Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1934, Side 44
26
Tímarit Þjóðræknisfélags íslendinga
Fimtud. 12ta:—Vindur vestlægari,
við stefnum nærri austur. Kl. 12
Observation: Lat. 45° Longit. 137°
14'. Rate 9% knots.
Föstud. 13di:—Vindur á hlið að
suðvestan. Við stefndum í austur,
S.A.:—kl. 12 vorum við á Lat. 43°
and Longit. 133° 19'.
Laugard. 14di :•—Vindur sami fyrst,
siðast nærri beint á eftir. Kl. 12 Lat.
41° 11'; Longit. 129° 8'.
Sunnud. 15di:—Logn frá því kl.
12% um nóttina, eða því nær. Gang-
urinn var um 2 knots eða þar um bil.
Um kvöldið vaxandi vindur.
Mánud. 16di:—Byr litlu norðan en
á eftir. Gangur 6.04 knots. Sáum
tvö skip.----------”
Hér endar dagbókin, formaður
fararinnar staddur í liafi, hyllir
livergi til lands en framhjá sigla
tvö skip,—eins konar dulspá um
afdrif þessa leiSangurs.
Eins og daghókin bendir til sátu
þeir Ólafur <og Páll um veturinn í
St. Paul á Kodiak og komu eigi til
Milwaukee fyrr en liðið var á sum-
ar, en Jón hélt áfram beina leið til
New York. Samdi liann þar fyrir
áramótin skýrslu þá, er þeir félag-
ar lögðu fyrir stjórnina, en land-
lýsinguna til félagsmanna í Mil-
waukee tóku þeir saman allir í fé-
lagi áður en skipið sneri heimleið-
is. Eftir nýárið mun Jón hafa
dvaliÖ lengst af í Washington, til
þess að fylgja eftir málum og kröf-
um félagsmanna, en fengið litlu
framkomið. Póru þeir fram á
styrk til landnámsins, einkum létt-
ir á ferðakostnaði, þar sem um svo
erfitt ferðalag var að ræða, ef
landið skyldi reynast ákjósanlegt
til byggingar. Nú gáfu þeir það
álit í skýrslunni að það væri ekki
eingöngu ákjósanlegt, heldur hið
ákjósanlegasta sem þeir hefðu
spurnir af, fyrir Islendinga.
“Það er sannfæring vor, að
Kodiak sé betur lagað land fyrir
íslendinga, en nokkurt annað land,
er vér þekkjum á jörðunni. ”
Allmikið var um þessa skýrslu
og málaleitan nefndarinnar rætt í
helztu stórborgarblöðunum og mælt
eindregið með því að stjórnin
styddi væntanlegan innflutning
frá Islandi til Alaska. Þannig
flytur blaðið “The N. Y. Evening
Post” 22. desember 1874 ítarlega
ritstjórnargrein um þetta mál og
hvetur til framkvæmda. Þar er
komist svo að orði í greinarlok:
“The Jcelanders are certainly a
very desirable class of people to
add to our population, and we be-
lieve that their presence in Alaska
will greatly aid in tuniing that
district, which hitherto has been a
rather costly appendage of the
United States, into a profitable
possession. ”
Ejn málið komst ekki lengra,
hvernig sem á því stóð, þá um vet-
urinn og aldrei inn í Congress.
Pregnritari blaðsins N. Y. Journal,
í Wasbington getur þess í frétta-
bréfi til blaðsins 16. marz að þing-
ið hafi eytt, í þrátt og rekstur út
af frumvarpi um eftirlaun her-
manna, öllum sínum tíma, en ekki
hle^'pt þessu né öðrum nauðsynja-
málum að. Getur hann þess að
Jón Ólafsson hafi verið í Wash-
ington yfir þingtímann til þess að
koma þessu máli á framfæri, en
árangurinn orðið enginn. Segist
liann hafa heyrt hans getiÖ sem
skálds og mentamanns. “Og sjálf-
sagt er hann skáld og vel mentað-
ur, en að mig grunar ónýtur “/or-
stofu fulltrúi” (poor lobbyist);