Skólablaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 48
SKÓLAD LAÐIÐ
Harrison Ford hvoð?
Helmingurinn lygi og hiH
ollf eintóm svik!
Við undirritaðir, horskir liðs-
menn zetunnar í hvívetna og
boðberar sannleikans, teljum
okkur knúna til þess að gefa
eftirfarandi yfirlýsingu vegna
óíþróttamannslegrar framkomu, aug-
ljósra rangfærslna og aðdróttana lítils-
virts niðurpárara þess annars mæta fé-
lags, Framtíðarinnar, í snepli þeim er
hún á öndverðum Þorra útbýtti og
kenndur er við truntu þá er sólu dró
fram og aftur í goðafræði forfeðra
vorra (Skinfaxa).
í áðurnefndu öndvegisriti heldur
óbermið „Kristján“ Guy Burgess því
hikstalaust og án minnstu eftirsjár
fram að bekkjardeild sú er ber staf of-
urmennisins og hann situr í, eigi sigur
í fjórðungsúrslitum spumingakeppni
Hins íslenska menntaskóla, anno
domini 1993, vísan. Hvflík ósvífni
hefur ekki birst á prenti síðan Pað-
reimur Zenons leit dagsins ljós og
villti um fyrir grandalausri alþýðu
gríkverskra endur fyrir löngu. Viðsjár
hafa lengi verið með mönnum en nú
tekur út yfir allan þjófabálk. Þess
kunnugur að vígbúið zetulið biði
þeirra kumpána í fyrrgreindu ati,
Við undirritoðir,
horskir liðsmenn
zetunnor í hvívetno
og boðberar sonn-
leikons, feljum
okkur knúno ril
þess oð gefo eftir-
forondi yfirlýsingu
vegno óíþrólto-
monnslegror from-
komu, ougljósro
rongfærslno og
oðdróftono.
greip hann það hálmstrá að lýsa fyrir-
fram yfir sigri sinna manna í fullvissu
þess að slíkt skelfdi svinnar zetur frá
keppni.
En allt kom fyrir ekki.
Önnur eins upprúllun hefur ekki
sést í spurningakeppni hérlendis. (Sie
wurden íiberrollt).
Lið okkar zetumanna ákvað í byrj-
un að gefa andstæðingnum gott for-
skot og gekk það eftir. Þegar staðan
var orðin 20-29 og þrjár spumingar
eftir töldum við nóg komið og hófum
keppnina. Að sjálfsögðu kunnum við
svör við þeim öllum og hirtum níu
stig. I bráðabananum vorum við-
komnir í essið okkar og unnum auð-
veldlega.
í raun er markmiðum okkar náð, nú
er fyrrgreindir folar hafa heltst úr lest-
inni. Nú em aðeins eftir í keppninni
bekkir spurningarliðs okkar MR-
manna auk vors frækna zetuliðs. Því
sjáum við lítinn tilgang með fram-
haldi hennar, slíkt gæti skaðað orðstír
þeirra.
Einar, Orn Úlfar og Guðjón, 6.-Z.
Ingunn Ingimorsdóffir:
Annóll 4. bekkjorróðs
Olíkt öðrum félögum og ráð-
um var eitt í vetur sem bar
nafnið 4. bekkjarráð. í því
áttu sæti 10 nemendur, einn
úr hverjum bekk eins og lög gera ráð
fyrir. Starfsemi þess var þó lík öðrum
félögum og ráðum og má þar nefna
ferð í Selið, skemmtikvöld, útgáfu
blaðs, eina litla og sæta teiti og fullt,
fullt, fullt af fundum. Sú ferð sem far-
in var í Selið stóð því miður ekki und-
ir sér þar sem við vorum blekkt af
nemendum sem krossuðu við nafn sitt
að þeir ætluðu í Selið en fóru síðan
ekki. En við höfðum ráð undir hverju
einasta rifi og brugðum á það ráð að
hafa lítið samkvæmi og okra á miða-
verði til þess að koma út í + en ekki -.
Það tókst og einhverjir hafa kannski
tekið eftir því að 10 nemendur vantaði
frá föstudegi yfir á þriðjudag en það
var einmitt þá sem 4. bekkjarráð fór í
innkaupaferð til Edinborgar.
Við ákváðum að skemmta bekkjar-
félögum okkar og láta þá skemmta
okkur tunglskinsdaginn 26. október
og tókst það með miklum ágætum
fyrir utan gest kvöldsins sem taldi sig
Þó nokkur umfjöll-
un vor í seinosro
Skólobloði um
bloð sem við góf-
um út og verður
ekki forið úr í þó
sólmo hér.
vera gest kvöldsins og næturinnar og
var með efni til þess að tala allan þann
tíma. Þá voru góð ráð dýr og nýttum
við okkur tækifærið þegar hann tók
upp vasaklút til að þerra á sér ennið
og settum hann í poka og út. Gat þá
dagskráin haldið áfram og voru allir
sammála um að þetta kvöld hefði
heppnast með miklum ágætum.
Ahugasamastur var þó Hannes hús-
vörður sem mætti á slaginu 2300
klukkutímar og hjálpaði okkur að taka
til. Áhugi hans lá þó í því að koma
öllum heim að sofa og gladdi þar með
nokkrar mæður. Þó nokkur umfjöllun
var í seinasta Skólablaði um blað sem
við gáfum út og verður ekki farið út í
þá sálma hér.
Fyrir hönd 4. bekkjarráðs,
Ingunn Ingimarsdóttir