Skólablaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 12
SKÓLADLAÐID
Jóhann H. Sigurðsson, 5. Z.
Skók og mát
Skákkeppni kennara og nemenda fór fram þriðju-
dagskvöldið 16. febrúar. Var hún liður í hátíðahöld-
um vegna 110 ára afmælis Framtíðarinnar. Keppni
þessi var áður árviss viðburður hér í skólanum en
hefur fallið niður í nokkur ár.
Stjórn Skákfélags Framtíðarinnar með formanninn,
Lárus Knútsson, í broddi fylkingar bar veg og vanda af
undirbúningi og framkvæmd keppninnar og smalaði sam-
an liði nemenda. Bragi Flalldórsson, kennari og skákmeist-
ari, hóaði kennaraliðinu saman og hlýtur bestu þakkir fyr-
ir.
Effirfoldir seffusf oð fofli fyrrnefnf kvöld:
Fyrir hönd kennara: Þór Rögnvaldsson, Gylfi Guðna-
son, Bragi Halldórsson, Skarphéðinn Pálmason, Helgi
Ingólfsson og Þorsteinn Jónsson.
Fyrir hönd nemenda: Alfreð Hauksson, Sigurður K. Eg-
ilsson og Jóhann H. Sigurðsson, 5. bekk, Baldvin Gísla-
son, Lárus Knútsson, Eyjólfur Snjólfsson, Páll Arnason og
Ámi Þorvaldsson, 4.bekk og Eyjólfur M. Kristinsson,
3.bekk.
Áður en skákklukkurnar voru settar í gang sáu kennarar
sér leik á borði. Bragi Halldórsson kvað sér hljóðs og
minnti á, að kennarar ættu eftir að gefa árseinkunnir og því
skyldu nemendur ekki teygja sig of langt við skákborðið.
Að sjálfsögðu kom þetta nemendum algjörlega í opna
skjöldu.
Þrátt fyrir yfirlýsingar kennara náðu nemendur forskoti
strax í fyrstu umferð, 4-2. í annarri umferð héldu kennarar
jöfnu en í þeirri þriðju unnu nemendur aftur og þá var
staðan orðin vænleg hjá þeim, 11-7. Nú var að duga eða
drepast hjá kennaraliðinu en það sýndi gífurlegan styrk í
tveimur næstu umferðum og náði forystunni, 14-16. I
sjöttu umferð varð jafnt en í sjöundu og jafnframt næstsíð-
ustu umferð náðu nemendur að klóra í bakkann. Staðan
fyrir lokaumferðina var 20,5-21,5 kennurum í vil. Eftir
gífurlega baráttu, afleiki, hrókeringar og mannsfómir kom
í ljós að bræðrabylta hafði orðið niðurstaðan í síðustu um-
ferðinni. Því var keppninni lok'ið með naumum sigri kenn-
ara, 23,5-24,5.
Keppnin fór hið besta fram og var öllum til sóma. Von-
ast ég til að hefðinni hafið verið komið á að nýju og að
keppnin megi verða haldin um ókomin ár.
Umferð Úrslit 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8.
Kennarar 2 3 2 5 4 3 2,5 324.5
Nemendur 4 3 4 1 2 3 3,5 323.5
Árangur einstakra skákmanna (vinningar/tefldar skák-
ir):
Kennarar:
Bragi Halldórsson............................... 7/8
Skarphéðinn Pálmason.......................... 4,5/8
Gylfi Guðnason.................................. 4/8
Þór Rögnvaldsson................................ 4/8
Helgi Ingólfsson.............................. 3,5/8
Þorsteinn Jónsson............................ 1,5/8
Nemendur:....................................
Lárus Knútsson................................ 5/6
Jóhann H. Sigurðsson............................ 5/6
Páll Árnason.................................... 5/7
Baldvin Gíslason.............................. 2,5/5
Árni Þorvaldsson.............................. 2,5/6
Eyjólfur M. Kristinsson......................... 2/6
Sigurður K. Egilsson............................ 1/5
Alfreð Hauksson............................... 0,5/5
Eyjólfur Snjólfsson............................. 0/2
Hulda Árnadórtir og Asrhildur Sturludórrir, fimmrabekkjarróði
Úískriftorferð
/
Iársbyrjun brugðu meðlimir fimmtabekkjarráðs undir
sig betri fætinum og heimsóttu allar helstu ferðaskrif-
stofur á höfuðborgarsvæðinu. Erindi þeirra var að leita
hagstæðra tilboða í útskriftarferð sem farin skal næst-
komandi sumar. í upphafi vetrar var mikið gælt við þá
hugmynd að fara til Grikklands, bekkjarráð lagði vitaskuld
mikið á sig til að verða við óskum árgangsins en þegar öllu
var á botninn hvolft reyndist mun vænlegra að heimsækja
spænsku eyna Mallorca, sem undanfama áratugi hefur átt
gífurlegum vinsældum að fagna meðal landsmanna. Þann
8. ágúst munu því um 100 sólþyrstir menntskælingar
leggja af stað í þriggja vikna menningarferð til gleðibæjar-
ins Magaluf á suðurströnd Mallorca, viku síðar munu svo
40 bætast í hópinn. Dvalið verður á gistiheimilinu Royal
4 Magaluf er getið hefur sér orðs sem gleðistaður mikill.
I m Fyrir áhugasama verður auk þess unnt að fara í stuttar ferð-
ir bæði til Barcelona og Ibiza gegn vægu gjaldi. Fyrir orlof
þetta þurfa menntskælingar einungis að reiða af hendi
55.600 krónur fyrir þrjár vikur og 48.900 fyrir tvær vikur.
Söfnunarstarf hefur verið með hefðbundnum hætti. Fyr-
ir áramót seldu ferðalangar bæði rækjur og jólapappír,
stuttu eftir áramót tók svo við lakkríssala og fyrir nokkru
hófst rækjusala á ný. I sameiginlegan sjóð hefur einnig
nokkuð safnast, þá einkum með derhúfusölu, stutterma-
sölu, pennasölu og dósasöfnun. Auk þessa rann ágóðinn af
eftirminnilegu kvöldi í Hressingarskálanum í sameiginleg-
an sjóð. Ymsir hafa safnað dágóðri upphæð, aðrir hafa á
engan hátt verið nóg ötulir við að pranga margvíslegum
varningi inn á vini og ættingja. Hvað sem því líður hefur
fimmtabekkjarráð enn ýmislegt í pokahominu og hyggst
halda söfnunarstarfi áfram af sömu einurð eitthvað fram á
sumar.