qupperneq 38

Akranes - 01.04.1958, Qupperneq 38
✓----------------- Ólfífur Gunnarsson skrifar Xlm LEIKLIST ★ Litli kofinn. Gamanleikur í þremur þáttum eftir André fíoussin. Bjarni Guömundsson íslenzkaði. Lrikstjóri: Benedikt Árnason. Leiktjöld og búningar: Lárus Ingólfsson. Þetta er franskur gamanleikur, sem ger- ist á eyðieyju úti á reginhafi, en þar hefur skolað á land samkvæmisklæddri kon i ásamt manni hennar og heimilisvini, sem jafnframt er elskhugi hennar. Þetta fólk hefur áður lifað í sátt og samlyndi og kon- an haldið við heimilisvininn reglulega i sex ár, án þess að manrhnn grunaði neitt. Nú verða tækifæri konunnar og elskhug- ans færri og óvissari en áður og veldur þao manninum miklu hugarangri. Eftir nokkr- ar bollaleggingar ákveða skötuhjúin að segja eiginmanninum eins og er og far i þess á leit, að elskhuginn fái að njóta kon unnar aðra vikuna. Eftir nokkrar vífi- lengjur gengur eiginmaðurinn að þessu, en þá bregður svo einkennilega við, að elskhuginn gerist hugsjúkur en eiginmað- urinn Ijómar af ánægju. I'.oks kemur villimaður, sem ])ó reynist vera danskm kokkur, til skjalanna og bindur báðu mennina, en nýtur ásta konunnar, sem alltaf virðist vera til þénustu reiðubúin. Ekki verður sagt, að þessi leikur flytji mönnum mikil ný sannindi eða auki veru- lega innsýn þeirra í lífsgátuna, enda muu honum ekki ætlað annað hlutverk en vekja kátinu eina kvöldstund. Ekki dreg ég í efa, að þeim tilgangi muni leikurinn rm i heimalandi sinu, þar sem fyndnin í til- svörunum nýtur sín betur en í þýðingu og leikararnir skilja og túlka með léttleika og hraða það sem gerist. Leikararnir okk- ar ráða ekki sem bezt við túlkun þessan alvörulitlu en bráðfyndnu manngerða. Ró bert Arnfinnssyni lætur betur að skapa alvarlegar persónur en lausagopa, þólt ekki verði sagt, að hann gerði ekki allnokk- uð úr eiginmanninum. Rúrik Haraldsson var í sjálfu sér ekki lélegur elskhugi að því er séð varð, en ósköp var maðurinn laus við að vera franskur. Þóra Friðriks- dóttir hafði bæði vöxtinn og skapgerðina á móti sér í hlutverki eiginkonunnar. Þóra er alltof virðuleg manneskja til þess að geta breytt sér í annað eins fiðrildi og eiginkonan var, enda trúði maður því aldrei, að hana langaði í raun og veru að skipta eins oft um hvilunautinn í litla kofanum eins og raun var á. Beztur þótti mér leikur Jóhanns Páls- sonar í villimanninum og kom það nokkuð á óvart, þvi ekki minnist ég mikilla af- reka af hans hálfu áður. Ekki er nema gott eitt um það að segja, að Þjóðleikhúsið sýni gamanleiki við og við, en þar eð hlutverk þeirra er einkum að skemmta fólki og bæta fjárhag leik- hússins, verður að vanda val þeirra mjög vel og að þessu sinni hefur léttleiki á er- lendu sviði sennilega villt veljanda sýn. Um þýðingu Bjarna Guðmundssonar er ég í einlægni sagt ekki fær um að dæma, en með tilliti til þess, að hann er allvan- ur að íslenzka erlend leikrit, finnst mér ekki ástæða til að ætla annað en hún sé allgóð. 106 A K R A N E S
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Akranes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.