Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1934, Side 145
Fimtánda ársþing
127
Lá þá næst fyrir embættismanna kosning.
SkipaSi forseti þá Stefán Einarsson og Arin-
björn Bardal í nefnd til að útbýta atkvæða-
seðlum og telja þá með ritara.
Árni Eggertsson gerði tillögu og Á. P.
Jóhannsson studdi að víkja frá dagskrá og
fresta kosningu um hálftíma. Samþykt.
Ný mál—Skipun þingmálanefndar, Dagskrár
liður 18. G.
Dr. Rögnv. Pétursson las þá nefndarálit
í þessu máli og einnig tillögur frá einstakl-
ingum er nefndin veitti viðtöku.
Dagskrárliður 18 11.
pingnefnd er skipuð var í þetta mál, legg-
ur til:
Nú strax á þessu ári skal stjórnarnefnd
pjóðræknisfélagsins gera gangskör að söfn-
un allra sögulegra skilríkja, prentaðra sem
ritaðra, er snerta sögu íslendinga vestan
hafs, til þess að slíkar heimildir séu varð-
veittar frá glötun.
Að félagsstjórnin veki athygli alls íslenzks
almennings, austan hafs og vestan á þessaii
ákvörðun með opinberri tilkynningu í ísl.
vikublöðunum.
22. febrúar, 1934.
Rögnv. Pétursson J. P. Sólmundsson
Hlaðgerður Kristjánsson.
Tillögu gerði G. P. Magnússon studda af
Arinbirni Bardal að nefndarálitið sé við-
tekið 1 heild sinni eins og lesið. Samþykt.
Var þá lesin einstaklings tillaga frá Ás-
geiri Bjarnasyni:
Að erindi þingsins, er flutt var til minn-
ingar um 60 ára afmæli þjóðræknissamtaka
í Vesturheimi sé gefið út í sérstökum bækl-
ingi á kostnað félagsins og haft til útbýt-
inga meðal almennings.
Á. P. Jóhannsson gerði tillögu og Sig.
Vilhjálmsson studdi að tillaga þessi sé feld
vegna þess að fyrirlestur sá, er hún fjallar
um sé allareiðu í Tímaritinu. Var tillaga
þessi samþykt með 15 atkvæðum gegn 14.
Var nú uppi sá tími er kosnlngu embætt-
ismanna hafði verið frestað og því gengið
til útnefninga.
Voru þessir útnefndir fyrir forseta:
J. J. Bíldfell, Á. P. Jóhannsson, Dr. Rögnv.
Pétursson, B. E. Johnson, Hjálmar Gíslason,
Séra Guðm. Árnason, J. P. Sólmundsson.
Allir afsökuðu sig og urðu um þetta um-
ræður.
Mælst var til að J. J. Bíldfell gæfi kost ó
sér og að þingheimur greiddi honum atkvæði
í einu hljóði.
Tillögu gerði B. E. Johnson og J. P. Sól-
mundsson studdi að allir, sem samþykkir
væru þessum tilmælum risu úr sætum sín-
um. Var það gert af öllum með lófataki
og lýsti ritari þá Jón J. Bíldfell kosinn for-
seta I einu hljóði.
Til vara-forseta var stungið upp á:
Ásg. Bjarnason, Próf. Richard Beck, Á.
P. Jóhannsson. Hlaut prof. Richard Beck
kosningu.
Fyrir ritara var stungið upp á Bergthor
E. Johnson, og var hann kosinn i einu hljóði.
Vara-ritari var kosinn í einu hljóði Dr.
Á. Blöndal.
Fjármálaritari var kosinn í einu hljóði
Guðmann Levy.
Vara-fjármálaritari var kosinn í einu
hljóði Á. P. Jóhannsson.
Fyrir féhirði var kosinn Árni Eggertsson í
einu hljóði.
Vara.féhirðir var kosinn I einu hljóði Páll
S. Pálsson.
Skjalavörður var kosinn í einu hljóði Sig-
urður Melsted.
Fyrir yfirskoðunarmenn var stungið upp
á J. Walter Jóhannsson, Ásgeiri Bjarnason,
Hjálmari Gíslason, Jack Snydal.
Tvo menn átti að kjósa, annan til tveggja
ára og hinn til eins árs. Hlutu kosningu
J. Walter Jóhannsson til tveggja ára og
Jack Snydal til eins árs.
Milliþinganefnd í Rithöfundasjóð.
Ásm. P. Jóhannsson gerði tillögu og dr.
Rögnv. Pétursson studdi, að 3 manna nefnd
sé kosin.
Voru þessir útnefndir og kosnir I einu
hljðði: Séra Guðm. Árnason, Lundar; pórð-
ur Bjarnason, Selkirk; G. J. Oleson, Glen-
boro; Jón Jóhannsson, Wynyard; porsteinn
Glslason, Brown.
Las þá dr. Rögnv. Pétursson bréf frá Por_
steini Gíslasyni í Brown, og fylgdi með því
$10 gjöf frá deildinni Island I Rithöfunda-
sjóðinn.
Tillögu gerði Friðrik Sveinsson studda af
Philip Johnson, að taka aftur til umræðu
tillögu Ásgeirs Bjarnasonar.
Tillagan var feld með 14 atkvæðum gegn
12.
pá var lesin einstaklings tillaga frá Sig.
Vilhjálmssyni: