Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1934, Blaðsíða 74

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1934, Blaðsíða 74
56 Tímarit Þjóðrœknisfélags íslendinga En kvæðið, sem margir munu þekkja (sjá Úrvai, kls. 213), hefir fyrir einkunnarorð byrjunina á hryn'hendu Arnórs jarlaskálds til Magnúsar góða: Haukur réttr ertu Hörðadróttinn, hverr gramr er þér stðrum verri, o. s. frv. og byrjar þannig: “Noregs frægi, nýi skáldaspillir Norðurlöndin sýnast eitt í dag, meðan skáldið gjörvall heimur hyllir heiðra son sinn þau með einum brag. Haukur ertu Hörðadrottinn fríður, hvass á brún sem fyrrum ern og frjáls, Dofra fóstri, frændi kær, þér býður frægðarkveðju land þíns gamla máls. Hér lrvað við annan tón. Nú var föður mínum farið að lítast betur á Björnson en honum leizt við fyrstu samfundi þeirra 1872. Hann hafði auðvitað löngu gleymt þeim erjum, og eins og’ svo að segja allir, ekki sízt andans menn, liafði hann löngu lært að meta hinn arnfleyga skáldjöfur Norð- manna og dáðist að mælsku hans, mannúð og snild jafnt í hundnu sem óbundnu máli. Þessvegna hleður hann á skáldbróður sinn lofinu alveg óspart og seg’ir: “Enginn síðan aldinn skáldaspillir orti ljóð um þann, sem féll á Storð, enginn síðar sannleiks hörpustillir söng og kendi drengilegri orð; enginn' kappi hjó svo hart og svifti heillar þjóðar dauðri vanatrú, enginn svanur landsins hjarta lyfti listasnjalt og kröftugt eins og þú.” Og svo koma enn fimm erindi hvert öðru vingjarnlegra í garð Björnsons — þakkaróður fyrir frjálslyndi hans og drenglunduðu haráttu fyrir sannleik og réttlæti. Ef Björnson hefði lesið og skilið þetta kvæði er óhugsanlegt annað en að hann hefði hlakkað svo yfir því, að hann hefði a. m. k. komið öðrum til að njóta þess með sér og hefði síðan skrifað föður mínum hið hlýjasta þakkarbréf, eins hlýtt og hann gat bezt miðlað af sínum mikla bjarnyl. Tel eg’ þá sennilegt, að ekki hefði slitnað sambandið milli þeirra úr því. Það má vera, að Björnson hafi lesið eða byrjað að lesa kvæðið, en þá befir hann ekki skilið það eða réttara ekki gefið sér tíma til að reyna að skilja það eða fá hjálp til að skilja það, og hefir hann þá lagt það á glámbekk og síðan hefir honum gleymst að athuga það nán- ar. Þetta þykir mér miklu senni- legra, heldur en að hréfið hafi glat- ast og aldrei komist í hendur Björnsons, en þeirri skoðun hélt frú Karólína Björnson fram mörg- um árum seinna. Eg var staddur í Noregi haustið 1919 og’ kyntist þá hinni gáfuðu konu og miklum Is- landsvini Ingu Björnson (bróður- dóttur skáldsins).. Eg sagði henni frá því, að Björnson hefði aldrei þakkað kvæðið, sem eg nú í þetta skifti las upp fyrir hana og þýddi jafnóðum eftir beztu getu. Hún var afarhrifin af kvæðinu og vildi fullyrða að alveg væri fráleitt að Björnson hefði nokkurn tíma feng- ið það, úr því hann aldrei mintist á það, en hún hét strax næsta dag að finna frú Karólínu að máli og spvrja hana livað hún vissi um það. Hún gerði þetta og kom dáðum-hróðug til mín aftur daginn eftir með skilaboðum um að frúin vildi gjarnan sjá mig og spjalla við mig frekar um þetta máí, en svo mikið mundi mega telja víst að bréfið og kvæðið lilytu að hafa glatast úr því Björnson mintist á
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.