Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1956, Síða 79
TVÖ AUSTFIRZK SKÁLD
61
5. Úr þessu er ennþá gott að gjöra
Guð þeim andsvara blíður vann
í hæð skal ykkar heimur vera
— hrakskældum bjarga ei eg
kann. —
Tign skal og sæla hvörs þar
hæst,
sem hafið getur sig mér næst.“
Trúað gæti ég að þetta kvæði væri
þýtt og vafamál hvort það sé 18.
aldar heimspeki eða rómantík og þó
líklega heldur rómantíkin. En kvæð-
„Enginn gerir svo öllum líki“
öðru nafni „Asnabálkur“ er því líkt
að það væri eftir Æsóp eða 18. aldar
heimspeki.
Hér mætti líka nefna það, sem
^eð vissu eru þýðingar sr. Ólafs,
tvö brot. Annað er brot úr þýðingu
af i,Nattvardsbarnen“ eftir Tegnér,
^srkilegt vegna háttarins sem er
hexameter:
■^ynslóðir blómgast og burt aftur
hverfa sem hjóm
°g stjörnur sem bleikfölnuð blöð
hrapa af himninum ofan
Þúsundir aldanna er ent hafa síðustu
stund
aha fótum hans við hann gætir
þeirra glöggt en ei telur.
Ver er sá fyrir hans heilagri
ásjónu stenzt?
griarleg er umvöndun hans er
hann á dómstólinn sezt.
^hakten blomstra och dö,
°c 1 stjarnorna falla fran himlen,
, s' írv- (Esaias Tegner, Samlade
krifter (Stockholm 1893) I, 114).
e Þýðingarbrotið er úr Ossian
n ovíst hvort þýtt er úr ensku eða
mhverri norrænni þýðingu:
Hraut mér þá
hagl af auga.
Meyjar raust
mátti eg heyra.
Stóð eg hjá vífi
stáli klæddur
og friðar orð
flutti þannig:
Hvílík andvörp
þetta hýsir brjóst.
Vilt þú Ossian
vaðil hefja
bana bjóða
bölvaldi þínum.
Sumarið 1856 vísíteraði Helgi
byskup Thordersen um Austfjörðu,
kom eins og lög gera ráð fyrir að
Kolfreyjustað og var svo vel tekið
þar að honum þótti annálsvert. Sr.
Ólafur flutti honum kvæði undir
hætti Jónasar: „Hvað er svo glatt
sem góðra vina fundur.“
Eins og áður er sagt, sjást þess
ekki merki í syrpu sr. Ólafs að hann
hafi nokkurn tíma lent í kvæða-
stælum, hvað þá skömmum við aðra
menn. Hefði sonur hans Páll lítið
haft að sækja til hans í því efni,
ef öll kurl kæmu hér til grafar. En
grunur er mér á að sr. Ólafur hafi
ekki verið svo heilagur sem hann
lét og gæti eg betur trúað því að
hann hafi hreinsað til í syrpu sinni
og brennt skömmunum áður en
hann fór í gröf sína. Ræð ég það af
kvæðum, sem aðrir hafa ort um
hann.
1 ljóðabréfi frá Hallgrími föður-
bróður sr. Ólafs (Lbs. 178, 8vo) er
vísa sem á að vera skens um sr.
Ólaf er hann ætlaði að embætta í
foraðsveðri í Þingmúla: