Akranes - 01.04.1958, Qupperneq 47

Akranes - 01.04.1958, Qupperneq 47
Tiniistarmiíl * Samsöngur kirkjukóra Borgarf jarðarprófastsdæmis. Kirkjukórasamband Borgarfjarðarpró- fastsdæmis minntist 10 ára afmælis síns hinn 4. maí, með samsöng allra kóranna hér í Bíóhöllinni. Söngstjórar voru Björn Jakobsson og Magnús Jónsson, en organ- leikarar voru Kjartan Jóhannesson og Bjarni Bjamason. Um skeið hefur Kjartan þjálfað kórana, og má segja, að furðu gegni hve söngur þeirra er samiilegur, ef miðað er við mannfæð í sveitunum og erf- iðleika á nægjanlega miklum æfingum. Þarna munu alls hafa sungið um 130 manns. Einu laginu stjórnaði Bjarni Bjamascn frá Skáney, sem um tugi ára hefur verið óþreytandi forvígismaður Borgfirðinga innan Skarðsheiðar í söng- málum héraðsins. Allt félagslíf er dautt án söngs, messa og kirkjuganga er ekki nema svipur hjá sjón, ef ekki er sæmilegur söngur og sem flestir kirkjugestir syngi með. Ávörp fluttu: Biskup landsins, Ásmund- ur Guðmundsson, Sigurjón Guðjónisson prófastur og síra Jón M. Guðjónsscn. ★ Sinfóníuhljómsveit íslamls á Akranesi. I’essi heimsókn var 12. maí s. 1. Stjórn- andi var Róbert A. Oltósson, en einsöngv- ari Þorsteinn Hanncsson. Efnisskráin var ágæt það sem hún náði, en hún var of stutt. Leikur sveitarinnar var góður þótt ekki væri hún fullskipuð og hljómsveitar- stjórinn er ágætur. Ég er aldrei hrifinn af söng Þorsteins Hannessonar, ])ótt á stundum geri hann ýmsum verkefnum sæmileg skil. Aðsókn var sæmileg, en betri hefði hiin mátt vera. ★ Tónlistarskólinn. Hann starfaði með svipuðu sniði og áður. Flestir neinendurnir stunduðu píanó leik, eða um 40. Þessir voru kennarar, frú Anna Magnúsdóttir, sem jafnframt er skólastjóri, frú Sigríður Auðuns, fní Helga Volland og Magnús Jónsson. Árshátíð hélt skólinn í janúar s. 1. þar sem skemmt var með píanóleik, spilað á blokkflautu, ein- leik á fiðlu, og svo kórsöng, undir stjórn Magnúsar Jónssonar. Skólanum var slitið 2. mai, en nem- endatónleikar voru haldnir 3. júní. Kenn.da fór fram í píanóleik, fiðluleik, blokkflautu- og orgelleik. Allt er í óvissu um húsnæðismál skólans, svo og um kenn- ara næstu vetur. Þyrfti margvíslega að hlúa betur að þessum visi en enn er gert, þvi að ekki eykst menningin hér við að leggja hann niður. ★ Karlakór Akureyrar. Kórinn var nýlega í söngför um Suður- land og söng fyrst hér á Akranesi. Á söng- skránni voru 15 lög útlcnd og innlend, en aulc þess söng kórinn nokkur aukalög. Söngnum var mjög vel tekið, og var sæmi- leg aðsókn. Kórinn er vel æfður, samstillt- ur, og syngur mjög smekklega. Ekki eru þar allt afburðaraddir fremur en gerist og gengur, en áferðin og heildarsamræmi er ágætt. Söngstjóri var Áskell Jónsson, sem gegnir sinu hlutverki af smekkvísi og ná- kvæmni. Undirleik annaðist Guðrún Krist- insdóttir ágætlega. Einsöngvarar voru: Ei- rikur Stefánsson, Jóhann Konráðsson og 11/5 A K R A N E S
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Akranes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.