Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1934, Síða 45
Landskoðunarferðin til Alaska 1874
27
sennilega er ’hann of virðingarkær
til þess. Svo getur það verið líka
að skáld og “forstofu fulltrúar”
séu ekki steyptir úr svipuðum eða
sama leir. En svo kvað liann vera
á förum, innan fárra daga, í heim-
sókn til klettanna og fjallanna á Is-
landi. ” 'Og til Islands fór hann
méð maí hyrjun um vorið. Er
kvæði hans “ Kóngsríkið mitt”
kveðið í New York og- dagsett 30.
apríl, um það leyti sem hann lagði
af stað. Þar með var allri mála-
leitan við stjórnina lokið.
Sjálfsagt spilti það fyiúr fram-
gangi máLsins að Mr. W. Elliott,
nýlendustjóri í Alaska skrifaði
blaðinu Éerald í Cleveland mjög
óvinsamlegt bréf, er birt var í
byrjun janúar, og réði stjórninni
frá að styrkja þetta fyrirtæki á
nokkurn hátt. Gerði liann lítið úr
landkostum í Alaska, kartöflur
yrðu þar ekki stærri en vaihnet-
ur og bygg hefði orðið að slá grænt
síðastl. sumar, fyrir skepnufóður.
Miklar vonir liöfðu verið reistar
á þessu fyrirtæki. Staðurinn var
fundinn, að áliti sendinefndarinn-
ar. þar sem íslendingar gátu búið
út af fyrir sig, nógu nimgóður til
þess að geta tekið á móti öllum, er
flytja vildu í hina nýju heimsálfu,
yfirfljótanle gum kostum búinn til
þess að öllum gæti farnast þar vel.
XTm framtíðina eina var að hugsa,
—skapa sér nýja sögu í nýju landi,
ná þeim þroska, sem meinaður
hafði verið með 600 ára örbirgð
°S' áþján,—leiða í ljós hin glæsi-
leg-u forlög, sem norrænu kyni og
menning-u eru fyrirbúin. Og til
hennar—til hins nýja, komandi
tíma var hugsað á þessa leið:
“Nálega allar, eða enda allar
þær þjóðir, er til Ameríku flytja
aðrar en Isendingar eru akur-
yrkjuþjóðir. Allar þessar þjóðir
leita því akuryrkjulanda liér, og’
þau finna þær miklu austar og
munu enn finna um langar aldir;
þær hafa því enga ástæðu til að
leita svo langt vestur sem til Al-
aska. Islendingum er því auðgef-
ið að byggja einir landið nú um
sinn. En nái þeir þar fótfestu, þá
em þeir sjálfráðir, hvort þeir vilja
lialda því einir eða ekki; þeim eru
nefnilega ótal löglegir vegir opnir
til að halda öðrum þjóðum frá sér;
ef þeir byggja þar nú í fyrstu, þá
fá þeir alt löggjafarvald landsins í
hendur sér, því engir aðrir menn
byggja þar nú nema ómentaðir
skrælingjar, er eigi hafa borgara-
leg réttindi. Þá er þeir hafa lög-
gjafarvaldið (og það fá þeir þeg-
ar), þá gjöra þeir íslenzku að
þjóðtungu þess ríkis, og þeir liafa
rétt til að gjöra. þau lög, að enginn
hafi atkvæðisrétt sem borgari í
landinu, nema hann kunni ís-
lenzku; þetta neyddi þá hvern út-
lending’, sem inn kæmi til að taka
upp tungu og þar með þjóðerni
þeirra og verða Islendingur. Þeir
mundu, líkt og’ önnur ríki, gefa
land af eign ríkisins til eflingar
skólum og mentun; þeir geta gjört
alla þessa skóla íslenzka. Þeir
mundu styrkja til innflutnings
fólks í landið; en þeir gætu ákveðið
að styrkja aðeins íslenzka menn til
innflutnings. Þeir hefðu alveg í
höndum sínum að búa um sig eins
og þeir vildu, og frjálst ríki. Ekk-
ert annað land veitti þeim færi á
þessu! 0g þetta er stórmikiÖ at-