Skólablaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 54
SKÓLADLAÐIÐ
í vikunni á eftir var Karaokee-
kvöld í kjallara Cösu, sem var létt
upphitun fyrir þá sem enn voru að æfa
sig fyrir Söngkeppni hins íslenska
Menntaskóla, sem var á Hótel Islandi
þann 27. janúar ásamt dansleik. Þátt-
takendur voru alls 17 og er haft eftir
dómnefndinni að keppnin hafi verið á
„háum standard“. Keppnin var glæsi-
leg, og sú sem bar sigur úr býtum
þetta kvöld var ung snót úr 3.-C, Þór-
anna Kristín Jónbjörnsdóttir, sem
söng lagið „Dimmar rósir“, áður flutt
af Tatörum. Þóranna sýndi síðar, þann
18. mars að hún var ekki aðeins best í
MR heldur best yfir alla framhalds-
skólana, þegar hún sigraði söng-
keppni framhaldsskólanna svo fræki-
lega. Var þetta annar sigur MR-inga í
röð í söngkeppninni. Ekki lakur ár-
angur það!
MR-ingar hafa það orð á sér að
vera gjamir á að halda í hefðimar, og
næsti stóratburður varð bara til að
kynda undir þessa staðhæfingu frekar
en hitt, þegar haldið var Þorrablót í
kjallara Casa Nova. Sérstakur gestur
kvöldsins var Sveinbjöm Beinteins-
son allsherjargoði. Þorri var blótaður
að heiðnum sið, hefðbundinn þorra-
matur snæddur (þó var íslenska
brennivíninu sleppt!), íslenskar þjóð-
sögur voru lesnar og það var sungið.
Tveimur dögum seinna, eða 4. mars
var Stórlistakvöld í Tónabíói í sam-
vinnu við Listafélag MH. Mjög góð
mæting var og heppnaðist dagskráin
með ágætum.
En þá var komið að því að drátt-
hagir nemendur fengju að njóta sín.
Þeir fengu tækifærið og gripu það
þegar myndlistarsýning nemenda
hófst í kjallara Cösu í kjölfar Kaffi-
húsadags 10. mars. Meðal verka á
sýningunni var eitt sem var að þróast
fram á síðasta dag; pappír var hengd-
ur á vegg og var gestum og gangandi
með sköpunargleði boðið að mála að
vild. Margir höfundar að því verki !
Sýningin stóð í rúma viku, og stóð
enn þegar skemmtinefnd og tónlistar-
deild höfðu síðasta tónlistarkvöld
vetrarins í röð sinni um tónlistarkvöld
tengd mismunandi tónlistarstefnum, á
Salsa-kvöldinu. Þar lék hljómsveit
James Olsen undir, og hafði ein við-
staddur það að orði, að hann hefði í
stutta stund haldið, að hann væri
kominn í regnskóga S,- Ameríku, svo
suðræn var sveiflan.
I vikunni 14.-20. febrúar var haldið
uppá 110 ára afmæli Framtíðarinnar.
Haldið var upp á atburðinn með ýms-
um hætti, meðal annars með vel
p * heppnaðri veislu í Tjamarsal Ráðhúss
Reykjavíkur. Seinni árshátíð vetrar-
ins, árshátíð Framtíðarinnar var svo
24. febrúar. Þótti hún takast með
ágætum.
Fyrsti stóratburður mars-mánaðar
var þegar Megar kom og spilaði og
söng í kjallaranum. Daginn eftir, 4.
mars framsýndi á Herranótt Drekann
eftir Jewgeni Schwarz. Næstu daga
bauðst mönnum svo að fara á sýning-
una, og nýttu sér velflestir það tæki-
færi. Ekki var ónýtt að geta brugðið
sér ögn úr grámyglulegum hversdags-
leikanum inn í töfraheim leikhússins.
Og þá var komið að því að taka
fram íþróttaskóna. Niðurtalning fyrir
íþróttahátíð hófst í Nemanum 9. mars
með kappáti kroppatemjara Mennta-
skólans, þeirra Rögnu Láru og Hauks.
Matseðilinn: Hamborgari, franskar,
kokteilsósa (324 kkal) og kók (215
kkal). Haukur sigraði, og það gerðu
einnig ýmsir aðrir sem öttu kappi í
Valsheimilinu á þróttahátíðinni dag-
inn eftir. Ragna Lára vinnur bara
næst. Hún þarfnast augljóslega meiri
æfingar!
Stórrokktónleikar Tónlistardeildar
voru 11. mars og komu þar fram
nokkrar hljómsveitir.
Og þá var kominn kosningarandi í
loftið. Kynningarrit fyrir kosningar,
Cursus Honorum, leit dagsins ljós,
framboðsfrestur rann út og kosninga-
blaðið kom út. Kunnugir telja að
aldrei hafi jafnmargir verið í framboði
og einmitt þetta vor. Voru kosningar
og að kvöldi sama dags, 24. mars var
kosningavaka Skólafélagsins og
Framtíðarinnar. Ekkert aðgöngumet
var slegið í kjallara Cösu það kvöld,
en hugsanleg skýring á því er að beint
kosningaútvarp var sent út að öldum
ljósvakans, nánar tiltekið á UTRAS. 5
dögum fyrir kosningar hófst útvarp
MR á ÚTRÁS. Þessa viku voru ein-
ungis MR-ingar við dagskrárgerð,
viðtöl voru tekin við frambjóðendur
og fleira mætti telja. Menn gátu því
varið tíma sínum sitjandi við viðtækin
í teitum víðs vegar um bæinn kosn-
ingakvöldið sjálft. Að kosningavök-
unni lokinni var kosningaball á Ing-
ólfskaffi. Ballið fór ágætlega fram og
átti það sammerkt með Busaballinu
að færri komust að en vildu.
Ýmsir eru þeir atburðir sem náð
hafa að skipa sér fastan sess í hugum
Menntaskólanema í vetur. Efst ber að
nefna kvikmyndakvöld sem kvik-
myndadeild Listafélagsins hefur stað-
ið fyrir á um hálfsmánaðarfresti.
Kvikmyndadeildin hefur verið mjög
öflug í vetur og hefur nemendum ver-
ið gefinn kostur á að sjá ýmsar perlur
kvikmyndanna. Einnig hafa verið
haldin nokkur Listafélagskvöld með
ýmsa listadagskrá.
Neminn hefur verið á hverjum
föstudegi í allan vetur í umsjá scribu
og quaestors. Neminn hefur verið
með hefðbundnu sniði; atriði hafa
verið úr skólanum, leikhús borgarinn-
ar hafa verið með kynningar,
þeldökkur dansari hefur dansað í
kjallaranum við takt bumbusláttar og
fleira mætti telja. Selsferðir hafa verið
famar, bæði með einstakar bekkjar-
deildir og eins í afmarkaðar ferðir,
eins og kvikmyndaferð, kórferð
o.s.frv., og bekkjarráðin hafa haft
skemmtikvöld.
Af útgáfu er það að segja að áður-
nefndar mánaðaráætlanir hafa birst
sjónum nemenda mánaðarlega,
Skólatíðindi hafa komið út svo að til
hálfsmánaðarlega, 2 vegleg skólablöð
hafa komið út á árinu og myndablaðið
Vetur.
Til viðbótar við það sem hér er að
ofan talið, hefur Framtíðin staðið fyrir
ýmissi starfsemi í vetur, hún hefur
staðið fyrir ræðukeppni og spurninga-
keppni bekkjardeilda, málfundum,
námskynningu ræðunámskeiði Þórs-
merkurferð og áðurnefndri árshátíð,
gefið út söngbók, Skinfaxa, rit um
ræðumennsku, Hannes í fjölda ein-
taka og margt, margt fleira. Sú saga
verður þó ekki sögð hér, það verður
eftirlátið „Framtíðarmönnum.“
Að lokum má geta þess að ýmsir
menn innan skólans grófu nú í vetur
upp orðatiltækið (málsháttinn?) „MR-
ingar þurfa ekki hroka, þeir eru best-
ir“ í kjölfar velgengni skólans í hinum
ýmsu viðureignum. Velgengni full-
trúa MR hefur sett töluverðan svip á
seinna misseri skólaársins, og óneit-
anlega er listinn glæsilegur. Fulltrúar
MR unnu stærðfræðikeppni fram-
haldsskólanna, eðlisfræðikeppni
framhaldsskólanna og ljósmyndasam-
keppni framhaldsskólanna sem Ljós-
brot stóð fyrir. Við unnum róðra-
keppni framhaldsskólanna í bæði
karla- og kvennaflokki, MR-ingur
vann söngkeppni framhaldsskólanna,
við urðum í 2. sæti í MORFÍS og síð-
ast en ekki síst unnum við spuminga-
keppni framhaldsskólanna 2. april
síðast liðinn, þegar lið MR og Versló
áttust við í beinni útsendingu í Sjón-
varpinu.
Og hvernig tökum við MR-ingar
svo þessu? Af landsþekktri hógværð!
En það er von mín og trú að haldi
MR-ingar áfram að hafa gaman af því
sem þeir eru að gera og gera það vel,
þá má sjá félagslífið og sigurgöngu
MR-inga á næstu árum björtum aug-
um.