Skólablaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 19
Páll Árnason, 4.-U. - Henrik Boldvin-Björnsson, 4.-C:.
Hver er sinnor gcefu smiður?
Umfjöllun um listokvöld MR-MH
Á dögunum var haldið listakvöld
sem MR og MH stóðu að. Aðsókn var
með besta móti og var Tónabíó, sem
breytt hefur verið í bingósal, þéttsetið
nemendum þessara tveggja ólíku
skóla og öðrum listunnendum. Dag-
skráin var þétt og tjölbreytt en kynnir
var hinn góðkunni Bogomil Font.
Fyrstur á svið var allsherjargoðinn
sjálfur Sveinbjöm Beinteinsson.
Hann fór með rímur sem hefðu þótt
klúrar og sniðugar ef heyrst hefðu
orða skil en þar sem talað var
óskýrt og ofan í hljóðnema varð
útkoman bjöguð búkhljóð sem
vörðu drjúga stund. Var honum vel
fagnað.
Síðan tók við sýning á einni af
þremur stuttmyndum sem voru á dag-
skrá þetta kvöld. Hét hún því viðeig-
andi nafni „Ökuleyfið afturkallað“.
Fjallaði hún um tvo ofbeldisseggi í
undirheimum Reykjavíkur sem hafa
það áhugamál að limlesta varnarlausa
meðaljóna og kasta síðan þvagi á
fórnarlömb sín. Átti Árni stjömuleik
sem fómarlamb misyndismannanna
og vann sig inn í hug og hjörtu áhorf-
enda er hann horfði þegjandi upp í
bununa sem dundi á honum.
Næstur steig á stokk Dr. Gunni og
frumflutti nokkur frábær rokklög. Að
vísu stóð hann í því allan tímann að
bæla niður uppreisn í magnaranum en
það hindraði hann ekki í að flytja
lýrískan boðskap í lögum eins og
„Mr. Motherfucker“ og „Rassmaður-
inn ógurlegi“. Hlaut hann góðar und-
irtektir.
Næsti dagskrárliður var stuttmynd-
in „Up Yours“ en rauði þráðurinn í
henni var ofneysla hægðarlyfja og
áhrif þeirra á einstaklinginn í neyslu-
samfélaginu. Túlkun
Ingó „kúks“ á hlutverki
sínu olli hneykslibland-
inni aðdáun í salnum
eins og glöggt mátti
heyra á viðbrögðum
áhorfenda.
Skriðbeltaþrungin
ástarljóð frá hinum
stríðshrjáðu lýðveldum
fyrrverandi Júgóslavíu
voru næst til að
skemmta áheyrendum
og flutti Hrafn Jökuls-
son með þeim ádeilu á
stríðsrekstur og félags-
Fyrsfur ó svið vor
ollsherjorgoðinn
sjolfur Sveinbjörn
Beinfeinsson.
Honn fór með
rímur sem hefðu
þóff klúror og
sniðugor ef heyrsf
hefðu orðo skil.
lega firringu sem þar viðgengst nú.
Að margra mati var pistill Páls
Óskars Hjálmtýssonar um svonefndar
„splattermyndir“ hápunktur kvölds-
ins. Páll hafði góð tök á efninu og
Heyrði ég einn
ðhorfendo segjo
oð omobo frö
Mors gæfi gerf
befri mynd þóff
hún væri í
spennifreyju.
virtist kunna vel við sig á sviðinu því
hann sprakk út eins og illgresi þegar
hann ræddi um gildi mannslíkamans í
„splattermyndum“ og hvemig óhugn-
aðurinn væri matreyddur ofan í áhorf-
andann þannig að honum ekki aðeins
ofbyði heldur grenjaði einnig af
hlátri. Síðan sýndi hann valin atriði úr
„splattermyndasafni“ sfnu og ræddi
þau fram og aftur. Eftir sýninguna,
sem ekki verður lýst hér, svaraði hann
spumingum áhorfenda. Var umfjöllun
hans flestum til skemmtunar en
nokkrar smáar sálir, sem virðast vera
fastar í smáborgaralegum gildum
kristins samfélags, ofbauð þessi sýn-
ing svo að þær kvörtuðu við lögreglu-
yfirvöld. Kom þetta alveg flatt upp á
aðstandendur listakvöldsins því þeir
höfðu sérstaklega varað viðkvæmar
sálir við að koma í útvarpinu. Hefði
betur farið á því að þessir þröngsýnu
einstaklingar, sem hér áttu í hlut,
hefðu farið með tíu maríuvers afturá-
bak til bjargar sálu sinni.
En nóg um það, næst kom Sverrir
Stormsker íslandus á sviðið. Hann
hafði ýmislegt í pokahominu, m.a.
drepfyndna málshætti og hjartnæm
ástar-ljóð (!). Brutust út mikil fagnað-
arlæti er Islandus lauk munnhægðum
sínum.
Eftir að áheyrendur voru búnir að
jafna sig eftir flogaveikiskennda hlát-
urskrampa steig hinn grænsprottni
Óttar Proppe á svið og fór með út-
hugsuð ljóð sem svifu eins og regnský
yfir salinn en er skýfall varð drukn-
uðu áheyrendur úr hlátri. Þá kom
Bogomil á örk sinni, en um leið og
hann birtist gufaði hláturinn upp og
áheyrendur vöknuðu til lífsins. Örk
Bogomils strandaði.
Lauk dagskrá kvöldsins á stutt-
mynd Péturs Ingva og Barða, „Plobb,
Plobb, Fizz, Fizz.“ Heyrði ég einn
áhorfenda segja að amaba frá Mars
gæti gert betri mynd þótt hún væri í
spennitreyju. Það þarf þó ekki að
vera slæmur vitnisburð-
ur því við vitum ekkert
um amöbur frá Mars.
Óhætt er að segja að
þeir listunnendur sem
mættu í Tónabíó þetta
fimmtudagskvöld hafi
skemrnt sér vel. Þó voru
skiptar skoðanir um
skemmtanagildi sumra
atriðanna en einróma álit
manna var að spenni-
treyjuatriði Adams frá
Brimum hefði verið
best...
Skriðbeltoþrungin ostorljóð fró
hinum stríðshrjóðu
lýðveldum fyrrverondi Júgóslovíu
voru næst til oð skemmto
óheyrendum og flutti Hrofn
Jökulsson með þeim ódeilu ó
stríðsrekstur og félogslego firringu
sem þor viðgengst nú.
SKOLADLADIÐ