Skólablaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 20
SKÓLADLAÐID
Sérstæð sakQmol
Hvorf PqIIqs Aþenu
sjálfri, eins nákvœmlega og þú manst <
hana?
„Það var þannig að við vorum með
stóran jeppa og keyrðum niður eftir
um nótt, þá var hægt að bakka alveg
upp að styttunni. Bandi var slegið um
Aþenu blessaða og henni kippt niður
af stallinum með bflnum. Styttan
hafði verið fest niður með nokkrum
boltum en þeir gáfu sig við átakið.
Nú, svo var búið að gera ráðstafanir
til þess að við kæmumst inn í skólann,
ég ætla nú ekki að upplýsa hvernig
það var allt saman - en inn komumst
við með styttuna og grófum hana í
kolabing í kjallara gamla skólans.
Við vissum að það yrði uppistand
þegar hvarf Pallas Aþenu uppgötvað-
ist og höfðum hugsað okkur að skila
henni aftur að nokkrum dögum liðn-
um, en eins og ég segi: málið varð
svolítið stærra en við bjuggumst við.
Það var kallað á lögreglu og blöðun-
um þótti málið hið athyglisverðasta,
ýmsir komu með tillögur og vísbend-
ingar um það hvar styttuna væri að
finna. Einhver þóttist hafa séð menn
henda stórum hlut í Tjömina og í
framhaldi af því var hún margslædd,
þetta var voðalegt tilstand og málið
fór stækkandi með hverjum deginum.
Blöðin héldu áfram að fylgjast með
og birta fréttir af framvindu mála og
Rannsóknarlögreglan var komin í
málið. Við vorum orðnir skíthræddir
um að við fengjum þetta rækilega í
hausinn aftur en ákváðum að bíða
með frekari framkvæmdir og sjá hvort
ekki róaðist. Svo leið einhver tími,
umtalið hafði minnkað og við ákváð-
um að láta til skarar skríða. Við fór-
um nokkrir niður í kjallara, tókum
styttuna og færðum hana inn á skrif-
stofu til rektors. Af einhverjum á-
stæðum komumst við inn óséðir,
Guðni hafði sennilega gleymt að
læsa, og stilltum styttunni upp á skrif-
stofustólinn.“
Hvað fannst fólki um þetta allt
saman ?
„Nú, öllum í skólanum þótti þetta
æðislega sniðugt en við pössuðum vel
upp á að enginn kæmist að því hverjir
hefðu verið að verki, enginn utan
hópsins vissi neitt og ég held að ekk-
ert hafi spurst út um skólann. Þó
lagði Guðni mikla áherslu á að hinir
seku fyndust, mig minnir meira að
Þetta var á tímum '68 kynslóð-
arinnar, þegar ungt fólk gerði
uppreisn gegn hefðum . og
borgaralegum gildum, og fyrir
mörgum var Menntaskólinn útvörður
gamalla hefða og íhaldssemi. Unga
fólkið tók upp á ýmsu og gaf ímynd-
unaraflinu lausan tauminn. Ymsir at-
burðir áttu sér stað, sem seint líða
mörgum úr minni. Einn þeirra er
stuldur Pallas Aþenu haustið '72.
Skólaárið var nýhafið þegar undarleg-
ur atburður átti sér stað. Morgun einn
þegar nemendur komu í skólann blasti
við þeim heldur óvenjuleg sjón:
Pallas Aþena, stolt og höfuðprýði
skólans var horfin! Landsmenn stóðu
á öndinni og dagblöðin fylgdust
grannt með framvindu mála. Skóla-
blaðið komst í samband við einn þjóf-
anna eftir miklum krókaleiðum, af
skiljanlegum ástæðum er nafni hans
haldið leyndu. Hér á eftir birtist saga
þess sem raunverulega gerðist.
Hvaða ástæður lágu að baki því að
Pallas Aþena var fjarlœgð?
„Nú, þetta byrjaði sem létt grín í
einhverju partýi og snerist svo upp í
að menn æstu hver annan upp í að
framkvæma þetta. Mig rekur ekki
minni til að nokkrar sérstakar ástæður
hafi legið að baki þessu, þetta voru
engin mótmæli eða slíkt. Við gerðum
þetta bara til þess að hafa gaman af
því. Úr stuldinum varð miklu meira
mál en við ætluðum, þetta vatt upp á
sig og endaði svo sem heljarinnar lög-
reglumál.“
Gœtirðu lýst framkvœmdinni