Akranes - 01.04.1958, Page 42

Akranes - 01.04.1958, Page 42
þeim fylgdu. Engin sjúkleg mannvonzka svo djöfulleg, að hann þekkti ekki regin- djúp hennar. í harmleiknum „Faðirinn“ sýnir Strindberg okkur hvernig mannvonzka konu leggur lífshamingju eiginmanns hennar í rústir og sviptir hann að siðust'i vitinu. Þetta er stórkostleg persónusköpun, aðeins mætti finna henni það til foráttu, FAÐIRINN: — Arndís Björnsdóttir í hlutverki fóstrunnar. að hún er fullill, það örlar hvergi á góð- semi, þaðan af siður ást. Eigingirnin og mannvonzkan ráða einar lögum og lofum i hugarheimi þessarar konu, sem er prýði- lega leikin í Þjóðleikhúsinu af Guðbjörgu Þorbjarnardóttur. Guðbjörgu hefur tekizt að greipa slikan ískulda í svip sinn, að hrollur fer um áheyrendur allt aftur á öftustu bekkina í Þjóðleikhússsalnum. En jafnframt kuldanum birtist í fasi Guð- bjargar meiri virðuleiki en ég minnist að hafa séð hana sýna áður og hefur henni þó oft vel tekizt hvað virðuleika snertir. Riddaraliðsforingjann mann hennar leikur Valur Gíslason. Valur er eins og öllum leikhúsgestum er kunnugt einn þeirra leikara, sem aldrei bregðast, en í þetta sinn leikur hann ógleymanlega. Það gengur töfrabrögðum næst hvernig hann breytist úr virðulegum en jafnframt ó- hamingjusömum riddaraliðsforingja i sturlaðan mann, sem hefur drukkið í botn bikar dýpstu sorga og vonbrigða. Með djöfullegum fláttskap hefur konan lians snúið dótturinni, sem hann ann hug- ástum, frá honum og jafnvel vélað fóstru hans (Amdís Björnsdóttir) til þess að færa hann í spennitreyju. Arndís leikur þessa gömlu konu með ágætum. Hún or eina persóna leiksins, sem alltaf lætur stjórnast af því sem hún telur öðrum fyrir beztu. Innileikinn í rödd hennar, ]>egar hún sefar hirin geðsjúka mann, er með því hugþekkasta, sem heyrzt hefur á sviði Þjóðleikhússins. Ása Jónsdóttir vex af meðferð sinni á dótturinni, Bertu, en hlutverkið er of lítið til ]>ess að sýna veruleg tilþrif. Haraldur Bjömsson skapar ágætan prest, sem brynjaður guðs orði og góðum siðum frá hvirfli til ilja forðast að gera rétt og þola ekki órétt. Erlingur Gislaso'i fer þokkalega með Nöjd, en tækifærin til afreka eru litil í þvi hlutverki. Jón Aðils skapar prýðilegan efasemda- mann í hlutverki læknisins, sem ekki veit hverju hann á að trúa en dregur mjög í efa sálsýki riddaraliðsforingjans. Með til- liti til þess hversu skammt sálsýkifræði var á veg komin á þeim árum þegar Strindberg samdi leikrit þetta, verður ekki annað sagt en læknirinn sleppi furðu vel frá þessu leiðindamáli öllu saman. Það fer ekki milli mála, að „Faðirinn" er ein allra bezta sýning, sem sýnd hefur verið í Þjóðleikhúsinum og eiga Lárus Pálsson leikstjóri og leikendur allir heiður skilið fyrir hversu vel hefur tekizt. Þetta er í fyrsta sinn sem Þjóðleikhúsið 110 AKRANES

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.