Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1934, Qupperneq 130
112
Tímarit Þjóðrœknisfélags íslendinga
Las þá ritari, dr. Rögnv. Pétursson,
skýrslu sína sem hér fylgir:
Skýrsla ritara
Ritaraskýrslan veröur stutt aö þessu
sinni, er frá fáu eða engu að skýra, er fólki
er ekki alment kunnugt. Snemma á árinu
(10. maí) andaðist forseti nefndarinnar, séra
Jónas A. Sigurðsson, eins og skýrt hefir
veriö frá I forseta-ávarpinu. Með samþylcki
nefndarinnar símaði ritari dánarfregnina til
rikisstjórnarinnar á Islandi. Forsætisráð.
herra íslands, hr. Ásgeir Ásgeirsson, svaraði
símskeytinu með samúðarskeyti til ættingja
og samverkamanna séra Jónasar, er ritari
kom til skila. pá voru allir nefndarmenn
viðstaddir jarðarförina, er sökum fjarlægðar
gátu komið því við, og flutti ritari þar nokk-
ur kveðjuorð fyrir hönd stjórnarnefndarinn-
ar. Er kveðjan birt í þessum árgangi Tíma-
ritsins.
Á næsta fundi eftir andlát séra Jónasar
valdi nefndin I sæti hans fyrverandi forseta
og nefndarmann, hr. Jón J. Bíldfell.
Á miðju sumri varð nefndin fyrir öðrum
missi mjög tilfinnanlegum með burtför vara-
forseta félagsins, séra Ragnars E. Kvarans,
er lagði af stað 16. ágúst, ásamt fjölskyldu
sinni, alfarinn til Islands. Hefir séra Ragnar
setið í framkvæmdarnefnd félagsins lengst af
síðan hann kom til þessa lands og skipað for-
seta- vara-forseta eða ritara embætti mestan
þann tíma. Er hann allra manna kunnug-
astur málum félagsins, var hinn framtaks-
mesti og ráðhollasti embættismaður og verð-
ur erfitt að gera grein fyrir þeirri þakklætis-
skuld, sem félagið stendur I við hann. Ef
oss að honum svo mikil eftirsjá, frá starf-
semi félagsins, að vér viljum naumast hætta
oss út I að reyna að skýra frá því, auk þess
sem hann var oss sumum hinn ágætasti
vinur, en það mál heyrir oss til heimuglega,
fremur en sem forstöðunefnd félagsskap-
arins. Sæti skipaði hann 1 Heimfararnefnd
félagsins, allan þann tíma sem nefndin starf-
aði,—um nokkurn tima sem ritari nefndar-
innar, og vara-formaður, og hefði þess séð
skjótan stað ef hans hefði þar eigi notið
við. pakklæti félagsins reyndi nefndin litil-
lega að tjá honum fyrir alt hans góða og
þýðingarmikla starf, við skilnaðarsamsæti.
sem söfnuður hans hélt þeim hjónum I
kirkju Sambandssafnaðar 14. ágúst. Mælti
hr. Árni Eggertsson þar nokkur orð að til-
mælum nefndarinnar, til þeirra hjóna að
skilnaði.
Snemma á þessu hausti varð hr. Jón J.
Bíldfell að hverfa úr bænum um tíma, var
þá nefndin enn á ný forsetalaus. Fóru þá
nefndarmenn fram á það við hr. Ásmund P.
Jóhannsson að hann skipaði forsæti í nefnd-
inni, og varð hann við þeim tilmælum, og
hefir ásamt nefndarmönnum sínum undir-
búið þetta þing. parf eigi, í því efni, að
benda á dugnað hans og fyrirhyggju sem
alkunn er. Pá tók hann og að sér aug-
lýsingasölu fyrir Timaritið, verk, sem hann
einn gat af hendi leyst, eins og sakir standa,
svo sem raun hefir á orðið.
Ritari gerði að nokkru leyti ferð vestur
til Vatnabygða I útbreiðslu erindum félags-
ins og flutti þar tvö erindi á samkomum er
deildin “Fjallkonan” I 'Wynyard og deildin
“Iðunn” I Leslie stóðu fyrir. Gat fyrra erind-
ið fimtán ára afmælis fullveldisins á Islandi”
en hið slðara vék að “Framtlðarhorfum Is-
lenzkra félagsmála.” Féhirðir félagsins, hr.
Árni Eggertsson tók einnig þátt I þessum
samkvæmum og hvatti fólk til inngöngu I
félagið.—Ekki þarf að taka það fram að
verk þessi hafa verið unnin félaginu að
kostnaðarlausu.
Ellefu fundi hefir nefndin setið á árinu,
og tekið til meðferðar flest þau mál, er
þingið fól henni á síðastl. vetri. Hafa þau
haft sæmilegan framgang, sem frá mun
verða skýrt á þinginu. Samvinna hefir ver-
ið góð og trúin á framtfð og nytsemi félags.
skaparins verið örugg og eindregin.
Winnipeg 20. febr. 1934.
Rögnv. Pétursson, ritari.
Árni Eggertson gerði tillögu og próf.
Richard Beck studdi að skýrslan sé við-
tekin. Samþykt.
Var þá útbýtt fjármála- og eignaskýrsl-
um félagsins prentuðum. Árni Eggertson,
féhirðir las skýrslu sxna, og gerði S. B.
Benediktsson tillögu og H. Gíslason studdi,
að hún sé viðtekin.
Samþykt.
Jónas Thordarson las upp slna skýrslu
sem fjármálaritari og skýrslu skjalavarðar.
Hér fylgir Skýrsia fjármdlaritara.
Á þingi pjóðrœknisfélagsins, 20. febr. 1934
Herra forseti og þingheimur!
Fjármálaskýrsla sú, er nú hefir útbýtt
verið sýnir hag félagsins á árinu 19 33 og