Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1934, Blaðsíða 102

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1934, Blaðsíða 102
84 Tímarit Þjóðrœknisfélags Islendinga á g-ólfið. Eg bjóst við að frúin mnndi reiðast, en hún brosti að og sagðist liafa lieyrt að eg væri vel lesandi og því bafi bún hér bók, sem muni vekja mig og liressa upp stúlkurnar, ef eg lesi í henni stund- arkorn. Það voru Fornaldarsög- ur Norðurlanda. Fór brátt af mér allur svefn og ekki nóg með það, stúlkumar unnu nú af meira kappi en fyr. Fór það nú svo að eg kembdi dálitla stund á bverju kveldi, en las svo sögur þangað til stúlkurnar fóru að mjólka. Þegar það var búið var lesinn kveldlest- ur og gerði Magnús það, og sat við dyrnar á milli herbergjanna svo að húsbóndinn gæti lieyrt. Hús- bóndinn byrjaði, því að hann var raddmaður mikill og allir sungu sem gátu, því að nógar bækur voru rtil. E|ftir lesturinn fcom kveid- skatturinn og allir áttu að fara að hátta kl. 10:30, en allir fóru ætíð snemma á fætur. Þegar eg las sat húsbóndinn tímum saman inni og hlustaði á, en hurðin inn til Magn- úsar var látin standa opin. Las eg' hátt svo allir gátu vel heyrt. Fæðinu var þannig háttað, að það var vig'tað út á hverjum sunnu- dagsmorgni, brauð og smjör til viku, en harðfiskur til hálfsmán- aðar. Hver karlmaður fékk bálft bakalónsbrauð til viku. Þau voru búin til og bökuð í bakaríinu í Reykjavík. Kornið í þau var mal- að þar í vindmyllu, því að þá var lítið af mjöli farið að flytjast til landsins. Húsbóndinn keyp*! það vanalega af spekúlant,, sem Green hét. Kom hann á hverju ári til landsins og hafði betri vörur en kaupmenn. Húsbóndinn seldi hon- um ætíð dúninn og fékk 10 ríkis- dali fyrir iDundið. Bakalónsbrauð- in vógu 6 pund, svo að karlmaður- inn fékk 3 pund til vikunnar og 4 merkur af smjöri; því að það var etið mikið af harðfiski. Eg vissi aldrei bvað mikið hann vóg, en meira en nóg. Kvenfólkið fékk ekki nema pund af smjöri og liálft af brauði, en nóg af harðfiski. Þetta var átmaturinn. 1 morgun- skatt fengum við fulla aska af mjólkurblönduðum þunnum graut, en á kveldin flóaða mjólk þegar hún var til, annars mjölgraut, vel hálfa aska; þetta var jafnt árið um kring, nema að það var gamall vani frá jólaföstu inngang til ver- tíðarbyrjunar að annan hvern dag var skamtaður miðdagsmatur, annaðhvort kjötsúpa eða baunir með tólg út í. Voru askarnir full- ir og' bjuggum við vel að því. Þær vikur var útvigtin minni, 1/3 brauðs og 3 merkur af smjöri, en við græddum á skiftunum. Þá daga, sem róið var fengum við æ- tíð soðningu þegar við lentum, og var það eins og aukabiti þá daga, því að maður bafði oftast lítið af brauði síðustu daga vikunnar og fæðið var horslaralegt, Stundum leit fólkið vel út og gerði það víst þessi mikli mjólkurmatur. Það var haldið þar mikið upp á allar liátíðir, einkum jólin. Þá fengu allir á aðfangadagskveld kjötsúpu og kaffi á vökunni og lummur með. Karlmenn fengu þá eitt staup af hrennivíni, en kven- fólkið þá annað vín. Á jóladags- morguninn fengu allir kaffi með pönnukölcum; um morgunverðar- leytið var komið með heila flat- köku og smjör við henni og mikið af hangikjöti. Ivvenfólkið fékk hið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.