Akranes - 01.04.1958, Page 45
•A
★
★
K'ySSTU MIG KATA:
Ulla Sallert og Jón Sigur
björnsson. —•
temja skass eða pilsvarg nieð aðferðum
sem þarna eru sýndar á sviði hins virki-
lega lífs, en gott væri að mega trúa þvi
að svo væri, því ekki er því að leyna, að
gallað skap pilsvarga hefur eyðilagt ham-
ingju margra heimila.
Sænska söngkonan, Ulla Sallert, leikur
skassið, Frú Sallert hefur aðlaðandi rödd
og leikur hennar er hressilegur í hvívetn i.
Hiin er ekki feimin við að sýna skaphita
þar scm það á við, og gætu sumar kyn-
systur hennar hér tekið sér það til fyrir-
myndar. Sá kostur hefur verið tekinn, að
láta frúna syngja á sænsku og ber að
fagna því, að hún skuli fá að syngja á
móðurmáli sínu, því litlar líkur eru til, að
hún hefði náð forsvaranlegum tökum á
íslenzkum söng- og taltextum.
Jón Sigurbjörnsson leikur hitt aðal
hlutverkið og liefur ágæt tök á bæði söng
A K R A N E S
113