Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1909, Blaðsíða 26
ÚR TILSKIPUN 3. FEBRÚAR 1836.
VII. atr, urn almanök;
1. gr. Brjóti nokkur það einkaleyfi, sem Kaup-
mannahafnar háskóla er veitt til að gefa út almanök,
annaðhvort með því að flytja til íslands eða selja útlend
almanök, eða með því að láta prenta nokkurt almanak
án leyfis frá háskólanum, þá skal hann gjalda frá 2o
til 200 rbdala sekt, samkvæmt því sem ákveðið er í
Danmörku (op. br. 5. Ág. 1831); þau almanök eru og
upptæk, sem finnast hjá þeim hinum seka, og gjaldi þal’
á ofan !/4 rbd. silfurs fyrir hvert þeirra. Helming sekta-
fjárins og almanaka þeirra, sem upptæk verða, á sá,
sem háskólinn hefir selt prentleyfi til almanakanna, en
annar helmingur gengur til stjörnuturnsins í Kaup'
mannahöfn.
2. gr. Yfirvöldin skulu gæta þess nákvæmlega, að
enginn skerði þetta einkaleyfi háskólans, sem nú var
talið.
3. gr. Öll mál, sem rísa af að einkaleyfi þetta er
skert, skal fara með sem opinber lögreglumál.
Eptir þessu eiga allir þegnlega að breyta.
Almanak þetta kostar óinnfest I o aura, en ínnfest II
aura, alstaðar á Islandi og í Danmörku; en Gyldendals bóka-
verzlan í Kaupmannahöfn, sem hefir sölu-umboðið, er skyld til ,
að selja hvert á 8 aura óinnfest, og innfest á 9 aura, þeim sem
kaupa 50 eða þaðan af fleiri. Slíkum kaupendum er og heimilt
að skila aptur óseldum almanökum, ef það er gjört innan árs-
loka 1909; verður þeim þá borgað andvirði þeirra, sem óslcödduð
eru, en þó svo, að hin innfestu verða borguð sem óinnfest; skyldir
eru þeir og að sýna reikninga bókaverzlunarinnar, ef krafizt verður.